Ferill 230. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1327  —  230. mál.

3. umræða.


Breytingartillaga


við breytingartillögu á þingskjali 1313 [Brottfararstöð].

Frá Grími Grímssyni.


    2. tölul. orðist svo: 10. gr. orðist svo:
    Heimilt er að vista útlendinga annars staðar en á brottfararstöð ef þær aðstæður skapast að óvenjumargir útlendingar bíða brottflutnings og það veldur ófyrirséðu álagi á brottfararstöð og starfsfólk þess. Óheimilt er að víkja frá 4. mgr. 7. gr. þrátt fyrir slíkar aðstæður.

Greinargerð.

    Lögð er til breyting á útfærslu breytingartillögu við 10. gr. frumvarpsins á þingskjali 1313. Í stað þess að fella brott heimild til að víkja frá 4. mgr. 7. gr. vegna neyðarástands verði kveðið á um að það verði óheimilt. Þannig komi skýrt fram að óheimilt verði að víkja frá ákvæði 4. mgr. 7. gr. um að tryggja aðskildar vistarverur fyrir fjölskyldur með börn þrátt fyrir neyðarástand skv. 10. gr. frumvarpsins.