Ferill 577. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1323  —  577. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit


um tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031.

Frá 1. minni hluta fjárlaganefndar.


Inngangur.
    Síðastliðin tvö kjörtímabil voru, sem alkunna er, mjög krefjandi fyrir ríkissjóð vegna tíðra og umfangsmikilla efnahagsáfalla. Ber þar hæst heimsfaraldur COVID-19, eldsumbrot á Reykjanesskaga og gjaldþrot flugfélagsins WOW air. Samstaða var um það meðal allra flokka að beita skyldi ríkisfjármálunum til að milda áhrif áfallanna á heimili og fyrirtæki landsins.
    Þrátt fyrir þá miklu samstöðu hefur fortíðin, af hálfu stjórnarmeirihlutans, verið máluð þeim litum að um efnahagslega óstjórn hafi verið að ræða og að ríkisfjármálin hafi verið ein rjúkandi rúst þegar ný stjórn tók við. Ekkert er fjær sanni. Þótt umtalsverður kostnaður hafi hlotist af reyndust bein áhrif áfallanna minni en spáð var fyrir um í fyrstu og skuldahlutfall ríkissjóðs jókst aðeins lítillega.
    Raunin er sú að núverandi ríkisstjórn tók við góðu búi. Vert er að benda á að árið 2025 hefði getað orðið hallalaust en til þess þurfti aga og styrka stjórn. Fjögur fjáraukalög meiri hlutans grófu m.a. undan þeim möguleika og eyddu jafnharðan ófyrirséðum tekjuauka í ný og aukin útgjöld. Markmiði ríkisstjórnarinnar um hallalaus fjárlög hefði því getað verið náð í fyrra hefði metnaðurinn raunverulega staðið til þess og jafnvel á ný í ár. Þess í stað er markið sett á að skila 1,1 ma.kr. afgangi árið 2027, þ.e. aðeins um 0,0653% af áætluðum heildartekjum. Loforð hafa verið gefin um stórtækar hagræðingaraðgerðir en athafnir hafa ekki fylgt þeim orðum.
    Nú liggur fyrir að forsendur þeirrar áætlunar eru brostnar og þar með möguleikinn á hallalausum fjárlögum nema annað og meira komi til. Slíkum aðgerðum er ekki til að dreifa í nefndaráliti meiri hluta fjárlaganefndar. Ekkert verður því af hallalausum fjárlögum árið 2027.

Efnahagstillögur þingmanna Sjálfstæðisflokksins.
    Við fjárlagavinnu fyrir árið 2026 lögðu þingmenn Sjálfstæðisflokksins til ýmsar hagræðingaraðgerðir samhliða lækkun á álagningu opinberra skatta og gjalda í því skyni að bæta ríkisfjármálin og létta undir með fjölskyldum og atvinnulífinu.
    Í tillögunum var m.a. lagt til að innleiða nýtt greiningartól fyrir fjárreiður stjórna og stofnana, að réttindi og skyldur opinberra starfsmanna yrðu færð nær því sem þekkist á almennum markaði og að stofnanir yrðu sameinaðar. Lagt var til að gera kröfu um flata 3,5% hagræðingu í störfum ríkisstofnana og 7,5% aðhaldskröfu á aðalskrifstofur ráðuneyta, leggja af ráðstöfunarfé ráðherra og bæta lausafjárstýringu hins opinbera, svo og að krónutölugjöld stæðu í stað og tækju ekki breytingum á milli ára. Allar þessar breytingartillögur voru felldar.
    Á vormánuðum þessa árs kynnti Sjálfstæðisflokkurinn efnahagstillögur sínar, sem byggðust á fyrrnefndum breytingartillögum við fjárlagafrumvarpið, þar sem lagt var til að lækka opinberar álögur um 140 ma.kr. árlega, öndvert við 40–60 ma.kr. skattahækkanir sem boðaðar eru í tillögunni sem hér er til umfjöllunar. Meðal þess sem lagt var til var lækkun tekjuskatts og hækkun persónuafsláttar einstaklinga, afnám erfðafjárskatts, stimpilgjalds, útvarpsgjalds og kolefnisgjalds, svo og auknir hvatar almennings til þátttöku á fjármálamarkaði. Að sama skapi var lagt til að einfalda starfsemi fyrirtækja og rekstraraðila með því að einfalda og straumlínulaga eftirlit og fækka verkefnum hins opinbera en sinna þeim jafnframt betur sem eftir standa. Enn fremur var lagt til að sameina stofnanir og selja ríkiseignir fyrir a.m.k. 680 ma.kr., sem nýta mætti til að greiða niður skuldir og lækka vaxtabyrði ríkissjóðs.
    Illu heilli hafa tillögur flokksins ekki hlotið brautargengi. Þvert á móti liggur fyrir að meiri hlutinn hyggur á enn frekari skattahækkanir, með tilheyrandi þrengingum fyrir fyrirtæki og fjölskyldur landsins. Meðal þess sem stefnt er að er að lækka endurgreiðsluhlutfall virðisaukaskatts vegna byggingar íbúðarhúsnæðis, færa baðlón úr neðra þrepi virðisaukaskatts í hið efra og hækka sértæka skatta á fjármálafyrirtæki. Lúmskasta skattahækkunin felst í fyrirhuguðum breytingum á reglum um reiknað endurgjald og skattmat og á frádráttarreglugerðinni en þar eru á ferð breytingar sem unnt er að gera með setningu reglugerða án aðkomu Alþingis.

