Ferill 551. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1339 — 551. mál.
Svar
innviðaráðherra við fyrirspurn frá Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur um stafrænt fullveldi Íslands.
1. Hvaða gagnavinnsla og gagnageymsla á vegum ráðuneytisins er í skýjum erlendra fyrirtækja? Óskað er eftir upplýsingum um hvort um er að ræða evrópsk fyrirtæki eða bandarísk.
Umbra – þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins gegnir hlutverki þjónustuaðila ráðuneytisins þegar kemur að rekstri skýjalausna. Fyrst og fremst er um að ræða lausnir innan Microsoft 365-skrifstofuhugbúnaðarsvítunnar. Dæmi um lausnir innan Microsoft 365 eru Outlook, Word, Excel, Powerpoint, Teams o.s.frv., sem eru nýttar í daglegum rekstri.
Helstu kerfi ráðuneytisins eru eftirfarandi:
| Hugbúnaður/kerfi | Fyrirtæki | Höfuðstöðvar fyrirtækis | Gögn vistuð | Heimilisfesti endanlegra eigenda |
| Microsoft 365 | Microsoft Írland | BNA | EES | BNA |
| Málaskrá | Hugvit | Ísland | Ísland | Ísland |
| Beiðnakerfi | Freshdesk | BNA | EES | BNA |
2. Hvaða gögn á vegum ráðuneytisins eru geymd í skýjum erlendra fyrirtækja? Óskað er eftir upplýsingum um hvort um er að ræða evrópsk fyrirtæki eða bandarísk.
Gögn ráðuneytisins sem hýst eru í skýjalausnum erlendra þjónustuaðila eru fyrst og fremst til komin vegna almennra daglegra starfa. Þetta eru til að mynda tölvupóstar, skjöl, samskiptagögn, dagatöl, skrár og önnur rekstrargögn sem verða til í daglegri starfsemi.
3. Hefur ráðuneytið skilgreint stafrænt fullveldi í netmiðlun þess?
Ekki hefur verið sett fram ein sameiginleg, formleg skilgreining á stafrænu fullveldi í gagna- og upplýsingamálum ráðuneytanna. Hins vegar taka þau í framkvæmd mið af sömu meginsjónarmiðum, svo sem yfirráðum yfir gögnum, öryggi, aðgangsstýringum, staðsetningu vinnslu og geymslu gagna, samræmi í lausnum og því að verða ekki of háð einstökum þjónustuaðilum.
Umræða um stafrænt fullveldi hefur aukist vegna vaxandi óvissu í alþjóðlegum stjórnmálum. Í því samhengi hefur sjónum verið beint að bandarískri löggjöf sem veitir yfirvöldum heimildir til að afla upplýsinga frá þarlendum fyrirtækjum til að rannsaka glæpi og verjast hryðjuverkum. Þessar heimildir hafa m.a. vakið upp spurningar varðandi persónuverndarsjónarmið þar sem hætta þykir á að bandarísk stjórnvöld geti krafist aðgangs að gögnum evrópskra viðskiptavina. Persónuverndarfulltrúi Stjórnarráðsins hefur nýlega lokið sérstakri greiningu þar sem lagt var mat á heimildir bandarískra yfirvalda til aðgangs að persónuupplýsingum. Niðurstaða þeirrar greiningar var að ekki þykir þörf á frekari athugunum eða sérstöku mati af hálfu Stjórnarráðsins á þessu stigi. Sú niðurstaða byggir að miklu leyti á og er í fyllsta samræmi við viðamiklar greiningar annarra Evrópuþjóða á þessum sömu áskorunum, ekki síst ítarlegt mat hollenskra stjórnvalda á sambærilegum skýjalausnum.
Önnur Evrópuríki eru í svipaðri eða sömu stöðu gagnvart ríkjandi markaðsstöðu bandarískra hugbúnaðarfyrirtækja. Einna helst hefur verið rætt um þjónustu Microsoft í þessu samhengi (Microsoft 365 og Azure) en Amazon Web Services (AWS) og Oracle eru önnur dæmi.
Þótt stjórnvöld séu meðvituð um áhættuna sem fylgir því að eiga í umfangsmiklum viðskiptum við einn stóran þjónustuveitanda er það metið svo að núverandi fyrirkomulag tryggi hærra öryggisstig en væri mögulegt með öðru fyrirkomulagi. Lausnir Microsoft eru í fremstu röð á heimsvísu þegar kemur að öryggisgetu, vöktun og uppfærsluferlum. Val á leyfategundum og útfærslum hefur einnig mótast af ströngum öryggiskröfum og þörf fyrir samræmdar varnir.
Stjórnvöld telja óraunhæft að sinna sambærilegri öryggisvöktun og reglubundnu eftirliti að fullu innanlands. Þar vegur þungt að stórir rekstraraðilar búa yfir getu og sérþekkingu sem nauðsynleg er til að bregðast skjótt við netógnun, t.d. með hröðum uppfærslum og afritun sem styrkir varnir gegn algengum netárásum. Samhliða þessu er einnig lögð áhersla á mótvægisaðgerðir til að auka seiglu og draga úr líkum á þjónusturofi. Til að tryggja rekstrarsamfellu er m.a. mikilvægt að tryggja staðbundna afritun og skýrar viðbragðsáætlanir.
