Ferill 582. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Prentað upp.

Þingskjal 1355  —  582. mál.
Viðbót.

2. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (einföldun eftirlits).

Frá meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum iðnaðarins, Viðskiptaráði Íslands, SVÞ – samtökum verslunar og þjónustu, Samtökum ferðaþjónustunnar, Bændasamtökum Íslands, Veitum, Landsvirkjun, Samtökum heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi, Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Heilbrigðiseftirliti Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness, Heilbrigðiseftirliti Austurlands, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja, Heilbrigðiseftirliti Vestfjarða, Heilbrigðiseftirliti Vesturlands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, Reykjavíkurborg, almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins, Sambandi sveitarfélaga á Austurlandi, Múlaþingi, Samtökum sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, Norðurþingi, Sveitarfélaginu Skagafirði, Fjarðabyggð, Húnaþingi vestra, Fjórðungssambandi Vestfirðinga, Félagi heilbrigðisfulltrúa á Íslandi, Félagi íslenskra náttúrufræðinga, Krabbameinsfélagi höfuðborgarsvæðisins og Isavia Innanlandsflugvöllum.
    Nefndinni barst 61 umsögn auk minnisblaða frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti og eru gögnin aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
    Með frumvarpinu er lagt til að heilbrigðis- og mengunarvarnaeftirlit sem svæðisbundnar heilbrigðisnefndir hafa annast verði flutt til Umhverfis- og orkustofnunar og Matvælastofnunar. Markmið frumvarpsins er að tryggja árangursríkt, skilvirkt og óhlutdrægt eftirlit með hollustuháttum og mengunarvörnum sem uppfylli kröfur um gæði og samræmi í framkvæmd. Umsagnaraðilar lýstu almennt yfir stuðningi við þessi markmið en fram komu athugasemdir við þó nokkur atriði frumvarpsins sem vikið verður að hér á eftir.

Umfjöllun nefndarinnar.
Almennt.
    Með frumvarpinu er lagt til að eftirlit á grundvelli laga um hollustuhætti og mengunarvarnir verði fært til Umhverfis- og orkustofnunar. Lagðar eru til breytingar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, auk afleiddra breytinga á öðrum lögum.
    Frá árinu 2010 hefur Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) gert athugasemdir við skipulag eftirlits hér á landi og í júlí 2024 var íslenskum stjórnvöldum sent formlegt áminningarbréf, þar sem sú afstaða birtist að stjórnsýsla á sviði matvælaeftirlits hér á landi sé hvorki nægjanlega samræmd né stöðug. Er í greinargerð með frumvarpinu vísað til skýrslna sem benda á sama vanda og farið nokkuð ítarlega yfir þá vinnu sem hefur átt sér stað undanfarin ár hvað þetta varðar.
    Frumvarp þetta byggist á tillögum stýrihóps sem skipaður var af umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og atvinnuvegaráðherra en hópurinn hafði það hlutverk að rýna tillögur og sviðsmyndir starfshóps frá árinu 2023 um breytt fyrirkomulag eftirlits á grundvelli laga um hollustuhætti og mengunarvarnir og laga um matvæli. Helstu niðurstöður hópsins voru að óskýr verkaskipting í núverandi kerfi ylli því að áreiðanleiki og samfella í framkvæmd eftirlits væri ekki tryggð. Stýrihópurinn taldi tvær sviðsmyndir (sviðsmyndir 3 og 4) bjóða upp á raunhæfar leiðir til að skýra ábyrgð, draga úr ósamræmi og efla samhæfingu í framkvæmd opinbers eftirlits. Í sviðsmynd 3 var gert ráð fyrir því að eftirlit myndi færast alfarið til ríkisstofnana, þ.e. Matvælastofnunar annars vegar og Umhverfis- og orkustofnunar hins vegar. Síðari sviðsmyndin (sviðsmynd 4) fól í sér að heilbrigðiseftirlit á sveitarstjórnarstigi yrði áfram til staðar en ríkisstofnanir fengju aukið yfirstjórnunarhlutverk og boðvald yfir heilbrigðiseftirliti. Var síðari sviðsmyndin talin töluvert flóknari í bæði útfærslu og framkvæmd. Var við samningu þessa frumvarps því byggt á sviðsmynd 3 sem skapar að mati meiri hlutans skýrari ábyrgðarkeðju og er betur til þess fallin að tryggja samræmi í stjórnsýslu við þau verkefni sem Umhverfis- og orkustofnun mun sinna.
    Meiri hlutinn telur mikil tækifæri fólgin í því að færa þau verkefni sem kveðið er á um í frumvarpinu til Umhverfis- og orkustofnunar. Með því skapast tækifæri til að samræma eftirlit og gera það skilvirkara, sem hefur verið gagnrýnt undanfarin ár. Þar hefur verið áberandi gagnrýni um að framkvæmdin sé ólík milli eftirlitssvæða þar sem um sé að ræða marga sjálfstæða eftirlitsaðila með sitt eigið eftirlitskerfi en nú er landinu skipt upp í níu heilbrigðiseftirlitssvæði.

