Ferill 317. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Prentað upp.

Þingskjal 1337  —  317. mál.
Flutningsmenn.

2. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um opinbera háskóla, nr. 85/2008 (gjaldtökuheimildir).

Frá meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti, Háskóla Íslands, Rannís, Stúdentafélagi Háskólans á Akureyri, Landssamtökum íslenskra stúdenta, íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands, hugvísindasviði Háskóla Íslands og málanefnd Háskóla Íslands.
    Nefndinni bárust 12 umsagnir sem aðgengilegar eru undir málinu á vef Alþingis.
    Með frumvarpinu er lagt til að opinberir háskólar fái heimild til innheimtu skólagjalda af nemendum sem ekki fylgir fjárframlag samkvæmt reglum um fjárframlög til háskóla, nr. 755/2024, sem settar eru á grundvelli 22. gr. laga um háskóla, nr. 63/2006.

Umfjöllun nefndarinnar.
Almennt um heimild til gjaldtöku.
    Með frumvarpinu er lagt til að veita opinberum háskólum heimild til að innheimta skólagjöld af nemendum með ríkisfang utan EES. Um er að ræða heimild til að innheimta þjónustugjöld og því skal fjárhæð skólagjalda ekki vera hærri en sem nemur áætluðum kostnaði við kennslu, rannsóknir og önnur verkefni sem skólarnir veita þeim nemendum sem falla undir ákvæðið. Fjárframlög til háskóla munu ekki skerðast heldur gefst háskólum tækifæri til tekjuöflunar af skólagjöldum. Aukið fjármagn gæti því styrkt gæði náms og rannsókna og leitt til betri aðstöðu og búnaðar.
    Fjöldi erlendra nemenda við íslenska háskóla hefur vaxið jafnt og þétt á undanförnum árum og á það einkum við um nemendur með ríkisfang utan EES og má vænta áframhaldandi fjölgunar þeirra nemenda á næstu árum sem mun leiða til aukins kostnaðar fyrir háskólana en opinbera háskóla hefur skort lagaheimild til að leggja á skólagjöld. Annars staðar á Norðurlöndum greiða nemendur með ríkisfang utan EES skólagjöld í háskólum og það sama gildir um flest önnur lönd í Evrópu.
    Fyrir nefndinni var almennt lögð áhersla á mikilvægi erlendra nemenda og jákvæð áhrif þeirra á íslenskt samfélag og vinnumarkað. Jafnframt var varað við neikvæðum áhrifum frumvarpsins, m.a. þeim áhrifum sem það kann að hafa á efnaminni nemendur, fjölbreytni nemendahópsins sem og á tilteknar deildir og námsleiðir, einkum innan Háskóla Íslands. Í því samhengi var m.a. lagt til að nemendur við tilteknar námsleiðir verði undanþegnir skólagjöldum, svo sem við séríslenskar námsgreinar, m.a. námsleiðina íslensku sem annað mál við Háskóla Íslands sem og nám sem stuðlar að varðveislu og þekkingu á íslensku samfélagi, svo sem meistaranám á sviði íslenskra og norrænna miðaldafræða. Þá var vakin athygli á hlutfalli erlendra nemenda við heimskautarétt við Háskólann á Akureyri.
    Meiri hlutinn telur mikilvægt að kveða á um heimild fyrir opinbera háskóla til innheimtu skólagjalda af nemendum með ríkisfang utan Evrópska efnahagssvæðisins enda ljóst að eftir því sem þeim nemendum fjölgar þarf opinbert framlag til háskólanna að standa undir kostnaði vegna þessara nemenda. Jafnframt undirstrikar meiri hlutinn mikilvægi alþjóðlegs samstarfs íslenskra háskóla fyrir gæði og samkeppnishæfni háskólanna og þau jákvæðu áhrif sem erlendir nemendur hafa á gæði kennslu og rannsóknastarfs sem og fyrir samfélagið allt.

