Ferill 484. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1348 — 484. mál.
Svar
atvinnuvegaráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Davíðsdóttur um fæðuöryggi.
1. Telur ráðherra að þjóðaröryggi verði ekki tryggt án fæðuöryggis og að í fæðuöryggi felist hæfni samfélags til að framleiða, vinna, dreifa og geyma matvæli með traustum grunninnviðum sem haldast órofnir þegar á reynir? Ef svo er, hvernig hyggst ráðherra vinna að því að tryggja fæðuöryggi landsins?
Fæðuöryggi er hluti þjóðaröryggis eins og fram kemur í gildandi þjóðaröryggisstefnu sem Alþingi hefur samþykkt. Jafnframt er fjallað um fæðuöryggi í gildandi matvælastefnu og gildandi landbúnaðarstefnu til 2040 sem Alþingi hefur einnig samþykkt. Í alþjóðlegu samhengi er fæðuöryggi almennt skilgreint þannig að allir hafi á hverjum tíma líkamlegt og efnahagslegt aðgengi að nægjanlegum, öruggum og næringarríkum mat sem uppfyllir fæðuþarfir og óskir til að lifa virku og heilbrigðu lífi.
Í fæðuöryggi felst ekki einungis birgðastaða heldur einnig seigla fæðukerfisins og m.a. þættir sem bent er á í fyrirspurninni. Í því samhengi má benda á að NATO setur seiglu fæðu- og vatnsauðlinda meðal sjö grunnviðmiða um samfélagslegt áfallaþol (e. NATO seven Baseline Requirements) sem styður þá sýn að fæðuöryggi sé einn lykilþáttur í heildarviðbúnaði ríkja.
Leiðarljós til að vinna markvisst að fæðuöryggi er að finna í þeim stefnum sem vitnað er til að framan. Í matvælastefnu segir m.a.:
– Stoðir fæðukerfa og fæðuöryggis landsins verði styrktar með því m.a. að styðja við nýsköpun í matvælaframleiðslu og stuðla að aukinni sjálfbærni innlendrar framleiðslu með tilliti til aðfanga, auðlindanýtingar og hringrásarhagkerfis.
– Áhersla verði lögð á að minnka losun vegna matvælaframleiðslu og auka framleiðslu matvæla með lágu kolefnisspori, sem byggist á lífsferilsgreiningu og mati á kolefnisspori framleiðslunnar.
Þá segir m.a. í þjóðaröryggisstefnu:
– Að stuðlað verði að vernd og órofa virkni mikilvægra innviða og styrkingu áfallaþols samfélagsins gagnvart hvers kyns ógnum. Lögð verði áhersla á að tryggja skilvirkan og samhæfðan viðbúnað og viðbrögð til þess að takast á við afleiðingar hvers kyns ógna við líf og heilsu fólks, umhverfi, eignir og innviði. Tekið verði mið af ógnum sem tengjast loftslagsbreytingum, náttúruhamförum, fæðu- og matvælaöryggi, heilbrigðisöryggi og farsóttum.
Jafnframt segir í landbúnaðarstefnu:
– Stoðir fæðukerfa og fæðuöryggis landsins verði styrktar með því m.a. að styðja við nýsköpun í landbúnaði og stuðla að aukinni sjálfbærni með tilliti til aðfanga, jarðvegsverndar, auðlindanýtingar og hringrásarhagkerfis.
– Aðgengi að heilnæmum mat verði óháð efnahag.
– Skilgreindar lágmarksbirgðir matvæla verði í landinu á hverjum tíma, sem og aðföng til framleiðslunnar.
– Við töku ákvarðana um landnotkun verði fæðuöryggi þjóðarinnar haft að leiðarljósi.
– Markvisst verði unnið að framförum í grasrækt og ræktun annarra fóðurjurta samhliða aukinni áherslu á fjölbreyttari garðyrkju og aðra ræktun afurða til manneldis, aukna kornrækt og hvers konar nýjungar, svo sem ræktun orkujurta.
– Styrktar verði stoðir fjárhagslegrar afkomu framleiðenda sem einnar af undirstöðum fæðuöryggis.
Unnið er að verkefnum á sviði áfallaþols í samstarfi ráðuneyta undir forystu stýrihóps sem skipaður er fulltrúum forsætisráðuneytis, dómsmálaráðuneytis, utanríkisráðuneytis og innviðaráðuneytis. Unnið er í samstarfi við önnur ráðuneyti eftir því sem við á. Þar er m.a. horft til eftirfarandi þátta:
– Áhættumats og veikleikagreiningar (innflutningsleiðir, eldsneyti, áburður, fóður, vinnslugeta, flutningar, rafmagn o.fl.) og reglulegrar endurskoðunar.
– Viðnámsþols birgðahalds og neyðarviðbúnaðar, þ.m.t. lágmarksbirgða og skýrra heimilda/verkferla um nýtingu þeirra þegar upp kemur röskunarástand.
– Samvinnu við hagaðila (framleiðendur, matvælafyrirtæki, innflytjendur, verslun, flutningsaðila, sveitarfélög o.fl.) og skýrrar verkaskiptingu milli stjórnvalda.
