Ferill 702. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1326 — 702. mál.
Fyrirspurn
til innviðaráðherra um innleiðingu ákvæðis tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins um ökuskírteini í íslenskan rétt.
Frá Ólafi Adolfssyni.
1. Hyggst ráðherra innleiða í íslenskan rétt ákvæði c-liðar 4. mgr. 6. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2006/126/EB frá 20. desember 2006 um ökuskírteini, með síðari breytingum?
2. Ef svarið er já, hvenær gerir ráðherra ráð fyrir að innleiðingunni verði lokið þannig að íslenskir borgarar geti á henni byggt?
3. Ef svarið er nei, á hvaða röksemdum byggist neikvæð afstaða ráðherra til innleiðingarinnar?
Skriflegt svar óskast.