Heimild til niðurfellingar skólagjalda erlendra nemenda með ríkisfang utan EES.
    Í greinargerð með frumvarpinu er fjallað um mikilvægi alþjóðlegra stúdenta sem bæði auðga íslenskt samfélag og stuðla að víðsýni og framþróun háskólasamfélagsins. Því skipti máli að tryggja gott orðspor íslenskra háskóla á alþjóðlegum vettvangi og laða að áhugasama nemendur og hæfileikaríka kennara. Með hliðsjón af því er fyrirhugað, verði frumvarpið að lögum, að veita háskólum heimild í reglum nr. 755/2024 til að ákveða skilyrði fyrir niðurfellingu skólagjalda erlendra nemenda með ríkisfang utan EES í samræmi við reglur sem háskólarnir setja. Er í því samhengi horft til þess hvernig reglur um skólagjöld hafa verið útfærðar annars staðar á Norðurlöndum og með hvaða hætti er leitast við að viðhalda stöðugu hlutfalli erlendra nemenda með styrkjum eða niðurfellingu skólagjalda. Upptaka skólagjalda á Norðurlöndum miðar að því að jafna samkeppnisstöðu háskóla á alþjóðlegum vettvangi og tryggja fjármögnun þeirra en jafnframt að viðurkenna mikilvægi alþjóðlegra nemenda, m.a. með styrkjakerfi til að draga úr neikvæðum áhrifum á aðgengi þeirra.
    Í greinargerð með frumvarpinu er vísað til þess í kafla um mat á áhrifum að gera megi ráð fyrir því að nemendum utan EES við íslenska háskóla kunni að fækka fyrst um sinn, verði frumvarpið að lögum. Þá kunni einhverjar námsleiðir við skólana að tapa rekstrargrundvelli sínum til skamms tíma en hægt verði að bregðast við þeirri stöðu með útfærslu undantekninga í reglum um fjárframlög til háskóla, nr. 755/2024, og heimild háskóla til að fella niður skólagjöld í samræmi við reglur sem háskóli setur.
    Meiri hlutinn áréttar að fyrirhugað er, nái frumvarpið fram að ganga, að gera samhliða breytingar á reglum um fjárframlög til háskóla, nr. 755/2024, þannig að fjármagn fylgi aðeins nemendum með ríkisfang frá landi innan EES, Sviss, Færeyjum og Grænlandi, eða einstökum námsleiðum samkvæmt ákvörðun ráðherra. Þá væntir meiri hlutinn þess að nánar verði útfært í reglunum í hvaða tilvikum verði heimilt að undanþiggja tiltekna erlenda nemendur gjaldtöku, sem ekki fylgir fjárframlag, eftir atvikum á grundvelli einstakra námsleiða, alþjóðlegs samstarfs eða tengsla við landið.

Gildistaka.
    Í frumvarpinu er lagt til að lögin taki gildi 1. júlí 2026 og vísað til þess í greinargerð að þær breytingar sem eru lagðar til komi til framkvæmda frá og með skólaárinu 2026–2027. Fyrir nefndinni komu fram athugasemdir við það að um væri að ræða of skamman fyrirvara til að taka upp skólagjöld fyrir næsta skólaár. Háskóli Íslands benti á að með gildistöku 1. júlí nk. væri lítið sem ekkert svigrúm fyrir skólann til að upplýsa tilvonandi nemendur um skólagjöldin sem og að gera nauðsynlegar reglubreytingar og aðrar ráðstafanir.
    Meiri hlutinn leggur ekki til breytingar á gildistökuákvæði frumvarpsins en áréttar að fyrirhugaðar breytingar á reglum um fjárframlög til háskóla, nr. 755/2024, munu ekki koma til framkvæmda fyrr en skólaárið 2027–2028 svo að frá því skólaári mun fjárframlag ekki lengur fylgja viðkomandi nemendum. Þar af leiðandi mun óbreytt fjármagn fylgja nemendum utan EES fyrir skólaárið 2026–2027 þrátt fyrir gildistöku laganna með hliðsjón af fyrirhuguðum breytingum á reglum um fjárframlög.

    Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.


Alþingi, 9. júní 2026.

Víðir Reynisson,
form., frsm.
Grímur Grímsson. Guðmundur Ari Sigurjónsson.
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir. Sandra Sigurðardóttir. Snorri Másson.