Ferill 580. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1345  —  580. mál.

2. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til laga um barnavernd.

Frá meiri hluta velferðarnefndar.
    


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá mennta- og barnamálaráðuneyti, Barna- og fjölskyldustofu, barnavernd Reykjavíkur, umdæmisráði barnaverndar Reykjavíkur, Einhverfusamtökunum, embætti landlæknis, Félagsráðgjafafélagi Íslands, Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, Landspítala, lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, umboðsmanni barna, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, velferðarsviði Akureyrarbæjar, velferðarsviði Reykjavíkurborgar, Landssamtökunum Þroskahjálp, ÖBÍ réttindasamtökum og ungmennaráði Barnaheilla.
    Nefndinni barst 21 umsögn auk fjögurra minnisblaða frá mennta- og barnamálaráðuneyti og eru gögnin aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
    Með frumvarpinu er lagt til að setja ný heildarlög um barnavernd sem taki við af gildandi barnaverndarlögum, nr. 80/2002. Árið 2018 hófst vinna við endurskoðun á lagaumhverfi þjónustu við börn. Hluti af verkefninu fól í sér heildarendurskoðun barnaverndarlaga og í lok árs 2020 var fyrirséð að ekki næðist að leggja fram frumvarp til nýrra heildarlaga um barnavernd. Var því lagt fram frumvarp, sem var samþykkt sem lög nr. 107/2021, sem fól í sér verulegar breytingar á barnaverndarlögum. Í greinargerð með því frumvarpi kom fram að frumvarpið fæli í sér fyrri hluta vinnu við endurskoðun barnaverndarlaga og gert væri ráð fyrir að síðari hluti endurskoðunarinnar færi fram í framhaldinu. Fyrirliggjandi frumvarp er að meginstefnu í samræmi við þá áætlun og felur í sér ný heildarlög eftir heildarrýni á málaflokknum. Þó er ekki um að ræða fulla endurskoðun á öllum þáttum barnaverndarlaga.

Umfjöllun nefndarinnar.
Hugtakið barn með fjölþættar stuðningsþarfir (4. tölul. 3. gr.).
    Fyrir nefndinni var fjallað um að skýra þyrfti nánar til hvaða hóps barna væri vísað þegar rætt væri um börn með fjölþættar stuðningsþarfir í skilningi 4. tölul. 3. gr. frumvarpsins. Í skýringum við ákvæðið kemur fram að lögð hafi verið sérstök áhersla á mikilvægi þess að skilgreina hugtakið út frá skyldum ríkisins til að byggja upp vistunarúrræði fyrir þennan hóp. Lagt er til að skilgreiningin miði við að hópi barna með fjölþættar stuðningsþarfir tilheyri þau börn sem hafa þörf fyrir langvarandi og fjölþættan stuðning, eftirfylgd og búsetu utan heimilis vegna flókinnar og samsettrar röskunar í tauga- og vitsmunaþroska sem er til þess fallin að valda því að barnið stofni heilsu sinni og þroska eða annarra í hættu. Í tilteknum umsögnum komu þó fram ábendingar um að skilgreiningin í ákvæðinu væri of víðtæk og að hætta væri á ósamræmi við túlkun hennar.
    Í minnisblaði mennta- og barnamálaráðuneytis, dags. 28. apríl 2026, tekur ráðuneytið undir það sjónarmið að skilgreining frumvarpsins á börnum með fjölþættar stuðningsþarfir sé opin. Bendir ráðuneytið þó á að unnið hafi verið að ítarlegri skilgreiningu í reglugerð um málsmeðferð við ákvörðun um vistun barna með fjölþættar stuðningsþarfir í sérhæfðum vistunarúrræðum á vegum ríkisins. Bendir ráðuneytið á mikilvægi þess að skilgreining á börnum með fjölþættar stuðningsþarfir sé í samræmi við skilgreiningu reglugerðarinnar, telji nefndin ástæðu til að gera breytingu á 4. tölul. 3. gr. frumvarpsins.
    Meiri hlutinn tekur undir það sjónarmið að skerpa megi á skilgreiningu hugtaksins. Að mati meiri hlutans er þó rétt að kveðið verði á um hugtakið með þeim hætti sem frumvarpið leggur til og það síðan útfært með nánari hætti í áðurnefndri reglugerð sem ráðuneytið setur. Meiri hlutinn telur mikilvægt að samráð sé haft við sveitarstjórnarstigið og veitendur þjónustu við vinnslu reglugerðarinnar og að skilgreining í reglugerð verði endurskoðuð ef tilefni þykir til í samvinnu við þessa aðila.

Niðurfelling umdæmisráða barnaverndar (13. og 14. gr.).
    Fyrir nefndinni var fjallað um barnaverndarráð og niðurfellingu umdæmisráða barnaverndar, sbr. 13. og 14. gr. frumvarpsins. Með frumvarpinu er lagt til að umdæmisráð barnaverndar verði sameinuð í eitt barnaverndarráð og verkefnið fært frá sveitarfélögum til ríkisins. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að breytingunni sé ætlað að tryggja samræmi og skýra stöðu ráðsins innan stigskiptrar stjórnsýslu ríkisins í ljósi þeirra áskorana sem myndast hafa vegna mismunandi reglna um rekstur og málsmeðferð umdæmisráða sem leitt hafa til misræmis við vinnslu sambærilegra mála.
    Í umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga er bent á að með einu ráði náist aukin samræming yfir landið auk þess sem ná megi fram hagræðingu með færslu verkefnisins til ríkisins. Vanda þurfi þó til verka við undirbúning starfsemi Barnaverndarráðs og tryggja fullnægjandi afgreiðslu mála. Í umsögnum Velferðarsviðs Akureyrarbæjar komu þó fram ábendingar um að breytingin mætti ekki leiða til skertrar þjónustu til fjölskyldna á landsbyggðinni. Þá þyrfti að tryggja að málsmeðferð og úrvinnsla mála tefjist ekki með einu barnaverndarráði og að sú sérfræðiþekking sem byggst hefur upp í umdæmisráðunum tapist ekki. Í umsögn umdæmisráðs barnaverndar Reykjavíkur voru sambærileg sjónarmið höfð uppi og lýsti ráðið áhyggjum sínum af skertri þjónustu á landsbyggðinni við niðurfellingu umdæmisráðanna.
    Í minnisblaði mennta- og barnamálaráðuneytis, dags. 4. maí 2026, kemur fram að ráðuneytið telji breytinguna vera til þess fallna að auka skilvirkni og hraða málsmeðferð. Þá kemur fram í minnisblaði þess, dags. 28. apríl 2026, að tillögur um stofnun barnaverndarráðs hafi verið unnar í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga. Byggjast þær m.a. á upplýsingum um reynslu af starfsemi umdæmisráða barnaverndar. Tekur ráðuneytið undir með sambandinu að með einu barnaverndarráði á vegum ríkisins megi auka samræmingu á landsvísu og mikilvægt sé að undirbúningur að starfsemi ráðsins verði vandaður. Ráðuneytið leggur þó til breytingu er varðar skýrari kröfur um fagþekkingu þeirra sem sitja í ráðinu en fjallað verður nánar um það í kafla þess efnis í breytingartillögum.
    Meiri hlutinn tekur undir sjónarmið ráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga og leggur áherslu á að þjónusta við landsbyggðina skerðist ekki með einu barnaverndarráði heldur auki skilvirkni og hraði málsmeðferð. Þá undirstrikar meiri hlutinn það sem fram kemur í greinargerð með frumvarpinu að breytingunni sé ætlað að tryggja aukið samræmi og samræmda þjónustu fyrir landið allt.