Forsendur brostnar fyrir fjármálaáætlun og hallalausum fjárlögum.
    Frá framlagningu tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun hafa efnahagsforsendur tekið nýja stefnu til hins verra. Ýmis ytri áhrif, til að mynda átök við Persaflóa, hafa ekki hjálpað til í þeim efnum sem og miklar launahækkanir. Því skal haldið til haga að þróunin hófst undir lok síðasta árs og má ekki síst rekja til efnahagsmistaka ríkisstjórnarinnar, líkt og síðar verður rakið.
    Líkt og rakið er í áliti meiri hlutans hefur ný þjóðhagsspá Seðlabankans breytt ýmsum forsendum áætlunarinnar. Forsendurnar fyrir henni, sem þó voru bjartsýnar strax við framlagningu hennar, eru því foknar út í veður og vind. Þrátt fyrir framangreint og þrátt fyrir að fyrir liggi að afkoman verði neikvæð telur meiri hlutinn ekki tilefni til að gera breytingar á áætluninni. Meiri hlutinn setur kíkinn vitandi vits fyrir blinda augað. Seðlabankinn gerir í fyrrnefndri spá ráð fyrir 1,8% hagvexti á árinu 2027 [JE1.1]og lækkar þar með fyrri spá sína um 0,4 prósentustig. Samkvæmt nýjustu mælingu á vísitölu neysluverðs hefur hún hækkað um 5,1% á síðastliðnum tólf mánuðum og er viðbúið að árstakturinn fari ekki undir 4% fyrr en um mitt næsta ár. Vert er að hafa í huga að allstóran hluta hækkunar undanfarinna missera má rekja til hækkunar opinberra gjalda og gjaldskrárhækkana um síðustu áramót sem hjálpuðu síst við að halda verðbólguvæntingum hóflegum. Því er að einhverju leyti um heimatilbúinn vanda að ræða.
    Óumdeilt er að hagkerfið hefur kólnað og er kólnunin nokkuð meiri en tillagan gerir ráð fyrir. Vísbendingar eru um samdrátt í einkaneyslu og innlendri eftirspurn og þá hefur syrt í álinn hvað atvinnuleysi varðar. Spár gera nú ráð fyrir að atvinnuleysi verði að meðaltali um 5,7% á árinu í stað 4,8% og að það verði um og yfir 5% á næsta ári. Verðbólguvæntingar hafa hækkað, einkum til skamms tíma, en þeirrar þróunar fór að gæta strax undir lok síðasta árs. Samkvæmt nýlegri könnun Seðlabankans á verðbólguvæntingum markaðsaðila standa væntingar þeirra til að verðbólga verði tæp 4% eftir eitt ár og hafa þær hækkað um 0,2 prósentustig frá síðustu könnun bankans. Forsendur fjárlaga fyrir yfirstandandi ár eru því að öllum líkindum brostnar og ekki margt sem bendir til þess að bjartsýnar forsendur í áætluninni muni standast.
    Þá er vert að halda því til haga að forsendur áætlunarinnar um þróun launa og bótakerfa eru allbjartsýnar og úr öllum takti við þróun undanfarinna ára. Til að mynda er gert ráð fyrir því að heildarlaun á ársverk hækki um 6,4% á yfirstandandi ári, 4,3% á komandi ári og svo um 3,7% árlega á tímabili áætlunarinnar en reyndin er sú að í sögulegu samhengi hefur hækkunin numið um 8% á ári.

