Ferill 707. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1332 — 707. mál.
Fyrirspurn
til innviðaráðherra um útgáfu frímerkja.
Frá Karli Gauta Hjaltasyni.
1. Stendur til að óska eftir heimild Byggðastofnunar til að gefa út frímerki í tilefni af almyrkva á sólu sem sjást mun hér á landi 12. ágúst nk.?
2. Stendur til að óska eftir heimild Byggðastofnunar til að gefa út frímerki í tilefni af því að í júlí 2027 verða 400 ár liðin frá Tyrkjaráninu svokallaða?
Skriflegt svar óskast.