Bæði Microsoft og Amazon hafa skuldbundið sig til að vista gögn ríkisins eingöngu innan Evrópu. Þetta er gert til að tryggja rekstrarþol og endurheimt við þjónusturof, uppfylla lagaskyldur og takmarka áhættu. Í tilfelli Íslands er það Evrópa. Þessu til viðbótar hafa rekstraraðilar opinberra skýjageira hérlendis framkvæmt eigin öryggisafritanir. Stjórnvöld leggja áherslu á að þessar skuldbindingar endurspeglist að fullu í samningsskilmálum. Sjá nánar:
a. Microsoft Data Protection Addendum
b. Microsoft 365 Data Residency
c. Viðbrögð Microsoft við viðskiptarofi
d. Styrkt gagnaþol hjá Microsoft (e. data resilience)
e. Skuldbindingar Microsoft um viðskiptarof á EES
f. AWS European Sovereign Cloud
Stjórnvöld munu áfram fylgjast grannt með tækniþróun á þessu sviði og taka virkan þátt í samstarfi Evrópuríkja til að mæta þessum sameiginlegu áskorunum.
4. Er rótarfang, vefur, póstþjónn eða nafnaþjónn ráðuneytisins og undirstofnana skráður á Íslandi?
Öll lén (rótarföng) ráðuneytisins og undirstofnana eru skráð á Íslandi undir landsléninu .is hjá ISNIC.
Hvað varðar vefi, póstþjóna og nafnaþjóna lýtur það að rekstri og hýsingu þeirrar tækniþjónustu fremur en formlegri skráningu. Eins og rakið er í svörum við 1. og 2. tölul. fyrirspurnarinnar er sú undirliggjandi þjónusta ýmist vistuð hér á landi eða í skýjalausnum þjónustuaðila innan Evrópska efnahagssvæðisins.
Byggðastofnun.
Rótarfang, vefur og nafnaþjónn stofnunarinnar eru skráð á Íslandi. Póstþjónn er í Microsoft-skýjaumhverfi.
Fjarskiptastofa.
Lén (rótarföng): Lén Fjarskiptastofu, pfs.is og fjarskiptastofa.is, eru skráð hjá ISNIC og falla þar með undir íslenska lögsögu.
Nafnaþjónar (DNS): Nafnaþjónar eru hýstir hjá Advania á Íslandi. Umsýsla fer því fram innan lands.
Vefþjónn: Vefur er hýstur hjá Advania á Íslandi sem stendur en stefnt er að flutningi yfir á island.is og er rekstur hans því innan íslensks hýsingarumhverfis.
Póstþjónn: Póstþjónusta er rekin í Microsoft 365 (Exchange Online) og hýst í gagnaverum í Evrópu (EES) í samræmi við samningsákvæði um flutning persónuupplýsinga (svokölluð „EU Model Clauses compliant datacenters“).
Af framangreindu leiðir að kjarnainnviðir (lén, nafnaþjónar og vefþjónusta) eru hýstir á Íslandi. Póstþjónusta er hins vegar hýst innan Evrópska efnahagssvæðisins.
Fyrir liggur að framangreindir innviðir eru ekki hýstir í Bandaríkjunum. Þó ber að hafa í huga að póstþjónustan er rekin af bandarísku fyrirtæki og getur því, eftir atvikum, fallið undir erlenda löggjöf þrátt fyrir að gögn séu vistuð innan Evrópu.
Samgöngustofa.
Rótarfangið Samgöngustofa er skráð hjá ISNIC og eru í eigu Samgöngustofu.
Vefur er hýstur hjá Stafrænu Íslandi.
Póstþjónn er hýstur hjá Microsoft og er partur af M365-svítunni sem ríkið gerði samning um.
Nafnaþjónar Samgöngustofu eru hýstir í vélasal Samgöngustofu.
Vegagerðin.
Póstþjónusta er bæði rekin á eigin póstþjóni á Íslandi og í gegnum Microsoft 365 sem er hýst utan Íslands en innan Evrópska efnahagssvæðisins.
Lénið er skráð á Íslandi hjá ISNIC og nafnaþjónar eru reknir af stofnuninni og hýstir hjá íslenskum þjónustuaðila (Advania).
Rannsóknarnefnd samgönguslysa.
Rótarfang er skráð hjá ISNIC og er skráð á Íslandi.
Vefurinn er vistaður hjá Advania á Íslandi í gagnaveri atNorth (fyrrum Advania data center).
Pósturinn er í Microsoft og vistaður erlendis og nafnaþjónn er í skýi líklega erlendis og þá með spegilmynd á Íslandi.
5. Hefur verið tryggt innan ráðuneytisins að tölvupóstur sé virkur ef samband rofnar við útlönd?
Til er viðbragðsáætlun til að tryggja tölvupóstsamskipti ef samband við útlönd rofnar. Meginþorri tölvupóstþjónustu stjórnvalda er í skýjalausnum utan Íslands og viðbragðsáætlunin tekur mið af tveimur meginsviðsmyndum:
1. Ef hefðbundið netsamband um sæstrengi dettur út hefur Umbra, í samstarfi við Farice, komið á varaleið um gervihnetti sem þegar er komin í prófanir. Þessi leið tryggir að bæði innlend og erlend tölvupóstsamskipti haldi áfram án verulegs rofs. Til lengri tíma litið hefur Ísland einnig tryggt sér aðgang að öruggum fjarskiptatengingum í gegnum gervihnattakerfi Evrópusambandsins sem mun styrkja þessar varnir enn frekar.
2. Ef allt samband rofnar við útlönd, þ.m.t. gervihnattasamband, fellur tenging við skýjalausnir erlendis niður. Í þeirri sviðsmynd tekur við viðbragðsáætlun um að endurreisa staðbundið póstkerfi sem byggir á gagnaafritum sem hýst eru á Íslandi. Slík endurreisn tryggir innlenda tölvupóstþjónustu milli ráðuneytanna og annarra innlendra aðila.