Lánsfjárjöfnuður áfram neikvæður og lánsþörf meiri en ráð var gert fyrir.
    Fyrsti minni hluti vill vekja athygli á að hreinn lánsfjárjöfnuður ríkissjóðs versnar frá fjármálaáætlun fyrir árin 2026–30 til þeirrar áætlunar sem nú er til umræðu. Áður var gert ráð fyrir því að á árinu 2026 yrði hann neikvæður um 55,3 ma.kr. og neikvæður um 68,8 ma.kr. árið 2027. Áætlanir nú gera ráð fyrir aukningu um á bilinu 10–20 ma.kr. árlega á tímabili áætlunarinnar. Viðbúið er að raunniðurstaða ársins 2026 verði allt að tvöfalt neikvæðari en upphaflegar áætlanir og fjárlög gerðu ráð fyrir. Þá er enn fremur vert að benda á að á árinu 2027, þegar stefnt er að hallalausum fjárlögum, er áætlað að skuldir A1-hluta hins opinbera muni aukast um nærri 100 ma.kr. að teknu tilliti til verðbóta. Í ljósi þrenginga í efnahagslífinu er viðbúið að sú upphæð sé síst of varlega áætluð. Fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar um skjóta lækkun skulda eru því tæpast raunsæjar.
    Að mati 1. minni hluta er viðbúið að raunvöxtur ríkisútgjalda verði umfram það sem tillaga til þingsályktunar um fjármálaáætlun gerir ráð fyrir en stefnt er að 1,5% aukningu. Eins og rakið hefur verið benda spár til þess að atvinnuleysi verði nokkuð yfir þeim viðmiðum sem áætlunin gerir ráð fyrir en líkt og fjallað er um í áliti meiri hlutans kostar hvert prósentustig þess ríkissjóð á tíunda milljarð króna.
    Þrátt fyrir það telur meiri hlutinn ekki tilefni til þess að gera breytingar „á áætluninni að þessu sinni“, þótt ærið tilefni sé til, heldur beinir því til ráðuneytisins að gera grein fyrir breyttum forsendum í frumvarpi til fjárlaga í haust og við framlagningu næstu fjármálaáætlunar ríkisstjórnarinnar næsta vor. Skýtur það einkar skökku við í ljósi þess að í áliti meiri hluta er mikilvægi efnahagsforsendna í mati á tekjum, útgjöldum, afkomu og skuldastöðu hins opinbera sérstaklega áréttað, og það með réttu. Dugir því skammt að tala um mikilvægi hallalausra fjárlaga „þótt tæpt standi“ fyrir trúverðugleika opinberra fjárlaga þegar fyrir liggur að forsendur eru brostnar. Trúverðugleikinn byggist enda ekki á fullyrðingum einum saman heldur á því hversu vel áætlanir eru undirbyggðar og hve líklegt mönnum þykir að áætlanir gangi eftir.

