Ferill 535. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1335 — 535. mál.
2. umræða.
Breytingartillaga
við frumvarp til laga um innviðafélag.
Frá Jens Garðari Helgasyni.
Við 7. gr.
a. 3. mgr. orðist svo:
Skráður eigandi ökutækis ber ábyrgð á greiðslu veggjalda.
b. Á eftir 3. mgr. komi þrjár nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Ef annar aðili en skráður eigandi skv. 3. mgr. hefur umráðarétt yfir ökutæki samkvæmt samningi við handhafa leyfis til að stunda eignaleigu eða fjármögnunarleigu samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki eða afnotarétt samkvæmt samningi við ökutækjaleigu með starfsleyfi til rekstrar ökutækjaleigu samkvæmt lögum um leigu skráningarskyldra ökutækja hvílir gjaldskyldan, þrátt fyrir 3. mgr., á umráðamanni eða skráðum leigutaka samkvæmt leigusamningi við ökutækjaleigu.
Gjöld skv. 1. og 2. mgr. eru aðfararhæf án undangengins dóms eða sáttar.
Sé annar aðili en skráður eigandi skráður fyrir ökutækinu, sbr. 4. mgr., skal ekki hefja fullnustuaðgerðir, sbr. 5. gr., gagnvart skráðum eiganda fyrr en innheimta hjá umráðamanni eða skráðum leigutaka samkvæmt samningi við ökutækjaleigu telst fullreynd.
c. Á eftir orðinu „gjalda“ í 4. mgr. komi: þ.m.t. ökutækjaleigur.