Ferill 635. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1341 — 635. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur um skatta- og gjaldahækkanir.
1. Hvernig skiptist áætluð tekjuaukning ríkissjóðs vegna neðangreindra skatta- og gjaldahækkana niður eftir mánuðum eða ársfjórðungum:
a. veiðigjöld (7,6 milljarðar kr.),
b. vörugjöld á ökutæki (7,5 milljarðar kr.),
c. afnám samnýtingar þrepa (2,8 milljarðar kr.),
d. kílómetragjald (3,3 milljarðar kr.),
e. fjármagnstekjuskattur, hækkun á leigutekjur (1,6 milljarðar kr.),
f. fjármagnstekjuskattur, afnám persónuafsláttar (0,7 milljarðar kr.)?
Í lagafrumvörpum þar sem lagðar eru til breytingar á skattalögum er í sérstökum kafla fjallað um áætluð áhrif breytinganna, þar á meðal á tekjur ríkissjóðs. Tekjuáhrifin eru endurmetin eftir því sem breytingar kunna að vera gerðar á upphaflegri tillögu frumvarps. Tekjuáætlun ríkissjóðs í heild er gerð á ársgrundvelli og hið sama gildir um áætluð tekjuáhrif skattkerfisbreytinga, enda miðast forsendur, bæði hagspá og aðrar, oftast við eins árs tímabil. Óvissa er meiri um hagþróun á skemmri tímabilum innan ársins, svo sem ársfjórðungi eða mánuði, en á heilu ári.
Þær breytingar á skattkerfinu sem spurt er um hafa áhrif til tekjuaukningar árið 2026 og eru ólíkar hvað varðar uppgjörstímabil og tímasetningu álagningar. Í gögnum ráðuneytisins er dreifing tekjuaukningarinnar innan ársins á ársfjórðunga eða mánuði ekki áætluð.
Skýrslur um greiðsluhreyfingar A1-hluta ríkissjóðs, sbr. 60. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015, skulu innihalda samanburð við áætlun og er tekjuáætlun fjárlaga á greiðslugrunni því dreift eftir mánuðum og sú dreifing skráð í gagnagrunn hjá Fjársýslu ríkisins. Sú dreifing inniheldur ekki kerfisbundna aðgreiningu á tekjum sem stafa af lagabreytingu annars vegar og eldri lögum hins vegar.
2. Ef slík áætlun er ekki til, hvernig metur ráðuneytið að hækkanirnar skiptist á ársfjórðunga þannig að hægt sé að gera samanburð á milli áætlunar og rauntalna?
Eins og fram kemur í fyrsta tölulið er tekjuáætlun og tekjuáhrif skattkerfisbreytinga gerð heildstætt fyrir árið enda miðast forsendur við eins árs tímabil. Gögn, reiknilíkön og aðrar aðferðir sem notaðar eru við gerð tekjuáætlunar eru ólíkar og úttaksgögn ólík eftir tegundum tekna; efnahagslegar og aðrar forsendur eru lifandi gögn sem breytast ört, þ.m.t. þróun innan ársins; áhrif lagabreytinga eru metin með mismunandi aðferðum eftir því hvers konar breytingar eru gerðar; og ekki síst að yfirlit um tekjuþróun innan ársins í skýrslum Fjársýslu ríkisins eru á greiðslugrunni, þ.e. sjóðstreymisgrunni og hefur því vöktun með tekjuþróuninni og frávikum frá áætlun eftir tegundum tekna verið fyrst og fremst á þeim grunni. Yfirlit 4 í skýrslum Fjársýslunnar sýnir sundurliðaðar bráðabirgðatölur um tekjur á greiðslugrunni á viðkomandi tímabili. Stefnt er á að slíkt bráðabirgðauppgjör fyrir 1. ársfjórðung 2026 verði birt í júní 2026. Hér má þó einnig nefna að unnið er að því hjá Fjársýslu ríkisins að færa upplýsingar um tekjuþróunina yfir á rekstrargrunn, en megingrunnur tekjuáætlunar fjárlaga er einnig rekstrargrunnur þótt hann sé samkvæmt þjóðhagsreikningastaðli en ekki ársreikningastaðli. Munu slíkar umbætur hjá Fjársýslunni bæta þær upplýsingar sem aðgengilegar eru um fjármál ríkisins innan ársins.
3. Að hve stórum hluta hafa tekjur vegna tilgreindra skatta- og gjaldahækkana skilað sér í ríkissjóð á fyrsta ársfjórðungi þessa árs, sundurliðað eftir tilgreindum skatta- og gjaldahækkunum?
Eins og fram kemur í svörum við 1. og 2. tölulið eru upplýsingar í skýrslum Fjársýslu ríkisins um tekjur ríkissjóðs innan ársins sundurliðaðar eftir tegundum tekna en ekki nánar þannig að tekjuáhrif nýjustu lagabreytinga séu aðgreinanleg frá tekjum að öðru leyti. Einnig kemur fram að skýrsla um 1. ársfjórðung 2026 er væntanleg í júní 2026.
4. Hve stór hluti af áætluðum tekjum ríkissjóðs 2026 vegna tilgreindra skatta- og gjaldahækkana er áætlað að komi til innheimtu á árinu 2027 og hvernig skiptast þær tekjur niður eftir tilgreindum skatta- og gjaldahækkunum?
Tekjuaukning í liðum c., e. og f., þ.e. afnám samnýtingar þrepa, afnám nýtingar ónýtts persónuafsláttar upp í greiðslu fjármagnstekjuskatts og minni frádráttarheimild af leigutekjum, er vegna lagabreytinga sem hafa áhrif á álagningu tekjuskatts og fjármagnstekjuskatts einstaklinga. Þessar breytingar hafa ekki áhrif á álagningu samkvæmt lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda, nr. 45/1987, og lögum um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur, nr. 94/1996, nema í undantekningartilvikum. Áhrifin munu því koma fram í álagningu opinberra gjalda á einstaklinga í maí 2027 vegna tekjuársins 2026. Við álagninguna má segja að um sé að ræða uppgjör einstaklinga og ríkissjóðs þar sem inneign eða skuld myndast á milli aðila. Er það gert upp með útgreiðslu, innheimtu eða eftir atvikum skuldajöfnun. Tekjuáhrifin verða því engin á mánaðarlegt sjóðsstreymi yfir árið 2026, hvorki fyrir einstaklinga né ríkissjóð. Fyrir ríkissjóð snúa áhrifin í meginatriðum að útgreiðslum í kjölfar álagningar.
Framsetning tekjuáætlunar ríkissjóðs er byggð á alþjóðlegum staðli um opinber fjármál (GFS). Grunnur staðalsins er rekstrargrunnur, sem felur í sér að tekjur eru færðar á þeim tíma þegar krafa til þeirra myndast en ekki þegar álagning á sér stað. Hafa breytingar vegna þessara viðmiða um færslu tekna hjá opinberum aðilum verið innleiddar á undanförnum árum í ársuppgjör ríkisins hjá Fjársýslu ríkisins og vísast til ríkisreiknings 2023 og 2024 í því efni.
Í samræmi við framangreint eru áætlaðar tekjur hjá ríkissjóði á rekstrargunni árið 2026 vegna framangreindra breytinga á tekjuskatti og fjármagnstekjuskatti einstaklinga, en tekjuáætlunin á greiðslugrunni inniheldur hins vegar ekki tekjur vegna breytinganna fyrr en árið 2027.