Vísitölutenging almannatrygginga – sjálfstýring ríkisfjármála.
    Það er samdóma álit allra sem um málið hafa fjallað að vísitölutenging almannatrygginga, sem samþykkt var með lögum nr. 26/2026, sé stór hagstjórnarmistök sem ógni stöðugleika ríkisfjármála. Á það var bent í aðdraganda setningar laganna en í álitsgerð fjármálaráðs um fjármálaáætlun segir að breytingin feli í sér mikla hættu á að „misræmi myndist milli útgjalda og tekjuöflunargetu hins opinbera með tilheyrandi áhrifum á verðstöðugleika, vinnumarkað og skuldastöðu ríkissjóðs“. Ráðið bætir við og bendir á að samþykkt laganna hafi eytt því útgjaldasvigrúmi sem til staðar var fyrir samþykkt laganna. Í lögunum felist forsendubrestur sem kalli á endurskoðun útgjaldaþaks stöðugleikareglunnar og þá til lækkunar.
    Sú útfærsla sem samþykkt var felur í sér að við ákvörðun árlegrar breytingar bóta almannatrygginga, samhliða fjárlögum hvers árs, skuli taka mið af þróun vísitölu neysluverðs eða launavísitölu frá gefnu upphafsgildi, þ.e. því sem hærra reynist. Stór hluti ríkisútgjalda hefur því verið settur á sjálfstýringu. Samhliða fer hlutfall eldra fólks í aldurssamsetningu íbúa hækkandi, auk þess að stöðug aukning hefur verið í hópi fólks á vinnualdri sem þiggur örorkubætur og er því utan vinnumarkaðar. Enn fremur hefur verið á það bent að breytingin dragi úr hvata fólks til vinnu, til að mynda í þeim tilfellum þegar verðbólga, og þar með bætur almannatrygginga, eykst umfram laun. Því er viðbúið að hin innbyggða sjálfvirkni sem breytingin felur í sér muni með tímanum draga úr sveigjanleika og reyna mjög á þanþol ríkisfjármála.
    Fyrsti minni hluti tekur undir áhyggjur sem birtast m.a. í álitsgerð fjármálaráðs um að aðgerðin sé til þess fallin að auka sjálfvirkni ríkisútgjalda og magna hagsveiflur og geti til langs tíma reynst sem myllusteinn um háls ríkisfjármálanna og vegið að stöðugleika efnahagslífsins. Betur færi á því að aðgerðir hins opinbera beindust með sértækari hætti að hópum þar sem þörfin er hvað mest í stað þess að útgjöld séu aukin með almennum og ómarkvissum hætti.

Auka þarf gagnsæi stöðugleikareglunnar.
    Með 3. gr. laga nr. 49/2025 var svonefnd stöðugleikaregla lögfest í lögum um opinber fjármál, nr. 123/2015, sbr. 7. gr. laganna. Með henni er mælt fyrir um að útgjöld A1-hluta ríkissjóðs skuli vaxa að hámarki um 2% að raunvirði á ári, þó þannig að ekki sé tekið tillit til fjárfestinga, vaxta, lífeyrisskuldbindinga, afskrifta skattkrafna og annarra tapaðra krafna, tjónabóta, meiri háttar náttúruhamfara, ríkisábyrgða svo og framlaga til Atvinnuleysistryggingasjóðs og Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Reglunni er ætlað að gæta þess að útgjöld hins opinbera aukist ekki hraðar en sem nemur stækkun hagkerfisins. Sem fyrr er í gildi sú regla að skuldir A1-hluta, að frádregnum sjóðum, bankainnstæðum, lífeyrisskuldbindingum og viðskiptaskuldum, séu ekki yfir 30% af VLF.
    Athyglisvert er að í nefndaráliti meiri hlutans er lítið vikið að annars ágætri umsögn fjármálaráðs. Slíkt er að mörgu leyti skiljanlegt enda fer fjármálaráð óblíðum höndum um hagstjórn ríkisstjórnarinnar. Í umsögn fjármálaráðs er m.a. gagnrýnt að stöðugleikareglan miði við raunvöxt en ekki nafnvöxt útgjalda sem bjóði hættunni heim hvað varðar dulbúnar útgjaldaaukningar. Þar er enn fremur bent á að fyrirliggjandi hækkun bóta almannatrygginga, sbr. það sem rakið hefur verið, muni ekki koma fram sem raunvöxtur gagnvart stöðugleikareglunni.