Vinnsla persónuupplýsinga (49., 87. og 91. gr.).
    Nefndin fjallaði um persónuverndarsjónarmið, einkum með hliðsjón af umsögn Persónuverndar er varðar 49., 87. og 91. gr. frumvarpsins. Fjallað er um samstarf barnaverndaryfirvalda og vinnslu persónuupplýsinga í XII. kafla frumvarpsins. Fram kemur í greinargerð með frumvarpinu að lagðar séu til auknar heimildir til barnaverndarþjónustu til að miðla upplýsingum til annarra aðila sem veita börnum þjónustu. Markmiðið sé að tryggja að unnt sé að taka ákvarðanir um stuðning og þjónustu við barnið með hliðsjón af því sem er því fyrir bestu.
    Í 87. gr. frumvarpsins er kveðið á um að barnaverndaryfirvöld skuli eiga samstarf sín á milli. Þá sé barnaverndarþjónustu heimilt að skiptast á upplýsingum um öll barnaverndarmál. Í umsögn Persónuverndar komu fram athugasemdir við heimildir barnaverndarþjónustu til að skiptast á upplýsingum samkvæmt ákvæðinu, þar sem bent var á að 15. gr. gildandi barnaverndarlaga fæli í sér ítarlegri og takmarkaðri ákvæði. Með hinu nýja ákvæði lægju engin mörk um upplýsingaskipti milli barnaverndarþjónustna en gera mætti ráð fyrir því að þær upplýsingar varði óhjákvæmilega viðkvæmar persónuupplýsingar í skilningi laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018. Því væri nauðsynlegt að vinnsla slíkra upplýsinga samræmdist persónuverndarlögum. Til samanburðar mætti líta til 88. gr. frumvarpsins, sem fjallar um samstarf barnaverndaryfirvalda við yfirvöld annarra ríkja, þar sem samskipti geti eingöngu átt sér stað, sé það barninu fyrir bestu.
    Í minnisblaði mennta- og barnamálaráðuneytis, dags. 28. apríl 2026, er áréttað að barnaverndarþjónustur séu svæðisbundin stjórnvöld sem starfa eftir sömu reglum um land allt. Mikilvægt sé að stjórnvöld sem sinni sambærilegum verkefnum geti aflað nauðsynlegra upplýsinga um meðferð mála, meðal annars til að tryggja samfellu þegar fjölskyldur flytja milli umdæma. Um sé að ræða upplýsingaskipti milli starfsfólks sem lýtur sömu reglum um þagnarskyldu. Þá sé ekki um að ræða takmarkalausa heimild til vinnslu persónuupplýsinga, enda gildi ávallt krafa um nauðsyn og meðalhóf vinnslu.
    Meiri hlutinn tekur undir sjónarmið ráðuneytisins og telur mikilvægt að barnaverndarþjónustur geti aflað og miðlað nauðsynlegum upplýsingum sín á milli. Þá bendir meiri hlutinn á að upplýsingaskipti við barnaverndaryfirvöld í öðrum löndum skv. 88. gr. frumvarpsins séu annars eðlis og því ekki rétt að sömu reglur gildi um slík upplýsingaskipti og um upplýsingaskipti milli staðbundinna íslenskra stjórnvalda sem fara með sömu verkefni. Í því samhengi bendir meiri hlutinn sérstaklega á að reglan um að ekki skuli miðla upplýsingum ef samskipti myndu stofna barni í hættu eða ógna frelsi eða lífi aðstandenda á sér hliðstæðu í lögum um útlendinga, nr. 80/2016, og í flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna.
    Meiri hlutinn bendir einnig á að upplýsingamiðlun milli umdæma eigi einnig við um upplýsingamiðlun innan umdæma barnaverndarþjónustu. Um sé að ræða nauðsynlega upplýsingamiðlun sem varðar verulega almannahagsmuni, þar sem þegar eru til staðar viðeigandi sértækar ráðstafanir, svo sem ákvæði um þagnarskyldu starfsfólks og meginreglur laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga um nauðsyn og meðalhóf við vinnslu.
    Að því virtu telur meiri hlutinn ekki ástæðu til að setja ítarlegri skorður í ákvæðið um miðlun upplýsinga milli umdæma barnaverndarþjónustu en gilda um miðlun innan umdæma. Meiri hlutinn leggur þó áherslu á að miðlun skuli eingöngu fara fram að undangengnu mati á því hvort slík miðlun sé nauðsynleg og leggur því til breytingu þess efnis við 87. gr. frumvarpsins sem fjallað verður nánar um undir breytingartillögum við kafla þess efnis.
    Þá er í 91. gr. frumvarpsins fjallað um upplýsingagjöf barnaverndarþjónustu. Í 1. mgr. ákvæðisins er kveðið á um skyldu þeirra sem veita heilbrigðis- og félagsþjónustu til að láta í té upplýsingar og afrit af nauðsynlegum gögnum um hagi barns, foreldra þess og aðra heimilismenn, með upplýsingum sem skipt geta máli fyrir úrlausn barnaverndarmáls. Í 2. mgr. er kveðið á um að þjónustunni sé heimilt að láta framangreindum aðilum í té upplýsingar og gögn ef rík barnaverndarsjónarmið mæla með því.
    Í umsögn Persónuverndar komu fram sjónarmið um hvort skýra mætti nánar í 2. mgr. 91. gr. hvaða upplýsingum væri heimilt að miðla frá barnaverndarþjónustu. Í umræddu minnisblaði ráðuneytisins er bent á að ákvæðið sé nær samhljóða 44. gr. gildandi barnaverndarlaga og feli ekki í sér rýmri vinnslu persónuupplýsinga en þegar er heimil. Þá er lögð áhersla á að öll vinnsla persónuupplýsinga innan barnaverndarþjónustu verði að vera í samræmi við meginreglur persónuverndarréttar, þar á meðal kröfu um nauðsyn vinnslu. Að því virtu telji ráðuneytið ekki nauðsynlegt að gera breytingar á frumvarpinu hvað þessi sjónarmið varðar en það hafi þau til hliðsjónar í áframhaldandi vinnu, svo sem við gerð reglugerða.
    Meiri hlutinn beinir því til ráðuneytisins að meta hvort ástæða sé til að afmarka enn frekar, svo sem með reglugerð, leiðbeiningum eða öðru stuðningsefni, þær upplýsingar og gögn sem heimilt er að miðla frá barnaverndarþjónustu skv. 2. mgr. 91. gr. frumvarpsins. Jafnframt hvort þar skuli árétta trúnaðar- og þagnarskyldu þeirra sem kunna að taka á móti slíkum upplýsingum og gögnum.
    Að lokum leggur meiri hlutinn áherslu á að fram fari mat á áhrifum frumvarpsins á persónuvernd vegna rafrænnar vöktunar hjá ábyrgðaraðila skv. 49. gr. frumvarpsins, líkt og bent er á í umsögn Persónuverndar.

Beiting þvingunar í vistunarúrræðum (VII. kafli).
    Í VII. kafla er m.a. að finna reglur sem gilda um beitingu nauðungar í vistunarúrræðum. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að með því er lagt til að gjörbreyta lagaumhverfi sem gildir um þvingun í vistunarúrræðum á vegum barnaverndar með áherslu á ítarlegri, skýrari og fyrirsjáanlegri lagareglur. Þar á meðal er lagt til að skýra hugtakið þvingun, svo og hver geti tekið ákvarðanir um slíkar ráðstafanir, í hvaða tilvikum og að hvaða skilyrðum uppfylltum, auk þess sem fjallað er um réttindi barna almennt og við meðferð slíkra mála, til að mynda hvað varðar endurskoðun ákvörðunar um beitingu þvingunar.
    Að mati meiri hlutans felur kaflinn í sér mikilvæga réttarbót þegar kemur að reglum um þvingun gagnvart börnum. Almennt er lagt bann við beitingu þvingunar nema að ákveðnum skilyrðum uppfylltum og ef nauðsyn ber til. Meiri hlutinn telur þó nauðsynlegt að gera nokkrar breytingar til að tryggja réttindi barna við slíkar aðstæður sem nánar er greint frá í kafla um breytingartillögur.