Staðbundin sérfræðiþekking.
    Fyrir nefndinni var fjallað um mikilvægi staðbundinnar sérþekkingar á þeim verkefnum sem heilbrigðiseftirlitin sinna í dag og hættu á því að hún glatist þegar verkefni þeirra færast að stórum hluta til Umhverfis- og orkustofnunar. Þá var bent á að ekkert í frumvarpinu tryggi að störf haldist á landsbyggðinni við samþykkt frumvarpsins, ekki sé nóg að vísa til þess í greinargerð frumvarpsins að ekki sé ætlunin með breytingunum að flytja störf milli landshluta heldur þurfi að lögfesta staðsetningu starfsstöðva stofnunarinnar. Fram kom að starfsstöðvar heilbrigðiseftirlita eru þrettán talsins hringinn í kringum landið en starfsstöðvar Umhverfis- og orkustofnunar aðeins fjórar. Meiri hlutinn tekur undir með fulltrúum heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga um að staðbundin þekking og nálægð við atvinnulíf sé afar mikilvæg þegar kemur að eftirliti með starfsemi og að brýnt sé að störf haldist á landsbyggðinni þrátt fyrir þær breytingar sem lagðar eru til með frumvarpinu.
    Með 18. gr. frumvarpsins eru lagðar til breytingar á 42. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Er þar gert ráð fyrir því að sveitarstjórnir, byggingarnefndir og önnur yfirvöld sveitarfélaganna geti leitað álits Umhverfis- og orkustofnunar í stað heilbrigðisnefndar um hvers konar ráðstafanir vegna framkvæmda sem lögin taka til. Við yfirfærslu verkefna frumvarpsins er því gert ráð fyrir að þekking og reynsla sem byggst hefur upp í framkvæmd eftirlitsins nýtist áfram við framkvæmd þeirra innan Umhverfis- og orkustofnunar. Meiri hlutinn vísar til þess sem fram kemur í minnisblaði umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis til nefndarinnar, dags. 19. maí 2026, að lagt er upp með að stofnunin verði með starfsstöðvar á landsbyggðinni. Markmið frumvarpsins sé ekki að fækka störfum á landsbyggðinni enda sé það eðli eftirlitsstarfsins að það fari fram þar sem starfsemin er staðsett. Ekki var talið rétt að binda starfsstöðvar stofnunarinnar í lögum en það er mögulegt að gera með reglugerð, sbr. 5. mgr. 2. gr. laga nr. 110/2024, um Umhverfis- og orkustofnun, þar sem kveðið er á um að ráðherra sé heimilt með reglugerð að setja m.a. ákvæði um staðsetningu starfsstöðva stofnunarinnar með það að markmiði að fjölga störfum á landsbyggðinni. Nú eru starfsstöðvar stofnunarinnar á Selfossi, Egilsstöðum, Akureyri og í Reykjavík. Líkt og fram kemur í upplýsingum ráðuneytisins til nefndarinnar, dags. 8. júní, verða þær starfsstöðvar áfram og styrkjast við breytingarnar ásamt því að gert er ráð fyrir að nýjar starfsstöðvar verði opnaðar verði frumvarpið að lögum en nákvæmar staðsetningar séu óstaðfestar á þessari stundu. Þá sé mikil reynsla innan stofnunarinnar af því að reka starfsstöðvar um allt land.
    Meiri hlutinn leggur áherslu á mikilvægi þess að sú sérþekking sem er til staðar og byggst hefur upp yfir langan tíma haldist innan Umhverfis- og orkustofnunar. Meiri hlutinn beinir því til ráðuneytisins að byggðasjónarmið verði höfð að leiðarljósi við framkvæmd laganna og við útfærslu á þeim reglugerðum sem fyrirhugað er að setja á grundvelli þeirra, þannig að starfsstöðvar haldist á landsbyggðinni og veiti þjónustu í heimabyggð.