Ríkisstjórnin stöðvaði vaxtalækkunarferli Seðlabankans.
    Telja má ríkisstjórninni til tekna að ætla sér að stefna að hallalausum fjárlögum á komandi ári. Sú fyrirætlan verður hins vegar ekki byggð á fyrirliggjandi áætlun heldur þarf ýmist að koma til stórtæks niðurskurðar eða þrengja enn frekar að heimilum og fyrirtækjum með skattlagningu.
    Í tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun er því haldið fram að í henni felist „markvert“ aðhald. Hins vegar er sérstaklega tekið fram að aðhald ríkisfjármála 2027 sé „einkum á tekjuhliðinni“. Það sem áætlunin lýsir sem aðhaldi er því ekki aðhald í raun og veru heldur hækkanir á sköttum og gjöldum. Í áætluninni eru lagðar til ýmsar breytingar á skattheimtu til hækkunar sem áætlað er að skili auknum skatttekjum frá 23 mö.kr. á árinu 2027 til 57 ma.kr. árið 2031. Meiri hluti þeirra tillagna sem þar er að finna er þó óútfærður og á að leggjast á atvinnulífið með einum eða öðrum hætti. Má þar nefna hækkun sértækra skatta á fjármálafyrirtæki, hækkun virðisaukaskatts á baðlón, hækkun skatta á bíla og eldsneyti og lækkun á endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna íbúðauppbyggingar.
    Aukin skattheimta dregur að jafnaði úr einkaframtaki og hvata til aukinnar verðmætasköpunar. Því er ekki á vísan að róa í þeim efnum líkt og ríkisstjórninni ætti nú þegar að vera ljóst af nýliðinni reynslu af hækkun vörugjalda á ökutæki. Að mati 1. minni hluta færi betur á því ef ríkisstjórnin stigi fram með skýrar tillögur um niðurskurð en fyrirliggjandi hagræðingartillögur, sem m.a. felast í fækkun stöðugilda hjá ríkinu um 1%, duga skammt í þeim efnum. Áður hefur verið bent á að ætlaður afgangur A1-hluta ríkissjóðs er lítill í samhengi hlutanna eða vel innan við 1% af tekjum ríkisins. Því er ljóst að ekki má mikið út af bregða til að ætlunarverkið takist ekki og raunar má færa rök fyrir því að það hafi þegar mistekist í ljósi þess að fjármálaáætlunin sjálf, sem á að undirbyggja fjárlögin, stenst ekki.
    Stýrivextir Seðlabankans eru nú 7,75% og næsta víst að skref verði stigin til frekari hækkunar þeirra í haust. Ríkisstjórnin afrekaði það að stöðva vaxtalækkunarferli Seðlabankans og ýta verðbólguvæntingum upp á við. Samtímis neyðast heimilin til að halda að sér höndum og fyrirtækin til að draga saman seglin. Samdráttur í einkaneyslu og lægra atvinnustig munu koma niður á skatttekjum ríkissjóðs á meðan aukið atvinnuleysi leggst á útgjaldahliðina. Hærri verðbólguvæntingar skila sér síðan í hærri vaxtakjörum ríkissjóðs, einkum og sér í lagi í verðlagningu víxla og skemmri bréfa. Því má fullyrða að veruleg áskorun verði fyrir ríkisstjórnina að skila ríkissjóði réttum megin við núllið á komandi ári. Þá hafa skattahækkanir, samþykktar á árinu 2026, ekki skilað þeirri tekjuaukningu sem að var stefnt líkt og þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa ítrekað varað við.

Of bjartsýnt litið á lykilmálaflokka.
Almannatryggingar.
    Eins og rakið hefur verið hefur ríkisstjórnin lögfest sjálfvirka hækkunarvél og aftengt inngrip mannlegrar dómgreindar, líkt og það var orðað í athugasemdum Seðlabanka Íslands við málið, með tengingu bóta almannatrygginga við launavísitölu. Með því hefur verið lögfest virkni í kerfið sem letur einstaklinga frá vinnu í stað þess að hvetja til hennar. Sjálfbærni ríkisfjármála er þannig stefnt í hættu enda verður ekki staðið undir opinberum útgjöldum, hvaða nafni sem þau nefnast, án þess að nægjanleg verðmætasköpun eigi sér stað í hagkerfinu en til þess þarf að tryggja skaplega hvata til atvinnu og framtakssemi í hvívetna.
    Ósennilegt er að aðgerðin muni bitna á ríkisfjármálunum fyrr en að nokkrum árum liðnum en fyrir liggur að þar er á ferð tifandi tímasprengja sem hafa mun umtalsverð áhrif þegar fram í sækir, einkum og sér í lagi í ljósi þess að þjóðin er að eldast og einstaklingum á örorku hefur stöðugt fjölgað á umliðnum árum.
    Í því samhengi er vert að nefna að frá árinu 2016 til ársins 2025 þrefaldaðist fjöldi einstaklinga sem fengu endurhæfingarlífeyri frá Tryggingastofnun ríkisins, úr 3.271 í 9.398, og fór fjárhæð greiðslna úr því að vera 0,5% af árlegum útgjöldum ríkisins í 1,8% árið 2025, sem er aukning um 28,4 ma.kr. Á sama tímabili voru greiðslur vegna örorku um 5–6% af fjárlögum hvers árs. Lagabreytingin gæti með öðrum orðum leitt til þess að erfiðara og jafnvel ómögulegt verður að standa undir núverandi velferðarkerfi í óbreyttri mynd.

