Ferill 705. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1330 — 705. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um skráningu barna fæddra erlendis í Þjóðskrá Íslands.
Frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur.
1. Hve mörg börn fædd erlendis hafa verið skráð í þjóðskrá á hverju ári á tímabilinu 2010– 2025?
2. Hver er árlegur fjöldi fyrrgreindra barna á tímabilinu 2010–2025;
a. sem átti móður fædda á Íslandi en föður fæddan erlendis?
b. sem átti móður fædda erlendis en föður fæddan á Íslandi?
c. sem átti tvo foreldra fædda erlendis?
d. sem átti tvo foreldra fædda á Íslandi?
e. þar sem ástæða nýskráningar var ættleiðing barns erlendis frá?
f. þar sem ástæða nýskráningar var staðgöngumæðrun?
Skriflegt svar óskast.