Fóstur (VIII. kafli).
    Fyrir nefndinni komu fram athugasemdir við VIII. kafla frumvarpsins sem fjallar um fóstur. Komu fram athugasemdir við þau ákvæði kaflans sem fela í sér breytingu frá núgildandi barnaverndarlögum. Í umsögn barnaverndar Reykjavíkur eru gerðar athugasemdir við að frumvarpið geri ráð fyrir tíðari lágmarksheimsóknum á fósturheimili og bent á að leggja skuli ríkari áherslu á þátttöku og ábyrgð ríkisins varðandi eftirlit með gæðum barnaverndarþjónustu. Að mati barnaverndar Reykjavíkur er brýn þörf fyrir ítarlegri ramma um ytra eftirlit og ekki síst eflingu eftirlitshlutverks Gæða- og eftirlitsstofnunar.
    Þá bentu margir umsagnaraðilar á að brýnt væri að taka fósturkaflann til heildarendurskoðunar. Barnavernd Reykjavíkur benti á að það skuli gert ekki síst með tilliti til dóma Mannréttindadómstóls Evrópu um að ávallt skuli með vistun utan heimilis og fóstri stefna að fjölskyldusameiningu.
    Í umsögn Gæða- og eftirlitsstofnunar kemur fram að stofnunin fagni því sérstaklega að frumvarpið geri auknar kröfur til eftirlits barnaverndarþjónustu sem ráðstafi barni í vistun eða fóstur en stofnunin telji ljóst að ýmsu hafi verið ábótavant í tengslum við slíkt innra eftirlit hjá barnaverndarþjónustum. Bendir stofnunin á í því sambandi að hjá stofnuninni séu í vinnslu fyrstu drög að verkefna- og tímaáætlun um gerð gæðaviðmiða í barnavernd ásamt áætlun um samstarf við hagsmunaaðila og um innri og ytri kostnað. Gera megi ráð fyrir að umræddar áætlanir liggi fyrir innan nokkurra vikna en stofnunin telji að gerð og innleiðing gæðaviðmiða í barnavernd geti skipt miklu máli við framangreint innra eftirlit barnaverndarþjónustu. Þá áréttar stofnunin að mikil þörf sé á að endurskoða reglugerð um fóstur, nr. 804/2004, en þar sé m.a. kveðið á um eftirlit.
    Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að þótt um sé að ræða ný heildarlög sé ekki um að ræða fulla heildarendurskoðun á öllum þáttum barnaverndarlaga. Þá kemur fram að undanfarið hafi verið mikil samfélagsumræða um börn í fóstri á vegum barnaverndaryfirvalda. Í þeirri umræðu hafi komið fram gagnrýni á fyrirkomulag fósturs, einkum eftirlit með fósturheimilum. Ákveðið hafi verið að gera úttekt á stöðu fósturmála hér á landi og vera kunni að niðurstöður þeirrar úttektar kalli á breytingar á lögum og reglugerðum. Kemur fram að þótt þessi úttekt liggi ekki fyrir sé talið mikilvægt að í frumvarpinu sé brugðist við gagnrýni á eftirlit með fósturheimilum, einkum tíðni eftirlits og möguleika barna á að segja frá því ef þau búa við óviðunandi aðstæður.
    Í kafla 3.12. í greinargerð með frumvarpinu er fjallað um þær breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu á reglum um fóstur. Þar kemur fram að þar sé einkum horft til reglna um réttindi barna, þar á meðal um möguleika þeirra á að segja frá aðstæðum sínum. Þá sé lagt til að skýra reglur um eftirlit barnaverndarþjónustu með fósturheimilum. Þar á meðal sé lagt til að fjölga skyldubundnum heimsóknum barnaverndarþjónustu á fósturheimili í fjórar heimsóknir fyrstu tvö árin og tvær heimsóknir á ári eftir það.
    Í minnisblaði frá mennta- og barnamálaráðuneyti, dags. 26. apríl 2026, er fjallað um þær athugasemdir í umsögnum við málið um að frumvarpið feli ekki í sér nægar breytingar á reglum um fóstur, þar á meðal um eftirlit með fósturheimilum. Í minnisblaðinu kemur fram að frá því að drög að frumvarpinu voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda hafi verið gerðar nokkrar breytingar á kafla frumvarpsins um fóstur. Í mars 2026 hafi ráðuneytið haldið vinnustofu um umbætur í málefnum fósturbarna þar sem m.a. hafi verið fjallað um þær breytingar á reglum um fóstur sem í frumvarpinu felast. Niðurstaða vinnustofunnar hafi verið að með markvissum aðgerðum væri unnt að styrkja þjónustu í fóstri, bæta stuðning við fósturforeldra og auka gagnsæi og skilvirkni í stjórnsýslu málaflokksins. Frekari lagabreytingar væru ekki brýnasta úrlausnarefnið heldur væri unnt að ráðast í margvíslegar úrbætur á grundvelli gildandi laga og þeirra breytinga sem frumvarp þetta feli í sér. Að mati ráðuneytisins væri því ekki þörf á frekari lagabreytingum á þessu stigi til að ná fram úrbótum í fósturmálum. Athugasemdir um hlutverk og ábyrgð ríkisins þegar kæmi að eftirliti með fóstri yrðu teknar til frekari skoðunar.
    Í minnisblaði frá mennta- og barnamálaráðuneyti, dags. 5. júní 2026, upplýsir ráðuneytið um að á vormánuðum ársins 2026 hafi farið fram vinna sem miði að því að bæta umgjörð fósturs hér á landi, m.a. með athugun Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála á stöðu barna í fóstri. Ráðuneytið hafi jafnframt haldið vinnustofu um börn í fóstri og unnið sé að aðgerðaáætlun í samræmi við niðurstöður hennar. Þá upplýsir ráðuneytið um að samráð sé hafið vegna áforma um nýja reglugerð um fóstur. Þegar hafi farið fram nokkrir samráðsfundir og fleiri séu fyrirhugaðir á næstunni. Á þeim fundum hafi komið fram mikilvægar ábendingar um það sem betur megi fara. Þá kom fram að ráðuneytið teldi ljóst að innan ramma frumvarpsins væri unnt að gera ýmsar breytingar sem gagnast fósturbörnum og fósturforeldrum og slíkum aðgerðum yrði forgangsraðað á þessu ári. Samhliða yrði unnið að frekari breytingum á fósturkafla barnaverndarlaga sem gætu litið dagsins ljós á næsta ári.
    Meiri hlutinn tekur undir sjónarmið ráðuneytisins og telur margt hægt að aðhafast til að bæta eftirlit og vinnslu fósturmála almennt á grundvelli þeirra reglna sem kveðið er á um í fyrirliggjandi frumvarpi. Meiri hlutinn telur brýnt að ráðuneytið yfirfari þær reglugerðir er varða fóstur og eftirlit með því í þeim tilgangi að bæta umgjörðina. Þá telur meiri hlutinn mikilvægt að leitað sé leiða til að styrkja barnaverndaryfirvöld sem sinni eftirliti og almennri vinnslu fósturmála, svo sem Gæða- og eftirlitsstofnun, Barna- og fjölskyldustofu, barnaverndarráð og barnaverndarþjónustur sveitarfélaganna svo þeim sé kleift að styðja hver við aðra.
    Þá tekur meiri hlutinn undir með ráðuneytinu varðandi endurskoðun á VIII. kafla frumvarpsins um fóstur og hvetur til þess að sú vinna verði sett í forgang og að náið samráð verði haft við helstu hagaðila, einkum þau yfirvöld sem starfa á sviði málaflokksins sem og þá sem hafi persónulega reynslu af fósturkerfinu. Við endurskoðun skuli ráðuneytið taka mið af þeim úttektum sem þegar hafi verið gerðar á málaflokknum svo sem úttekt Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála. Mikilvægt sé að ráðuneytið viðhafi gott samráð við helstu hagaðila og horft verði til nýlegra breytinga á barnaverndarmálum í Noregi við endurskoðunina.
    Meiri hlutinn leggur áherslu á að frumvarpið kveði á um ný heildarlög sem varði einn viðkvæmasta hóp samfélagsins. Þá liggur fyrir að endurskoðun á VIII. kafla er þegar hafin í mennta- og barnamálaráðuneytinu. Í ljósi framangreinds telur meiri hlutinn æskilegt að kveðið verði á um lögbundna eftirfylgni með framkvæmd laganna í frumvarpi þessu þannig að ráðherra verði falið að upplýsa Alþingi að 12 mánuðum liðnum frá gildistöku laganna um framkvæmdina. Þá verði ráðherra einnig falið að fjalla um framvindu málaflokksins og hvað sé fram undan til að bæta umgjörð málaflokksins. Telur meiri hlutinn mikilvægt að Alþingi sé upplýst um framvindu málsins og geti þá jafnframt brugðist við ef þörf krefur þegar frekari reynsla verði komin á löggjöfina eftir gildistöku hennar 1. janúar 2027. Leggur meiri hlutinn því til að bæta við bráðabirgðaákvæði um skýrslugjöf ráðherra til Alþingis, sjá nánari umfjöllun í kafla um breytingartillögur.
    Þá telur meiri hlutinn jafnframt rétt að bæta við ákvæði í frumvarpið um að Barna- og fjölskyldustofu sé skylt að gera fósturforeldrum og barnaverndarþjónustum viðvart áður en tímabundin fósturleyfi renna út, sjá nánari umfjöllun í kafla um breytingartillögur.

Ósamræmi milli greinargerðar og frumvarpstexta.
    Við rýni og umfjöllun nefndarinnar kom í ljós ósamræmi milli greinargerðar og frumvarpstexta. Í minnisblaði mennta- og barnamálaráðuneytis, dags. 5. júní 2026, er þess óskað að nefndin ávarpi þetta ósamræmi í nefndaráliti.
    Í skýringum við 8. mgr. 56. gr. er vísað til umfjöllunar í kafla 2.1. í greinargerð með frumvarpinu um að tekin hafi verið ákvörðun um að með frumvarpinu yrðu hvorki lagðar til efnislegar breytingar á ákvæðum gildandi barnaverndarlaga sem lúta að samstarfi barnaverndaryfirvalda og heilbrigðisyfirvalda né ákvæðum gildandi laga sem lúta að heilbrigðisþjónustu við börn sem vistuð eru í úrræðum á vegum barnaverndarkerfisins. Meiri hlutinn bendir á að í umræddu minnisblaði ráðuneytisins er þetta leiðrétt og bent á að frumvarpið feli í sér verulegar breytingar á ákvæðum barnaverndarlaga sem lúta að samstarfi barnaverndaryfirvalda.
    Þá er jafnframt um að ræða ósamræmi í skýringum við 75. gr. frumvarpsins, sem fjallar um fjárstyrk handa aðilum til að greiða fyrir lögmannsaðstoð. Í ákvæðinu sjálfu er kveðið á um að barnaverndarþjónusta skuli veita barni og foreldrum sem eru aðilar máls fjárstyrk til að greiða fyrir lögmannskostnað í tengslum við rekstur barnaverndarmáls hjá barnaverndarráði og úrskurðarnefnd velferðarmála, samkvæmt reglum sem þjónustan setur. Í skýringum við ákvæðið kemur hins vegar fram að það taki til lögmannsaðstoðar vegna reksturs máls hjá stjórnvöldum, þar á meðal þegar mál er til meðferðar hjá barnaverndarþjónustu. Bendir meiri hlutinn á að í umræddu minnisblaði ráðuneytisins er þetta atriði leiðrétt þar sem bent er á að barnaverndarþjónustum beri ekki skylda til að veita barni og foreldrum sem eru aðilar máls fjárstyrk og greiða fyrir lögmannskostnað vegna reksturs mála hjá barnaverndarþjónustu.