Ár Greiðslur TR vegna örorku (ma.kr.) Fjöldi Hlutfall fjárlaga ársins Greiðslur TR vegna endurhæfingarlífeyris (ma.kr) Fjöldi Hlutfall fjárlaga ársins
2016 42.272 20.695 5,7% 4.006 3.271 0,5%
2017 47.204 21.138 6,1% 4.735 3.543 0,6%
2018 50.598 21.396 6,1% 5.927 3.936 0,7%
2019 55.739 21.768 6,0% 7.580 4.623 0,8%
2020 59.579 22.609 6,0% 10.171 6.028 1,0%
2021 62.754 22.257 5,3% 11.763 6.188 1,0%
2022 67.875 22.757 5,6% 11.690 6.313 1,0%
2023 74.877 22.631 5,6% 14.890 6.726 1,1%
2024 78.785 22.257 5,1% 20.747 7.837 1,4%
2025 85.322 21.669 5,5% 28.371 9.398 1,8%

Heilbrigðis- og öldrunarmál.
    Síðastliðin tíu ár hafa útgjöld Íslands til heilbrigðismála verið á bilinu 8–10% af vergri landsframleiðslu en í þeim samanburði hefur Ísland verið lítillega á eftir öðrum Norðurlandaþjóðum. Mikill hagvöxtur eða samdráttur getur þó haft mikil áhrif á hlutfallið frá ári til árs án þess þó að framlög til málaflokksins taki nokkrum breytingum. Sé aftur á móti litið til samanburðar út frá framlögum á mann á sama tímabili, á föstu verðlagi, kemur í ljós að framlög Íslands hafa vaxið að raungildi um 28% frá árinu 2015, mest allra Norðurlandaþjóða.
    Í þessu samhengi er vert að hafa í huga að aldurssamsetning íslensku þjóðarinnar er hagstæðari en í samanburðarlöndunum, þ.e. hlutfall íbúa eldri en 65 ára er lægra og hefur Ísland verið töluvert undir meðaltali annarra Norðurlandaþjóða á tímabilinu sem til skoðunar er. Þá er Ísland betur sett en flest nágrannalönd þar sem lífeyriskerfið byggist á sjóðsöfnun en ekki gegnumstreymi, en slíkt er til þess fallið að létta undir með ellilífeyri almannatrygginga. Þó þekkjast nýleg dæmi þess að útflæði lífeyrissjóða hafi verið meira en sem nemur iðgjöldum sjóðsfélaga, þrátt fyrir hagstæða aldurssamsetningu þjóðarinnar. Útgjöld til heilbrigðismála hér á landi eru þannig í reynd meiri en tilefni er til í samanburði við nágrannaþjóðir.
    Í nefndaráliti meiri hlutans má sjá samanburð á aldurssamsetningu við aðrar Norðurlandaþjóðir, auk spár til ársins 2050 þar sem gert er ráð fyrir því að hlutfall 65 ára og eldri á móti einstaklingum 15–64 ára verði tæplega 40% hér á landi árið 2050 og um 55% árið 2070. Það þýðir með öðrum orðum að fækka mun jafnt og þétt í hópi vinnandi einstaklinga sem standa undir samneyslunni eftir því sem árin líða. Ríður því mjög á að tryggja sjálfbærni ríkisfjármála og efla verðmætasköpun og framleiðni. Að öðrum kosti þarf að draga úr samtryggingunni þegar fram í sækir.
    Hvað sjúkrahúsþjónustu varðar hefur sú heillaþróun orðið síðustu ár að innleiðing DRG-kerfisins hefur náð til fleiri og fleiri anga Landspítalans. Vísbendingar eru um að fleiri DRG-einingar séu unnar en áður á Landspítalanum á hvert ársverk og að rekstrarkostnaður miðað við meðaltals DRG-einingu fari lækkandi. Hið sama gildir ef miðað er við íbúafjölda eða ársverk. Aftur á móti liggur fyrir að tækifæri eru til aukinnar skilvirkni í rekstri spítalans og heilbrigðiskerfisins alls.

