Ferill 578. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1336  —  578. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Isaksen um hlutlæga mælikvarða, hæfismat og stöðu forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hvaða hlutlægu mælikvarðar voru lagðir til grundvallar við mat á þeirri ákvörðun að endurráða ekki forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri sem ráðherra vísaði til í svari sínu í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi 16. mars sl.?
     2.      Eru þessir mælikvarðar skilgreindir í lögum, reglugerðum, erindisbréfum eða öðrum stjórnsýslugögnum og ef svo er, hvaða?
     3.      Hver voru viðmið eða markgildi fyrir hvern mælikvarða og hvert var vægi þeirra í heildarmati ráðuneytisins?
     4.      Var gerður samanburður við aðrar heilbrigðisstofnanir og ef svo er, hvaða og á hvaða grundvelli?
     5.      Hvernig tengdust þessir mælikvarðar með beinum og rökstuddum hætti þeirri ákvörðun að:
                  a.      auglýsa stöðu forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri, og
                  b.      framlengja ekki skipunartíma starfandi forstjóra?
     6.      Hvaða skrifleg gögn, minnisblöð eða matsskýrslur liggja til grundvallar framangreindu mati?
     7.      Fór fram formlegt hæfismat samkvæmt stjórnsýslulögum, nr. 37/1993, áður en ákvörðun var tekin um að auglýsa stöðu forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri? Ef svo er, með hvaða hætti var metið hvort og þá hvernig reglum stjórnsýslulaga um sérstakt hæfi var fullnægt með hliðsjón af tengslum ráðherra við starfsemi sjúkrahússins?


    Forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri er embættismaður í skilningi 13. tölul. 1. mgr. 22. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Samkvæmt meginreglu 1. mgr. 23. gr. laga nr. 70/1996 skal skipa embættismenn tímabundið, til fimm ára í senn, nema annað sé tekið fram í lögum. Í 2. mgr. 23. gr. sömu laga kemur fram að ráðherra er heimilt að ákveða hverju sinni hvort embætti verði auglýst laust til umsóknar. Skal embættismanni þá tilkynnt í síðasta lagi sex mánuðum áður en skipunartími hans rennur út hvort embættið verði auglýst laust til umsóknar. Sé það ekki gert framlengist skipunartími hans í embætti sjálfkrafa um fimm ár, nema hann óski eftir að láta af störfum.
    Með setningu laga nr. 70/1996 var fallið frá þeirri meginreglu eldri laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins að embættismenn skyldu skipaðir ótímabundið. Hvorki í fyrrnefndri 23. gr. laga nr. 70/1996 né í lögskýringargögnum eru sett nein skilyrði fyrir þeirri ákvörðun ráðherra að auglýsa embætti laust til umsóknar og getur embættismaður því ekki vænst þess að gegna embætti lengur en til fimm ára. Í ákvörðun ráðherra um að auglýsa embætti laust til umsóknar felst því hvorki uppsögn né áminning. Þar af leiðandi er slík ákvörðun ekki stjórnvaldsákvörðun í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga og er ráðherra því ekki bundinn af málsmeðferðarreglum stjórnsýslulaga við töku hennar.
    Til áréttingar skal tekið fram að ráðherra tók ekki ákvörðun um að endurráða ekki forstjórann, heldur var eingöngu tekin ákvörðun um að auglýsa embætti forstjóra laust til umsóknar þegar skipunartími forstjóra rynni út. Þáverandi forstjóra var því frjálst að sækja um starfið en kaus þess í stað að segja starfi sínu lausu. Þar sem fyrirspurnin virðist að miklu leyti byggja á þeim misskilningi að um sérstaka ákvörðun hafi verið að ræða um að endurráða ekki tiltekinn einstakling og að um hana hafi gilt stjórnsýslulög er ekki unnt að svara fyrirspurninni nema að hluta.
    Við mat á því hvort ráðherra hyggist auglýsa laust embætti þegar skipunartími embættismanns er að renna út er horft til margra sjónarmiða og heildstætt mat lagt á hvort tilefni sé til að auglýsa. Þau sjónarmið sem almennt er litið til, og dómstólar hafa staðfest að teljist málefnaleg, eru m.a. frammistaða í starfi, eins og rekstrarvandi stofnunar, samskiptavandi við aðra starfsmenn eða stjórn stofnunar, sbr. dóm Landsréttar í máli nr. 829/2019. Í þessu sambandi má benda á að í erindisbréfi forstjóra er sérstaklega tekið fram að hann beri ábyrgð á því að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma séu í samræmi við fjárlög. Jafnframt getur slík ákvörðun byggst á þeirri almennu afstöðu að eðlilegt sé að auglýsa embætti að loknum skipunartíma án þess að ráðherra hafi nokkuð út á störf viðkomandi að setja, sbr. til hliðsjónar álit umboðsmanns Alþingis í máli nr. 8555/2015. Þá hefur einnig verið staðfest að heimildir ráðherra til að áminna forstöðumenn stofnana vegna frammistöðu í starfi, takmarki ekki svigrúm ráðherra til að auglýsa stöðu að nýju í stað þess að veita forstöðumanni áminningu, sbr. dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. E-5794/2023.
    Síðastnefndur dómur staðfesti að ákvörðun ráðherra um að auglýsa embætti forstjóra heilbrigðisstofnunar hefði verið byggð á málefnalegum sjónarmiðum og að undangenginni fullnægjandi rannsókn. Dómurinn er hins vegar birtur með nafnleynd. Í því sambandi má benda á að skv. 1. mgr. 7. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, tekur réttur almennings til aðgangs að gögnum ekki til gagna í málum sem varða umsóknir um starf, framgang í starfi eða starfssambandið að öðru leyti. Að þessu virtu er ekki talið rétt að veita nákvæmari upplýsingar en að framan er rakið um hvaða sjónarmið lágu til grundvallar ákvörðun um að auglýsa embættið eða hvernig þau voru metin.