Breytingartillögur.
Réttindi fatlaðra barna (4. gr.).
    Fyrir nefndinni var fjallað um að gera þyrfti réttindi fatlaðra barna sýnilegri í frumvarpinu. Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks var lögfestur með lögum nr. 80/2025 og því mikilvægt að túlkun og framkvæmd nýrra barnaverndarlaga taki mið af því. Meiri hlutinn leggur jafnframt áherslu á að allar ákvarðanir og ráðstafanir barnaverndaryfirvalda taki mið af einstaklingsbundnu mati og þörfum barns og foreldra hverju sinni og á það jafnt við um fötluð börn og aðra viðkvæma hópa. Þá leggur meiri hlutinn áherslu á að við veitingu barnaverndarþjónustu við fötluð börn þurfi að gæta sérstaklega að stöðu þeirra, réttindum og stuðningsþörfum. Þrátt fyrir lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og vægi þeirra reglna við túlkun lagareglna um barnaverndarþjónustu, telur meiri hlutinn rétt að árétta sérstaklega vægi samningsins þegar kemur að framkvæmd laga um barnavernd og réttindum barns við meðferð barnaverndarmála.
    Að því virtu og í samráði við mennta- og barnamálaráðuneyti leggur meiri hlutinn í fyrsta lagi til breytingu á 1. gr. frumvarpsins þess efnis að við bætist tilvísun til samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Framkvæmd laganna skv. 1. gr. taki þá mið af réttindum barna sem tryggð eru í samræmi við stjórnarskrána og aðrar alþjóðlegar skuldbindingar, einkum samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins og samninginn um réttindi fatlaðs fólks.
    Í öðru lagi leggur meiri hlutinn til að við umfjöllun um réttindi barnsins í 4. gr. frumvarpsins verði sérstaklega tilgreint að fatlað barn njóti réttinda samkvæmt lögunum til fulls og jafns við önnur börn. Um er að ræða beina tilvísun til 1. mgr. 7. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, þar sem fram kemur að gera skuli allar nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja að fötluð börn fái notið mannréttinda og grundvallarfrelsis til fulls og jafns við önnur börn.

Tilkynningarskylda fagfólks (8. gr.).
    Við meðferð málsins í nefndinni var fjallað um breytingar á tilkynningarskyldu til barnaverndar, einkum tilkynningarskyldu fagfólks skv. 8. gr. frumvarpsins. Ákvæðið kveður á um skyldu sem leiðir af aðkomu þeirra að málum barna, foreldra og verðandi foreldra vegna starfa þeirra til að tilkynna barnaverndarþjónustu um tilteknar aðstæður sem eru nánar tilgreindar í 1. mgr. 7. gr. Meðal slíkra aðstæðna skv. 7. gr. eru óviðunandi uppeldisaðstæður, ofbeldi og önnur vanvirðandi háttsemi svo og að heilsu barns og þroska sé stofnað í hættu. Með 8. gr. eru því lagðar til ákveðnar breytingar á orðalagi frá gildandi barnaverndarlögum til að auka skýrleika og samræmingu.
    Í nokkrum umsögnum voru gerðar athugasemdir við tilkynningarskyldu fagfólks þar sem bent var á mikilvægi þess að fagfólk gæti tilkynnt til barnaverndar fyrir hönd stofnunar eða stjórnvalds en ekki í eigin nafni. Í minnisblaði mennta- og barnamálaráðuneytis, dags. 28. apríl 2026, er bent á að hvorki gildandi barnaverndarlög né frumvarpið útiloki að tilkynning sé send fyrir hönd stjórnvalds eða stofnunar. Bendir ráðuneytið á að verklagsreglur um tilkynningarskyldu heilbrigðisstarfsfólks og tilkynningarskyldu starfsmanna leik-, grunn- og framhaldsskóla séu þegar í gildi, þar sem skýrlega komi fram að tilkynning geti verið í nafni stofnunar.
    Með hliðsjón af sjónarmiðum umsagnaraðila og í samráði við ráðuneytið leggur meiri hlutinn því til breytingu á 8. gr. frumvarpsins þannig að skýrlega sé kveðið á um að tilkynning fagfólks samkvæmt ákvæðinu geti verið útfærð með þeim hætti að hún berist barnaverndarþjónustu í nafni stofnunar. Til að tryggja að tilkynningar fari ekki forgörðum leggur meiri hlutinn jafnframt til að fram komi að stjórnvöld og stofnanir skuli ákveða verklag um hvernig tilkynningu verði komið á framfæri fyrir hönd fagfólks sem þar starfar. Þá skiptir máli að verklag um það hvernig tilkynningum er komið á framfæri fyrir hönd fagfólks sé ekki til þess fallið að tefja þau mál sem tilkynnt eru til barnaverndarþjónustu. Er því lagt til að áréttað sé í ákvæðinu að fyrirkomulagið skuli vera til þess fallið að tilkynningu sé komið á framfæri eins fljótt og auðið er.

Fagþekking í barnaverndarráði (13. gr.).
    Með hliðsjón af umfjöllun um barnaverndarráð skv. 13. gr. frumvarpsins komu fram ábendingar í nokkrum umsögnum um að skortur væri á skýrum kröfum í frumvarpinu um fagþekkingu þeirra sem munu eiga sæti í barnaverndarráði. Í minnisblaði mennta- og barnamálaráðuneytis, dags. 28. apríl 2026, tekur ráðuneytið undir þær ábendingar og telur að tilefni sé til að bregðast við með breytingu á ákvæðinu. Að því virtu og í samráði við ráðuneytið leggur meiri hlutinn til breytingu á 2. mgr. 13. gr. frumvarpsins þannig að mælt verði fyrir um að barnaverndarráð skuli í það minnsta vera skipað einum félagsráðgjafa, einum sálfræðingi og einum lögfræðingi. Er sú breyting í samræmi við samsetningu fagfólks í umdæmisráðum barnaverndar sem nú eru starfandi. Þá telur meiri hlutinn rétt að mæla fyrir um tiltekna sérhæfingu í stað þess að mæla fyrir um að fleiri fagstéttir skuli eiga sæti í ráðinu. Að auki leggur meiri hlutinn til breytingu þess efnis að mælt verði fyrir um að ráðherra skuli tryggja að innan ráðsins sé þekking fyrir hendi á meðferð barnaverndarmála, málefnum fatlaðra barna og heilbrigðisþjónustu barna.

Valdsvið barnaverndarþjónustu (18. gr.).
    Í 18. gr. frumvarpsins er fjallað um valdsvið barnaverndarþjónustu. Með 1. mgr. ákvæðisins er kveðið á um að barnaverndarþjónusta í umdæmi þar sem barn á fasta búsetu eigi úrlausn um málefni þess. Þá er kveðið á um að ef það verði talið barni fyrir bestu að mál sé rekið í öðru umdæmi, eða ef barnaverndarþjónusta í öðru umdæmi beri ábyrgð gagnvart barninu, geti viðkomandi umdæmi samið um það sín á milli. Þá er í 2. mgr. lagt til að ráðherra, sem hefur yfirstjórn og eftirlit með barnavernd, leysi úr ágreiningi milli barnaverndarþjónustna um ábyrgð á vinnslu mála.
    Í nokkrum umsögnum komu fram ábendingar um að tafir gætu orðið á vinnslu barnaverndarmála ef upp kæmi vafi um það hvaða umdæmi barnaverndarþjónustu bæri ábyrgð á vinnslu málsins. Því þyrfti að tryggja að mál tefjist ekki á meðan ráðherra leysi úr ágreiningi um ábyrgð á vinnslu mála.
    Meiri hlutinn tekur undir sjónarmið umsagnaraðila og leggur því til breytingu á 2. mgr. 18. gr. í samráði við mennta- og barnamálaráðuneyti þess efnis að komi upp vafi um ábyrgð á vinnslu máls skuli barnaverndarþjónusta í því umdæmi sem barn er staðsett í fara með mál þess meðan leyst er úr slíkum ágreiningi.