Framkvæmd og framsal eftirlits.
    Fyrir nefndinni komu fram athugasemdir um hættu á auknu flækjustigi eftirlits, tvíverknaði og hækkun á eftirlitsgjöldum verði frumvarpið að lögum. Var í því efni m.a. vísað til þess að með frumvarpinu sé verið að færa verkefni sem hingað til hafi verið hjá sveitarfélögum til tveggja ríkisstofnana. Í núverandi lagaumhverfi geti einn aðili sinnt eftirliti með mismunandi þáttum starfsemi í einni eftirlitsheimsókn en með því kerfi sem frumvarpið leggi til muni eftirlitsheimsóknum fjölga þar sem tvær stofnanir þurfa í einhverjum tilvikum að fara í eftirlit hjá sama aðila. Það leiði til aukins kostnaðar fyrir eftirlitsþega, lengri afgreiðslutíma og hættu á dreifðri og óskýrri ábyrgð. Ljóst sé að eftirlitsgjöld muni hækka verulega, enda hafi sveitarfélög borið hluta kostnaðar af verkefnum heilbrigðiseftirlita auk þess sem gjaldskrár ríkisins hafi verið mun hærri en hjá sveitarfélögum í þessum málaflokkum. Sömu athugasemdir komu fram þegar frumvarpið var í samráðsgátt stjórnvalda og var brugðist við þeim með því að bæta við frumvarpið ákvæði um heimild til framsals eftirlits, þ.e. að Umhverfis- og orkustofnun verði heimilt að framselja eftirlit til Matvælastofnunar og er þá heimild að finna í 29. gr. frumvarpsins. Meiri hlutinn hvetur til þess að heimildin til framsals eftirlits verði nýtt eins og kostur er til einföldunar fyrir eftirlitsþega. Þá tekur meiri hlutinn undir þá áherslu sem fram kemur í greinargerð frumvarpsins að það verði horft til þess að gera eftirlit áhættumiðað.
    Líkt og fram kemur í upplýsingum frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti til nefndarinnar, dags. 8. júní 2026, grundvallast eftirlit Umhverfis- og orkustofnunar á áhættumati þar sem hvert og eitt fyrirtæki er áhættumetið og tíðni reglubundins eftirlits ákvörðuð út frá niðurstöðum þess mats. Nýtt áhættumat sem er í vinnslu hjá stofnuninni taki mið af því að hægt sé að áhættumeta þau fyrirtæki sem nú lúta eftirliti heilbrigðisnefnda með sama hætti og fyrirtækin sem Umhverfis- og orkustofnun hefur eftirlit með. Með slíku áhættumati sé tryggð skilvirkni í eftirliti og að kröftum eftirlitsmanna sé beint að þeirri starfsemi þar sem úrbóta er þörf. Kostnaður vegna eftirlits tengist beint frammistöðu fyrirtækis þar sem stofnunin mun einungis innheimta gjald fyrir það eftirlit sem fer fram í samræmi við verkbókhald. Umhverfis- og orkustofnun verði í þéttu samstarfi við systurstofnanir sínar til að tryggja skilvirkni eftirlits og koma í veg fyrir tvíverknað. Staðlað form eftirlitsskýrslna, samræmd skráning frávika og staðlað ferli vegna eftirfylgni muni tryggja sömu framkvæmd eftirlits um allt land og þannig stuðla að bættu viðmóti og auknum skýrleika fyrir eftirlitsþega óháð staðsetningu. Þessu til viðbótar bendir meiri hlutinn á, varðandi fjárhæð eftirlitsgjalda, að gjald í gjaldskrá Umhverfis- og orkustofnunar má ekki vera hærra en sá kostnaður sem hlýst af þjónustunni, sbr. 2. mgr. 53. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Þær breytingar sem lagðar eru til með frumvarpinu og fyrirhugað áhættumiðað eftirlit við framkvæmd heilbrigðiseftirlits leiða að mati meiri hlutans til einföldunar, aukinnar skilvirkni og samræmingar eftirlits.