Framhaldsskólastigið.
    Í framlagðri tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun, sem meiri hlutinn leggur ekki til breytingar á, er gert ráð fyrir því að fjárveitingar til framhaldsskólastigsins lækki um tæplega 4 ma.kr. á tímabilinu 2026–2031. Þrátt fyrir það er gert ráð fyrir sérstöku framlagi árið 2027 til þess að mæta fjölgun nemenda, efla kennslu í STEM-greinum og styrkja iðn-, verk- og starfsnám. Þá er ónefnd uppbygging verknámshúsnæðis hjá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti, Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Menntaskólanum á Ísafirði, Verkmenntaskólanum á Akureyri og Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki.
    Nýverið kynnti ríkisstjórnin metnaðarfulla menntastefnu til næstu tíu ára þar sem til stendur að lyfta grettistaki á ýmsum sviðum menntakerfisins. Fyrsti minni hluti fær ekki séð, líkt og með svo margt annað í fjármálaáætluninni og nefndaráliti meiri hlutans, hvernig sú stærðfræði getur gengið upp. Ýmsar áskoranir blasa við framhaldsskólastiginu, m.a. hvað varðar breytta samsetningu nemendahópsins, og ekki verður glöggt séð hvernig það fer saman að hefja stórsókn samhliða því að draga saman seglin í fjárveitingum til skólastigsins.

Fyrirhugaðar skattahækkanir.
    Í framlagðri tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun er stuttlega vikið að fyrirhuguðum skattahækkunum á áætlunartímabilinu. Ber þar hæst færslu baðlóna úr neðra þrepi virðisaukaskatts yfir í hið efra, hækkun sértækra skatta á banka og fjármálastofnanir og lækkun endurgreiðsluhlutfalls virðisaukaskatts vegna byggingar íbúðarhúsnæðis. Fyrsti minni hluti gagnrýnir harðlega þær skattahækkanir sem fyrirhugaðar eru.
    Fyrsti minni hluti telur óráðlegt að leggja frekari opinberar álögur á banka og fjármálafyrirtæki þar sem slík hækkun muni óumflýjanlega skila sér í hærri verðlagningu fjármagns til heimila og fyrirtækja, þ.e. að vextir, til að mynda á húsnæðislánum, hækki. Í árferði þar sem heimili og fyrirtæki hafa leitað leiða til að hagræða í bókhaldinu, fasteignamarkaðurinn er í lægð og hægt hefur á hagkerfinu verður að teljast óskynsamlegt að leggja enn frekari séríslenskar álögur á banka og önnur fjármálafyrirtæki.
    Að mati 1. minni hluta færi almennt betur á því ef ríkisstjórnin hefði það ætíð hugfast að alls óvíst er hvort skattahækkanir skili auknum tekjum í ríkiskassann enda geti þær orðið til þess að minnka umsvif í hagkerfinu. Ekki er á vísan að róa í þeim efnum heldur þvert á móti, enda atvinnulífið og heimilin ekki ótæmandi uppspretta skatttekna henni til handa.
    Fyrsti minni hluti tekur undir athugasemdir ferðaþjónustufyrirtækja, sem sendar voru nefndinni við vinnslu málsins, og telur fyrirhugaða breytingu vegna baðlóna afar skammsýna. Engum hefur dulist hvers konar búbót ferðaþjónustan reyndist í kjölfar efnahagshrunsins og hve gríðarlegur vöxtur og uppbygging hefur verið í greininni síðan þá. Stöðugt og sterkt gengi krónunnar síðastliðin ár, miklar launahækkanir og verðbólga eru hins vegar farin að reynast greininni áskorun, sem og öðrum útflutningsgreinum. Ísland er og hefur verið í hópi dýrustu áfangastaða heims og hefur verðlag hér á landi reynst vera þröskuldur fyrir frekari vöxt greinarinnar. Raunar má færa fyrir því sterk rök, ef ekki á illa að fara, að nauðsynlegt sé að krónan veikist lítillega á komandi misserum.
    Þá telur 1. minni hluti afar óskynsamlegt að hækka skatta á tiltekin ferðaþjónustufyrirtæki. Ljóst er að mörg baðlónanna hafa ýmist hafið eða hyggja á frekari uppbyggingu og hafa gert ráð fyrir gildandi virðisaukaskattsþrepi við áætlanagerð sína. Hækkun virðisaukaskattsins mun óumflýjanlega skila sér í hærra verðlagi, mögulega með þeim áhrifum að það dragi úr aðsókn, einkum og sér í lagi meðal heimamanna á þeim tíma sem fæstir ferðamenn koma hingað til lands. Slíkt getur þýtt, sérstaklega úti á landi, að forsendur bresti fyrir því að hafa heilsársopnun. Minni sveitarfélög á landsbyggðinni, sem lagt hafa mikið kapp á að byggja upp heilsársferðaþjónustu, koma illa út úr slíkri þróun. Áhrif þess á dreifingu ferðamanna um land allt og árstíðarsveiflu geta vart verið önnur en neikvæð. Breytingar í þessa veru eru því afar varhugaverðar. Þá má vera ljóst að ekki er á vísan að róa þegar kemur að aukinni tekjuöflun ríkissjóðs með þessum hætti.
    Gera verður þá lágmarkskröfu til ríkisstjórnarinnar að unnið verði heildstætt áhrifamat vegna áformanna áður en lengra er haldið en ekkert slíkt er að finna í framlagðri fjármálaáætlun.