2. Hyggst ráðherra gera heildstæða landsáætlun um hvernig unnt verði að tryggja fæðuöryggi þjóðarinnar við hvaða aðstæður sem upp kunna að koma, líkt og lagt er til í þingsályktunartillögu um fæðuöryggi og innlenda matvælaframleiðslu sem lögð var fram á yfirstandandi þingi (67. mál)? Ef svo er, hvaða alþjóðlegu viðmið sér ráðherra fyrir sér að leggja til grundvallar við gerð slíkrar áætlunar?
Eins og fram kemur í svari við 1. tölul. fyrirspurnarinnar er unnið að þessum málum í samstarfi ráðuneyta enda þurfa bæði fjölmörg ráðuneyti og hagaðilar að koma að verkefnum sem snerta viðnámsþrótt og áfallaþol (þar með talið fæðuöryggi). Áætlanagerð á því sviði verður ekki unnin nema í samstarfi. Unnið er að málefnum sem snerta fæðuöryggi samkvæmt gildandi aðgerðaáætlun matvælastefnu og ber þar hæst átak um eflingu kornræktar og vinnu við endurskoðun stuðningskerfis landbúnaðar sem stendur fyrir dyrum.
Jafnframt liggur fyrir að Alþingi hefur samþykkt matvælastefnu til ársins 2040 þar sem sérstaklega er kveðið á um að fæðuöryggi verði tryggt og að komið verði á fót skipulagi sem tryggi nauðsynlegar lágmarksbirgðir matvæla og aðfanga til framleiðslu. Þá er jafnframt kveðið á um að framkvæmd stefnunnar byggi á fimm ára aðgerðaáætlunum sem séu yfirfarnar og uppfærðar reglulega.
Varðandi alþjóðleg viðmið sem eðlilegt er að hafa til hliðsjónar í þessari vinnu má benda á eftirtalin atriði sem ráðherra telur eðlilegt að horfa m.a. til:
– FAO: skilgreiningar og stoðir fæðuöryggis (aðgengi/framboð/nýting/stöðugleiki) og viðeigandi mælikvarða.
– NATO: grunnviðmið um áfallaþol, þar á meðal seiglu fæðu- og vatnsauðlinda, í heildstæðu samhengi við innviði, flutninga, orku og samskipti.
– ESB: viðbúnaðarnálgun og samhæfingu hins opinbera og einkageirans í gegnum Contingency plan og European Food Security Crisis preparedness and response Mechanism (EFSCM).
– ISO 22301 (viðeigandi sem verklagsrammi): alþjóðlegur staðall um samfellu- og viðnámsstjórnun (business continuity) sem nýtist við að skilgreina lágmarksþjónustu, fráviksáætlanir og æfingar.
3. Telur ráðherra mikilvægt að efla innlenda matvælaframleiðslu til að tryggja fæðuöryggi þjóðarinnar?
Innlend matvælaframleiðsla er mikilvæg til að styrkja fæðuöryggi landsins, ekki síst vegna:
– Grunnframleiðslu, þ.e. framboðs matvæla af núverandi neyslu þjóðarinnar sem er ríflega helmingur (miðað við orkuinnihald), samkvæmt norrænni skýrslu frá 2022.
– Seiglu og viðnámsþols, þ.e. getu til að viðhalda eða auka framleiðslu við röskun. Í því felst m.a. að til staðar sé þekking, innviðir og mannafli til að geta brugðist við þegar áföll ríða yfir.
– Rétt er að taka fram að innlend matvælaframleiðsla, þ.m.t. fiskeldi, landbúnaður og sjávarútvegur, er mjög háð innfluttum aðföngum, sérstaklega jarðefnaeldsneyti, ýmsum tækjabúnaði og í mörgum tilvikum fóðri.
Bent er á tvær skýrslur sem ráðuneytið hefur látið gera, annars vegar um fæðuöryggi fyrir íslenska matvælaframleiðslu sem unnin var af Landbúnaðarháskóla Íslands og hins vegar um neyðarbirgðir matvæla sem unnin var af matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands. Þær voru kynntar á sérstöku málþingi í nóvember 2025 sem og sérstakt mælaborð um stöðu fæðuöryggis.
4. Telur ráðherra æskilegt að greina á milli fæðuöryggis og neyðarbirgða?
Fæðuöryggi og neyðarbirgðir eru ekki sami hluturinn, þó að hugtökin tengist:
– Fæðuöryggi er víðara markmið sem snýr að því að tryggja framboð, aðgengi, nýtingu og stöðugleika fæðukerfis til lengri tíma og við ólíkar aðstæður.
– Neyðarbirgðir eru eitt af verkfærum til að bregðast við skyndilegri og alvarlegri röskun (t.d. flutningatruflunum, náttúruvá, alvarlegum alþjóðlegum áföllum), þar sem skýrar heimildir, viðmið og verkferlar þurfa að liggja fyrir um magn, ábyrgð og nýtingu.
Áherslur um lágmarksbirgðir matvæla og aðfanga eru jafnframt hluti af þeirri heildarsýn sem kemur fram í matvælastefnu til 2040, sem undirstrikar að birgðir séu mikilvægur (en ekki eini) þáttur í fæðuöryggi.