Stuðnings- og vistunarúrræði eftir 18 ára aldur (36. gr.).
    Í 36. gr. frumvarpsins er fjallað um meðferð mála barnaverndarþjónustu þegar barn nær fullorðinsaldri. Samkvæmt gildandi lögum hafa tilteknar ráðstafanir á grundvelli laganna haldist eftir að barn nær 18 ára aldri með samþykki þess. Í skýringum við ákvæðið kemur fram að mikilvægt sé að tryggja áframhaldandi stuðning barnaverndaryfirvalda við einstaklinga eftir að þeir ná fullorðinsaldri en erfitt sé að nota sama lagaramma í ljósi þess að börn eiga lögum samkvæmt aukin réttindi umfram fullorðna sem teljast sjálfráða í skilningi laganna. Að því virtu kveður 1. mgr. 36. gr. frumvarpsins á um að barnaverndarþjónusta upplýsi þá sem starfa við félagsþjónustu innan sveitarfélags áður en barn nær 18 ára aldri. Ber þá sveitarfélaginu að meta stuðningsþarfir á grundvelli laga um félagsþjónustu sveitarfélaga og veita þjónustu á grundvelli laga um barnavernd og tryggja þannig þjónustu við fullorðinsaldur. Í 2. mgr. ákvæðisins er þó kveðið á um framlengingu vistunarúrræða frá 18 til 20 ára.
    Í umsögnum velferðarsviðs Akureyrarbæjar og Barna- og fjölskyldustofu komu fram ábendingar um stuðnings- og vistunarúrræði eftir 18 ára aldur. Bent var á mikilvægi þess að hægt væri að framlengja önnur stuðningsúrræði en vistunarúrræði skv. 2. mgr. ákvæðisins. Í undantekningartilvikum gæti reynst nauðsynlegt að hafa svigrúm til að framlengja stuðningsúrræði með samþykki barnsins, til að mynda þegar barn nýtur stuðningsúrræðis ríkisins eða Barnahúss sem ekki er aðgengilegt í gegnum félagsþjónustu. Þá var bent á mikilvægi þess að skýrlega komi fram að ekki sé unnt, þrátt fyrir samþykki ungmennis, að framlengja vistun í búsetuúrræði skv. 35. gr. frumvarpsins sem fjallar um vistun barns utan heimilis vegna fjölþættra stuðningsþarfa, sbr. c-lið 1. mgr. 28. gr. frumvarpsins. Málsmeðferð mála af því tagi geri ekki ráð fyrir því að ráðstöfun á þeim grundvelli haldist eftir 18 ára aldur.
    Að virtum framangreindum umsögnum og í samráði við mennta- og barnamálaráðuneytið leggur meiri hlutinn til breytingar á 2. mgr. 36. gr. frumvarpsins til að taka af allan vafa um að heimilt sé að framlengja stuðningsúrræði barnaverndar fram yfir 18 ára aldur. Þannig er lagt til að í undantekningartilvikum verði heimilt að ákveða að stuðningsúrræði barnaverndar séu framlengd fram yfir 18 ára aldur. Jafnframt er lagt til að tekið verði sérstaklega fram að ekki verði heimilt að framlengja vistun í vistunarúrræði Barna- og fjölskyldustofu fyrir börn með fjölþættar stuðningsþarfir skv. c-lið 1. mgr. 28. gr. frumvarpsins. Slíkt úrræði er þegar til staðar innan þjónustukerfis fyrir fullorðna í skilningi laganna.

Skylda til samþættingar þjónustu (3. mgr. 25. gr.).
    Í 25. gr. frumvarpsins er fjallað um áætlanagerð þegar ástæða er til að beita úrræðum og/eða ráðstöfunum í barnavernd. Í minnisblaði mennta- og barnamálaráðuneytis, dags. 28. apríl 2026, er tekið undir athugasemdir Barna- og fjölskyldustofu um skyldu til samþættingar þjónustu þegar barn er í umsjá eða forsjá barnaverndarþjónustu. Að því virtu og í samráði við ráðuneytið leggur meiri hlutinn til að gerðar verði minni háttar breytingar á 25. gr. þannig að tekinn verði af allur vafi um að ávallt skuli samþætta þjónustu, óháð afstöðu foreldra, þegar barnaverndarþjónusta tekur við umsjá eða forsjá barns. Að öðru leyti fari um samþættingu samkvæmt lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, nr. 86/2021. Um er að ræða reglu sem efnislega er að finna í 1. mgr. 33. gr. gildandi barnaverndarlaga.

Aðkoma Barna- og fjölskyldustofu að ákvörðunum um val á vistunarstað (1. mgr. 34. gr.).
    Í 1. mgr. 34. gr. frumvarpsins er fjallað um val á vistunarúrræðum þegar ákveðið hefur verið, annaðhvort með samþykki eða úrskurði, að barn skuli vistað utan heimilis. Þannig er kveðið á um að barnaverndarþjónusta skuli, eftir atvikum í samráði við Barna- og fjölskyldustofu, velja vistunarúrræði sem best er talið henta þörfum barns hverju sinni.
    Í umsögn velferðarsviðs Akureyrarbæjar er bent á að orðalag 1. mgr. ákvæðisins sé óskýrt um það hvort hafa skuli samráð við Barna- og fjölskyldustofu. Ef skylda er til samráðs verði það að vera skýrt. Að því virtu og í samráði við mennta- og barnamálaráðuneyti leggur meiri hlutinn til breytingu á orðalagi 1. málsl. 1. mgr. 34. gr. til að skýra að sveitarfélög skuli eiga samráð við Barna- og fjölskyldustofu áður en úrræði er valið þegar það á við. Hér er því einkum átt við þau tilfelli þegar og ef til greina kemur að nýta vistunarúrræði Barna- og fjölskyldustofu.

Leit vegna umgengni foreldra og annarra nákominna við barn sem vistað er í vistunarúrræði (43. gr.).
    Í 43. gr. frumvarpsins er fjallað um umgengni foreldra og annarra nákominna við barn sem er vistað í vistunarúrræði. Með umgengni við barn er skv. 1. mgr. átt við samveru og önnur samskipti.
    Til þess að vistunarúrræðum sé kleift að sinna hlutverki sínu telur meiri hlutinn mikilvægt að þeim séu veittar heimildir til að framkvæma líkamsleit og leit í farangri þeirra sem heimsækja börn í vistunarúrræði. Það sé nauðsynlegt svo vistunarúrræði geti komið í veg fyrir að barn fái til sín áfengi og önnur vímuefni, óæskileg lyf, vopn eða aðra hættulega muni svo og til framfylgdar á húsreglum.
    Leggur meiri hlutinn því til að heimild til líkamsleitar og leitar í farangri þeirra sem heimsækja barn í vistunarúrræði verði bætt við 43. gr. frumvarpsins. Meiri hlutinn ítrekar að líkamsleit eða leit í farangri þeirra sem koma í umgengni við barn í vistunarúrræði skuli ávallt framkvæmd með öryggi og velferð barnsins og annarra í vistunarúrræðinu að leiðarljósi.

Veiting heilbrigðisþjónustu í vistunarúrræðum (2. mgr. 44. gr.).
    Í 44. gr. frumvarpsins er fjallað um skipulag og veitingu heilbrigðisþjónustu í vistunarúrræðum. Í 2. mgr. ákvæðisins er kveðið á um heimild starfsfólks í vistunarúrræði og heilbrigðisstarfsmanns til að miðla sín á milli upplýsingum um barnið. Í skýringum við ákvæðið kemur fram að gera megi ráð fyrir því að í flestum tilvikum liggi fyrir að þjónusta við barnið sé samþætt, sbr. lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, nr. 86/2021, og upplýsingamiðlun milli þjónustuveitenda fari þá fram á þeim grundvelli.
    Með hliðsjón af umfjöllun um persónuverndarsjónarmið leggur meiri hlutinn til að afmarka betur upplýsingamiðlun milli starfsfólks vistunarúrræðis og heilbrigðisstarfsmanns í ákvæðinu. Leggur meiri hlutinn því til að í 2. mgr. 44. gr. verði sérstaklega kveðið á um að slík upplýsingamiðlun sé heimil eftir því sem nauðsynlegt er til að tryggja velferð barnsins.