Að lokum.
    Að endingu vill 1. minni hluti vekja athygli á því að fyrir nefndinni liggja hvorki svör um sundurliðun á hækkun framlaga til varnarmála né uppreiknaðar tekjur ríkisins vegna ársins 2025. Enn fremur hefur ekki fengist útskýring á framsetningu ríkisstjórnarinnar á uppgjöri eftir árum og niðurstöður ríkisreiknings fyrir árið 2025 liggja ekki fyrir þrátt fyrir fyrirspurnir 1. minni hluta. Að draga það að svara með þessum hætti felur í sér brot á þingsköpum auk vanvirðingar gagnvart þingi og kjósendum.
    Liggur nú ljóst fyrir að forsendur tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031 eru brostnar og er áætlunin sjálf því vart pappírsins virði. Útlit er fyrir að hagvöxtur verði minni en gert var ráð fyrir, atvinnuleysi meira og verðbólga meiri. Áhrif þess eru til lækkunar á tekjum hins opinbera vegna minni umsvifa og hækkunar á útgjöldum. Þá hafa hagræðingartillögur ríkisstjórnarinnar, svo sem varðandi styttingu bótatímabils atvinnuleysistrygginga, ekki gengið eftir frá því að áætlunin var lögð fram. Engu að síður kýs meiri hlutinn að gera ekki breytingar á fyrirliggjandi áætlun. Einnig er látið hjá líða að uppfæra töflur fjármálaáætlunar í samræmi við breyttar forsendur.
    Fyrsti minni hluti fer því þess á leit við fjármála- og efnahagsráðuneytið að töflur fjármálaáætlunar verði uppfærðar eins fljótt og verða má með tilliti til uppfærðrar efnahagsspár Seðlabanka Íslands þannig að hægt sé að glöggva sig á áætlaðri stöðu opinberra fjármála miðað við fyrirliggjandi forsendur. Þannig megi best standa vörð um gagnsæi og trúverðugleika opinberrar áætlanagerðar. Skorti þar á er ljóst að vegurinn til stöðugra verðlags og lægri vaxta verður torsóttari en ella.
    Þá hvetur 1. minni hluti ríkisstjórnina til að falla frá fyrirhuguðum skatta- og gjaldahækkunum sem boðaðar eru, enda séu þær ekki til þess fallnar að minnka verðbólguþrýsting og lækka vexti. Í fyrirliggjandi áætlun skortir þess utan áhrifamat á boðuðum breytingum. Sé aukin tekjuöflun nokkuð sem ríkisstjórnin sækist eftir færi betur á því að draga úr íþyngjandi sköttum og opinberum álögum með það að augnamiði að efla innlendan efnahag í gegnum aukna atvinnuþátttöku og verðmætasköpun. Það er einmitt til þess sem tekjur hins opinbera eiga rætur sínar að rekja.

Alþingi, 8. júní 2026.

Guðlaugur Þór Þórðarson, frsm. Berglind Harpa Svavarsdóttir.