Líkamsrannsókn í vistunarúrræðum (6. mgr. 50. gr.).
    Í 50. gr. frumvarpsins er fjallað um herbergisleit, líkamsleit og líkamsrannsókn vegna barna í vistunarúrræðum skv. VII. kafla frumvarpsins. Í 6. mgr. 50. gr. frumvarpsins er kveðið á um heimild til að óska eftir því að barn gefi öndunar-, munnvatns- eða þvagsýni ef grunur leikur á að það hafi neytt áfengis eða annarra vímuefna. Um framkvæmd lífsýnis gildir 3. mgr. 50. gr. þar sem sett er fram sú regla að leit á barni skuli framkvæmd af tveimur starfsmönnum sama kyns og barn í ljósi þess hve veigamikið inngrip líkamsrannsókn er í friðhelgi barns. Taka lífsýnis úr barni skal því einnig framkvæmd af tveimur starfsmönnum sama kyns og barn skv. 3. mgr. 50. gr. Þá er sérstaklega kveðið á um að starfsfólki úrræða sé óheimilt að þvinga barn, svo sem með líkamlegum tökum, til að gefa lífsýni. Meiri hlutinn bendir á að sama eigi við um andlega valdbeitingu.
    Meiri hlutinn telur rétt að reglur frumvarpsins um framkvæmd líkamsrannsókna séu í samræmi við viðurkennda framkvæmd og taki til þeirra rannsókna sem að jafnaði er notast við í heilbrigðisþjónustu við einstaklinga með áfengis- og vímuefnavanda. Að því virtu leggur meiri hlutinn til að auk öndunar-, munnvatns- og þvagsýna sé heimilt að óska eftir því að barn gefi blóðsýni ef grunur leikur á um áfengis- eða vímuefnaneyslu. Þá leggur meiri hlutinn til að kveðið verði nánar á um í ákvæðinu að taka lífsýna skuli ávallt vera framkvæmd af þar til bærum starfsmanni með viðeigandi þekkingu og hæfni og að ávallt skuli nota öruggan og viðurkenndan búnað við framkvæmdina. Þá skal blóðsýnataka einungis framkvæmd af þar til bærum heilbrigðisstarfsmanni. Þá telur meiri hlutinn rétt að foreldri eða barnaverndarþjónustu verði tilkynnt um ráðstöfun skv. 6. mgr. 50. gr. og leggur því til breytingu þess efnis í 3. mgr. 56. gr. frumvarpsins. Meiri hlutinn undirstrikar að þegar um líkamsrannsókn er að ræða, sem felur í sér inngrip í friðhelgi barns, sé óheimilt að þvinga barn til að gefa lífsýni.
    Þá leggur meiri hlutinn til að kveðið verði sérstaklega á um að tryggja skuli barni nauðsynlega heilbrigðisþjónustu, stafi nauðsyn eftirlits skv. 50. gr. af því að barn í vistunarúrræði sé undir áhrifum áfengis eða ávana- og fíkniefna.

Aðskilnaður og vistun í öryggisrými (54. gr.).
    Í 54. gr. frumvarpsins er fjallað um aðskilnað og vistun barna í öryggisrými ef brýna nauðsyn ber til til að tryggja öryggi barns eða annarra. Í 2. og 3. mgr. ákvæðisins er kveðið á um tímalengd þessarar ráðstöfunar, þ.e. að aðskilnaður barns frá öðrum börnum skuli ekki standa lengur en nauðsyn krefur og ekki lengur en sólarhring samfleytt nema sérstakar ástæður séu fyrir hendi, þó aldrei lengur en þrjá sólarhringa samfleytt. Þegar um ræðir vistun barns í sérstöku öryggisrými skuli slík ráðstöfun ákvörðuð að hámarki í fjórar klukkustundir í senn, ekki standa lengur en nauðsyn krefur og aldrei lengur en í sólarhring samfleytt.
    Í umsögn embættis landlæknis er vakin athygli á að í frumvarpsdrögunum hafi í þáverandi 6. mgr. 56. gr. verið kveðið á um að heilbrigðisstarfsmaður skuli meta ástand barns eftir þörfum. Gerir embættið athugasemdir við að það ákvæði hafi verið tekið út í núverandi 54. gr. frumvarpsins.
    Að mati meiri hlutans er mikilvægt þegar um slíkan aðskilnað eða vistun í öryggisrými er að ræða að skylt sé að þar til bær heilbrigðisstarfsmaður skoði barn sem sætir slíkum ráðstöfunum án tafar. Þá skuli þar til bær heilbrigðisstarfsmaður kanna heilsu barnsins og líðan eins fljótt og unnt er og daglega ef ráðstöfun stendur yfir lengur en í sólarhring. Um er að ræða afar íþyngjandi ráðstöfun gagnvart barni sem eingöngu skuli beitt í undantekningartilvikum og að gættu meðalhófi. Leggur meiri hlutinn til að bætt verði við nýrri málsgrein í ákvæðið sem kveði á um slíka skoðun þar til bærs heilbrigðisstarfsmanns.

Valdbærni og málsmeðferð (56. gr.).
    Í 3. mgr. 56. gr. frumvarpsins er kveðið á um að ráðstafanir skv. 54. gr. um aðskilnað og vistun barns í öryggisrými og 55. gr. um líkamlega valdbeitingu skuli svo fljótt sem kostur er tilkynntar foreldri, barnaverndarþjónustu og þjónustuveitendum eftir því sem við eigi. Við umfjöllun um málið komu fram áhyggjur um að ekki væri kveðið á um hámarksfrest sem vistunarúrræði hafa til að upplýsa foreldra og barnaverndarþjónustu um beitingu þessara ráðstafana.
    Í minnisblaði mennta- og barnamálaráðuneytis, dags. 5. júní 2026, kemur fram að ráðuneytið leggi áherslu á að sé barn beitt þvingun sé nauðsynlegt að upplýsa foreldra, barnaverndarþjónustur og þjónustuveitendur án tafar. Horft sé til þess að tilkynning eigi að berast innan fárra klukkustunda. Telur ráðuneytið mikilvægt að setja ytri tímamörk í þessu sambandi og leggur því til að við 1. málsl. 3. mgr. 56. gr. frumvarpsins bætist að tilkynna skuli að jafnaði innan fjögurra klukkustunda en ávallt innan sólarhrings frá því að ráðstöfun hófst. Meiri hlutinn tekur undir með ráðuneytinu og leggur til breytingu þess efnis.
    Í 7. mgr. 56. gr. frumvarpsins er kveðið á um að aðrar ákvarðanir á grundvelli 49.–55. gr., þ.e. aðrar en sú ákvörðun sem fjallað er um í 6. mgr. 56. gr., séu kæranlegar til úrskurðarnefndar velferðarmála. Telur meiri hlutinn rétt að útfæra ákvæðið með hliðsjón af sambærilegu ákvæði í 2. mgr. g-liðar 4. gr. frumvarps til laga um breytingu á lögum um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997 (319. mál, þskj. 445) sem er til meðferðar hjá Alþingi en sú útfærsla tekur mið af ákvæðum um málskot í lögræðislögum samkvæmt því sem fram kemur í greinargerð þess frumvarps.
    Leggur meiri hlutinn til að málsmeðferð fyrir úrskurðarnefndinni verði flýtt, umfram almennan úrskurðarfrest 3. mgr. 7. gr. laga um úrskurðarnefnd velferðarmála, nr. 85/2015, þegar um ræðir ákveðnar nánar tilgreindar ákvarðanir. Þegar um ræði ákvarðanir á grundvelli 53., 54. og 55. gr. frumvarpsins sé úrskurðarnefnd velferðarmála gert að kveða upp úrskurð innan fjögurra virkra daga frá því að kæra berst, ella falli hin kærða ákvörðun úr gildi. Leggur meiri hlutinn til breytingu á 7. mgr. 56. gr. frumvarpsins þess efnis. Bendir meiri hlutinn á að í framangreindu frumvarpi til laga um breytingu á lögum um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997, er gert ráð fyrir að fjölga nefndarmönnum vegna þess frumvarps um tvo og telur meiri hlutinn því að úrskurðarnefndin hafi burði til að sinna þessu verkefni.
    Í 8. mgr. 56. gr. frumvarpsins er fjallað um heimild ráðherra til að setja reglugerðir um einstök ákvæði VII. kafla frumvarpsins, þar á meðal skráningu, tilkynningar og heilsufarsmat í tengslum við beitingu þvingunar. Að mati meiri hlutans er mikilvægt að heilbrigðisráðherra setji reglugerðir sem varða málefnasvið hans. Að því virtu leggur meiri hlutinn til að taka út orðalag um að ráðherra skuli setja reglugerðir um heilsufarsmat í tengslum við beitingu þvingunar, enda setji heilbrigðisráðherra reglugerð um heilbrigðisþjónustu fyrir börn sem vistuð eru utan heimilis, þ.m.t. um umfang heilsufarsmats skv. 3. efnismgr. 7. tölul. 112. gr. frumvarpsins.

Leyfi til fósturforeldra (59. gr. og 60. gr.).
    Nefndin hefur fjallað um að skilgreina þurfi betur ábyrgð við útgáfu fósturleyfa. Borið hefur á því að fósturleyfi, sem gefin eru út tímabundið til fimm ára, renni út án þess að fósturforeldrum og barnaverndarþjónustu sé gert viðvart. Að því virtu telur meiri hlutinn brýnt að tryggja skilvirkni við útgáfu fósturleyfa, sem og við endurnýjun þeirra, án þess þó að draga úr gæðum. Fjallað er um málsmeðferð leyfisveitinga í 59. gr. frumvarpsins þar sem kveðið er á um að Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála veiti leyfi til að taka börn í fóstur. Þá heldur Barna- og fjölskyldustofa skrá yfir þá sem hafa leyfi til að taka börn í fóstur skv. 1. mgr. 60. gr. frumvarpsins. Þessi ábyrgðarskipting milli Gæða- og eftirlitsstofnunar og Barna- og fjölskyldustofu getur leitt til misskilnings um ábyrgðarskiptingu stofnana.
    Í minnisblaði mennta- og barnamálaráðuneytis, dags. 5. júní 2026, kemur fram að ráðuneytið leggi áherslu á að mikilvægt sé að fósturforeldrar gæti þess að fósturleyfi þeirra séu í gildi. Sama eigi við um barnaverndarþjónustur sem bera ábyrgð á vistun fósturbarna. Þrátt fyrir það eru þær stofnanir sem bera ábyrgð á útgáfu leyfa og halda skrá yfir fósturforeldra í þeirri stöðu að hafa yfirsýn yfir gildistíma fósturleyfa. Í ljósi framangreinds telji ráðuneytið koma til greina að fela annaðhvort Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála eða Barna- og fjölskyldustofu það hlutverk að gera fósturforeldrum og barnaverndarþjónustum viðvart áður en tímabundin fósturleyfi renna út. Að því virtu og í ljósi ábyrgðar Barna- og fjölskyldustofu á því að halda skrá yfir fósturforeldra telur ráðuneytið ákjósanlegt að fela henni það hlutverk. Þó bendir ráðuneytið á að Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála komi jafnframt til greina.
    Í samræmi við framangreint og í samráði við mennta- og barnamálaráðuneyti leggur meiri hlutinn til að í 1. mgr. 60. gr. frumvarpsins verði kveðið á um skyldu Barna- og fjölskyldustofu til að gera fósturforeldrum og barnaverndarþjónustu viðvart með hæfilegum fyrirvara áður en leyfi til að taka börn í fóstur rennur út.

Skylda til að ákveða umgengni við barn í fóstri (62. gr.).
    Í 62. gr. frumvarpsins er fjallað um réttindi barna í fóstri. Í 1. mgr. ákvæðisins er kveðið á um að eftir að foreldri hefur afsalað sér umsjá eða forsjá eða verið svipt umsjá eða forsjá barns samkvæmt ákvæðum laganna eigi barn rétt á umgengni við foreldra eða aðra sem eru því nákomnir enda samrýmist það hagsmunum þess. Þá er í 2. málsl. ákvæðisins kveðið á um að umgengni fari í öllum tilvikum fram skv. 65. gr. frumvarpsins, óháð því hver taki við umsjá eða forsjá barns, en í ákvæðinu er nánar fjallað um umgengni í fóstri.
    Í umsögn barnaverndar Reykjavíkur koma fram ábendingar í tengslum við samspil 62. gr. frumvarpsins við 32. gr. frumvarpsins þegar barnaverndarmáli er lokað vegna þess að forsjá er færð til foreldris sem ekki var með forsjá barns áður. Leggur barnavernd Reykjavíkurborgar til að felld verði brott skylda um að umgengni skuli fara fram skv. 65. gr. þegar forsjá flyst til foreldris í samræmi við 32. gr. frumvarpsins.
    Til að taka af allan vafa um að um umgengni barns við hitt foreldrið fari eftir ákvæðum barnalaga, nr. 76/2003, leggur meiri hlutinn til, í samráði við mennta- og barnamálaráðuneyti, að í 2. mgr. 62. gr. frumvarpsins verði sérstaklega tekið fram að skylda til að úrskurða um umgengni eigi við um börn í fóstri. Með því sé skýrt að ákvæðið eigi ekki við þegar forsjá færist til foreldris skv. 32. gr. frumvarpsins.

Endurskoðun fóstursamnings og upplýsingamiðlun til Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála (68. gr.).
    Í 68. gr. frumvarpsins er kveðið á um endurskoðun fóstursamninga. Í umsögn Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála er bent á að stofnunin telji að tilkynna eigi henni um breytingar á aðstæðum fósturforeldra. Markmiðið með slíkri tilkynningarskyldu sé að stofnunin sé upplýst um atriði sem geti haft áhrif á hvort skilyrði leyfis, sem stofnunin gefur út, séu uppfyllt. Meiri hlutinn tekur undir þessa ábendingu og leggur til breytingu í samráði við mennta- og barnamálaráðuneytið þannig að við 68. gr. frumvarpsins bætist ný málsgrein sem leggur þá skyldu á barnaverndarþjónustu að upplýsa Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála ef henni berast upplýsingar sem kunna að hafa áhrif á skilyrði leyfis til að taka barn í fóstur.

Málshöfðun vegna takmörkunar á ferðafrelsi (82. gr. og 6. mgr. 56. gr.).
    Í a-lið 1. mgr. 49. gr. frumvarpsins er mælt fyrir um heimildir til að takmarka ferðafrelsi barns. Dugi önnur og vægari úrræði ekki til að tryggja viðhlítandi meðferð og öryggi barns eða annarra má forstöðumaður vistunarúrræðis eða eftir atvikum annar aðili sem tilgreindur er í 1. mgr. 56. gr. frumvarpsins taka ákvörðun um að takmarka ferðafrelsi barns, þ.m.t. þannig að því sé meinað að yfirgefa umráðasvæði vistunarúrræðis og þess krafist að utan úrræðisins sé barn í fylgd starfsmanns. Í 2. mgr. 49. gr. kemur fram að takmörkun á ferðafrelsi barns megi ákvarða í allt að 14 daga í senn en stöðugt skuli endurmeta nauðsyn slíkra ráðstafana. Þá kemur fram í 6. mgr. 56. gr. að kröfu um endurskoðun ákvörðunar um takmörkun á ferðafrelsi skv. a-lið 1. mgr. 49. gr. skuli beina til héraðsdóms í þeirri þinghá þar sem barn á lögheimili eða þar sem það dvelur. Krafa þess efnis skal berast dómara innan fjögurra vikna frá birtingu ákvörðunar. Um málsmeðferð fyrir dómi fer að öðru leyti skv. XI. kafla.
    Í XI. kafla frumvarpsins eru ákvæði um málsmeðferð fyrir dómstólum. Í 82. gr. og 85. gr. eru ákvæði sem tengjast ráðstöfunum skv. a-lið 1. mgr. 49. gr. frumvarpsins. Í 85. gr. er barni sem höfðar mál vegna slíkra ráðstafana tryggð gjafsókn fyrir héraðsdómi. Í 82. gr. er sérákvæði um meðferð slíkra mála fyrir dómi sem meiri hlutinn telur nauðsynlegt að gera breytingar á.
    Meiri hlutinn telur ljóst að þau tímamörk sem fram koma í 82. gr. frumvarpsins geri það að verkum að þær ráðstafanir sem ekki eiga að vara lengur en að hámarki í 14 daga verði að öllum líkindum liðnar undir lok þegar þeirri málsmeðferð sem gert er ráð fyrir í ákvæðinu er lokið. Meiri hlutinn telur því nauðsynlegt að leggja til breytingar á 82. gr. frumvarpsins. Meiri hlutinn leggur til að málsmeðferð og gagnaöflun verði einfölduð, dómara verði gert skylt að ákveða stað og stund þinghalds án tafar í stað þess að miða við 7 daga tímamark, málið skuli flutt eins fljótt og unnt er í stað þess að það verði flutt innan 14 daga eftir að öflun gagna er lokið og úrskurður um hvort takmörkun á ferðafrelsi skuli standa eða hún felld úr gildi verði kveðinn upp svo fljótt sem unnt er í stað þess að miðað sé við sjö daga tímamark frá því að mál var tekið til úrskurðar. Þá leggur meiri hlutinn sömuleiðis til að 2. málsl. 6. mgr. 56. gr. um að krafa þurfi að berast dómara innan fjögurra vikna frá birtingu ákvörðunar verði felld brott. Í ljósi þess að þær ráðstafanir sem um ræðir eru ákvarðaðar í senn í 14 daga verður að gera ráð fyrir því að í þeim tilvikum þar sem gerð er sú krafa fyrir dómi að felld verði úr gildi ákvörðun um takmörkun á ferðafrelsi sé sú takmörkun yfirstandandi.
    Meiri hlutinn telur afar brýnt að um sé að ræða virkt úrræði fyrir barn og minnir þar á ákvæði 4. mgr. 67. gr. stjórnarskrár um að hver sá sem er af öðrum ástæðum en vegna refsiverðrar háttsemi sviptur frelsi á rétt á að dómstóll kveði á um lögmæti þess svo fljótt sem verða má. Reynist frelsissvipting ólögmæt skal viðkomandi þegar látinn laus. Þá hafði nefndin einnig til hliðsjónar ákvæði 29.–31. gr. lögræðislaga, nr. 71/1997. Meiri hlutinn telur rétt að árétta að fjögurra vikna frestur til þess að koma kröfu til dómara um endurskoðun á takmörkun á ferðafrelsi skv. a-lið 1. mgr. 49. gr. hefur á engan hátt áhrif á möguleika á að höfða síðar dómsmál til greiðslu skaðabóta hafi viðkomandi verið sviptur frelsi að ósekju enda eru þau stjórnarskrárvarin réttindi vernduð í 5. mgr. 67. gr. stjórnarskrár. Þá vill nefndin árétta að ákvæði 85. gr. frumvarpsins um gjafsókn á við um mál vegna ráðstafana skv. a-lið 1. mgr. 49. gr. en er ekki takmarkað við úrskurð um hvort takmörkun á ferðafrelsi skuli standa eða hún felld úr gildi.

Samstarf milli barnaverndaryfirvalda (87. gr.).
    Í umfjöllun um vinnslu persónuupplýsinga var ítarlega fjallað um persónuverndarsjónarmið með hliðsjón af umsögn Persónuverndar. Var þar m.a. bent á að afmarka þyrfti betur þær heimildir sem barnaverndarþjónustur njóta til að skiptast á persónuupplýsingum.
    Að því virtu og í samráði við mennta- og barnamálaráðuneyti leggur meiri hlutinn til að lagt verði til skilyrði um heimild til miðlunar upplýsinga milli barnaverndarþjónustna. Leggur meiri hlutinn til að heimildin verði bundin við þau tilvik þegar upplýsingamiðlun er talin nauðsynleg til að tryggja meðferð mála samkvæmt lögum um barnavernd.

Verkefni Gæða- og eftirlitsstofnunar (97. gr.).
    Í 97. gr. frumvarpsins er fjallað um ábyrgð Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála á mati og eftirliti með gæðum þjónustu sem veitt er á grundvelli ákvæða frumvarpsins. Í umsögn Gæða- og eftirlitsstofnunar er bent á að um eftirlit stofnunarinnar fari eftir lögum um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, nr. 88/2021. Fyrir mistök hafi gleymst að bæta við orðinu „ábendingar“ í samræmi við 13. gr. laga um stofnunina. Þá telur stofnunin að orðunum „innra eftirlit“ sé ofaukið í upptalningu ákvæðisins þar sem þjónustuveitendur sinni slíku eftirliti, ekki stofnunin. Að því virtu og í samráði við mennta- og barnamálaráðuneyti leggur meiri hlutinn til minni háttar breytingu á upptalningu verkefna stofnunarinnar í 97. gr. frumvarpsins. Nánar tiltekið er lagt til að orðin „innra eftirlit“ falli brott, en í staðinn komi orðið „ábendingar“ í samræmi við 13. gr. laga um Gæða- og eftirlitsstofnun.

Útivistartími barna (103. gr.).
    Í 103. gr. frumvarpsins eru lagðar til breytingar á reglum um útivistartíma barna. Lagt er til að skýra aldursmörk ákvæðisins, þ.m.t. frá hvaða tíma og aldri reglurnar eigi við. Þá er lagt til að útivistartími barna á aldrinum 10–12 ára lengist um eina klukkustund yfir vetrartíma, sem og að lengri útivistartími á sumrin taki gildi 1. júní ár hvert í stað 1. maí. Í skýringum við 103. gr. frumvarpsins kemur fram að reglur um útivistartíma barna hafi gegnt mikilvægu hlutverki í forvarnastarfi og verið liður í að sporna við óæskilegri hópamyndun seint á kvöldin. Í samráði við aðila sem sinna forvarnastarfi kom fram að mikilvægt væri að kveða á um útivistartíma í lögum og að almennt sé jákvæð reynsla af notkun hans. Hins vegar hafi komið skýrt ákall frá börnum um rýmri útivistartíma á veturna fyrir börn á miðstigi og að líta þyrfti til jákvæðra atriða við útivist barna, líkt og samveru, félagslegra tengsla, hreyfingar, tengingar við náttúru og minni skjánotkunar. Að því virtu voru umræddar breytingar skv. 103. gr. frumvarpsins lagðar til.
    Gerðar voru athugasemdir við breytinguna, einkum í umsögnum lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og embættis landlæknis. Sérstaklega var bent á að ekki væri æskilegt að flækja reglur um útivistartíma í ljósi þess tíma sem tekið hefur að festa reglurnar í sessi þannig að þeim yrði framfylgt. Þá komu fram áhyggjur af áhrifum breytinganna á svefntíma barna. Í minnisblaði mennta- og barnamálaráðuneytis, dags. 28. apríl 2026, var þó lögð sérstök áhersla á að breytingin hafi farið fram í samráði við börn, sem færðu málefnaleg rök fyrir breytingum á reglum um útivistartíma barna.
    Meiri hlutinn telur mikilvægt að eiga í samráði við börn og að tekið hafi verið tillit til sjónarmiða þeirra við breytingu á reglum um útivistartíma. Hins vegar tekur meiri hlutinn undir þau sjónarmið sem fram komu í framangreindum umsögnum og telur því ekki tilefni til að ráðast í þær breytingar sem lagðar eru til í 103. gr. frumvarpsins að þessu sinni. Meiri hlutinn telur þó mikilvægt að gera sjónarmiðum um útivistartíma barna hærra undir höfði með auknu samráði við börn, foreldra, lögreglustjóra, embætti landlæknis, hagsmunasamtök barna og aðra hlutaðeigandi aðila. Að því virtu telur meiri hlutinn rétt að lagt verði fram sérstakt frumvarp þess efnis að hausti 2026, þar sem víðtækara samráð verður haft við börn og aðra hlutaðeigandi aðila, og málinu þannig veitt aukið vægi í málaflokknum.
    Að öllu framangreindu virtu leggur meiri hlutinn því til að ráðast ekki í breytingar á útivistartíma með frumvarpi þessu og að 103. gr. verði því samhljóða 92. gr. gildandi barnaverndarlaga. Undirstrikar meiri hlutinn þó mikilvægi þess að málefnið verði tekið upp að nýju með sérstöku frumvarpi og þannig gert hærra undir höfði með víðtæku samráði.

Skýrsla ráðherra um framkvæmd laga um barnavernd.
    Nefndin hefur fjallað um möguleika þess að kveða á um skyldu ráðherra til að leggja fyrir Alþingi skýrslu um framkvæmd nýrra barnaverndarlaga, innan tilskilins tíma, verði frumvarpið að lögum.
    Í ljósi þess að um er að ræða ný heildarlög um barnavernd, sem varða grundvallarmannréttindi eins viðkvæmasta hóps samfélagsins, telur meiri hlutinn rétt að kveða á um eftirfylgni með framkvæmd laganna þannig að ráðherra verði falið að upplýsa Alþingi að tilteknum tíma liðnum um hvernig til hafi tekist í framkvæmd. Meiri hlutinn undirstrikar mikilvægi þess að Alþingi sé upplýst um framvindu málaflokksins og geti þá jafnframt brugðist við ef þörf krefur.
    Að því virtu leggur meiri hlutinn til að bæta við ákvæði til bráðabirgða um skyldu ráðherra til að leggja fyrir Alþingi skýrslu um framkvæmd nýrra laga um barnavernd, að einu ári liðnu frá gildistöku þeirra, þ.e. 1. janúar 2028. Þá skal ráðherra fjalla um endurskoðun og framvindu málaflokksins og hvort tilefni sé til að bæta umgjörð hans, svo sem hvort þörf sé á breytingum á lögum og reglugerðum. Í skýrslunni skal sérstaklega fjalla um framkvæmd ákvæða í VIII. kafla um fóstur, svo sem um niðurstöður úttekta sem mennta- og barnamálaráðuneyti framkvæmir um stöðu fósturmála hér á landi. Þá skal gera grein fyrir eftirliti barnaverndaryfirvalda með málaflokknum, einkum er varðar fóstur og vistunarúrræði á vegum barnaverndar skv. VII. kafla. Að lokum skal fjalla um framkvæmd og beitingu þvingunar í vistunarúrræðum skv. VII. kafla.

    Þá eru lagðar til lagatæknilegar breytingar sem ekki er ætlað að hafa efnisleg áhrif.

    Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir og gerð er tillaga um í sérstöku þingskjali.

    Sigríður Á. Andersen og Sigurður Örn Hilmarsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 11. júní 2026.

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,
form., frsm.
Grétar Mar Jónsson. Kristján Þórður Snæbjarnarson.
Ragna Sigurðardóttir. Sandra Sigurðardóttir.