Vatnsvernd og neyðarstjórn sveitarfélaga.
    Í umsögnum til nefndarinnar kom fram að hlutverk heilbrigðiseftirlits í almannavörnum sé veigamikið, sér í lagi hvað varðar neysluvatn, vernd vatnsbóla, matvælaöryggi og viðbrögð við náttúruhamförum og annarri vá. Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga skipi mikilvægan sess í neyðarstjórnum sveitarfélaga. Þá var kallað eftir skýrum svörum um hvernig hlutverk heilbrigðiseftirlits á sviði almannavarna og vatnsverndar verði tryggt eftir breytinguna enda sé öruggt aðgengi að hreinu neysluvatni forsenda heilbrigðis, hreinlætis og matvælaöryggis. Sérstaklega var bent á samþykkt um verndarsvæði vatnsbóla innan lögsagnarumdæma Mosfellsbæjar, Reykjavíkurborgar, Seltjarnarnesbæjar, Kópavogsbæjar, Garðabæjar og Hafnarfjarðarkaupstaðar nr. 555/2015, sem samþykkt var af sveitarstjórnum allra hlutaðeigandi sveitarfélaga og staðfest af þáverandi umhverfis- og auðlindaráðherra í samræmi við ákvæði laga um hollustuhætti- og mengunarvarnir, nr. 7/1998. Með samþykktinni hafi sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu framselt til heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga víðtækar valdheimildir til þess að vinna að heildarhagsmunum höfuðborgarsvæðisins og sé óljóst hver staða samþykktarinnar verði eftir gildistöku frumvarpsins og þá hvernig fari með ábyrgð á framkvæmd einstakra ákvæða samþykktarinnar. Vafi sé á því að eitt sveitarfélag geti tekið sjálfstæðar ákvarðanir á grundvelli samþykktarinnar eftir að lögbundið hlutverk heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga verði aflagt. Meiri hlutinn tekur undir orð ráðuneytisins í minnisblaði til nefndarinnar, dags. 19. maí 2026, um að gæta þurfi að því að ekki verði rof á tengslum við neyðarstjórnir sveitarfélaga við þær breytingar sem frumvarpið felur í sér. Sveitarfélög muni áfram hafa aðkomu að vatnsverndarmálum enda séu þau nátengd skipulagsmálum. Þá kemur fram í minnisblaðinu það mat ráðuneytisins að vel fari á því, verði frumvarpið að lögum, að ráðuneytið endurskoði þá samþykkt með hlutaðeigandi aðilum strax í haust. Meiri hlutinn tekur undir það og leggur áherslu á að kveðið verði skýrt á um ábyrgð viðeigandi stofnana á vatnsverndarmálum, þannig að ekki verði rof í vöktun, eftirliti og eftirfylgni. Auk þess skipi stofnanir fulltrúa í neyðarstjórnir eins og kallað verði eftir, sveitarfélögunum að kostnaðarlausu.
    Í upplýsingum umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis til nefndarinnar, dags. 8. júní 2026, kemur fram að innan Umhverfis- og orkustofnunar er starfandi bráðamengunarteymi og stofnunin sé því vel í stakk búin til að bregðast við bráðatilvikum og neyðarástandi í samstarfi við almannavarnir. Þá tryggi dreifð staðsetning starfsstöðva viðbragðsgetu stofnunarinnar um allt land. Þessi verkefni séu og verði í sérstökum forgangi og verði sérstaklega gætt að því að ekkert þjónustufall verði þegar kemur að þeim. Meiri hlutinn leggur áherslu á að stofnunin hefur víðtæka reynslu af bráðum mengunarmálum, samhæfingu viðbragða og samstarfi við sveitarfélög, viðbragðsaðila og aðrar stofnanir og hafi hún því alla burði til að vera með stuttan viðbragðstíma komi upp atvik sem snertir vatnsvernd.
    Jafnframt bendir meiri hlutinn á að stjórn vatnamála og veiting rannsóknar- og nýtingarleyfa vegna leitar að og nýtingu á auðlindum í jörðu er hjá Umhverfis- og orkustofnun, sbr. lög um stjórn vatnamála og lög um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu. Líkt og segir í áðurnefndum upplýsingum ráðuneytisins til nefndarinnar er nýting vatns leyfisskyld hjá stofnuninni, auk þess sem framkvæmdaraðilum er skylt að gera mat á áhrifum framkvæmda á vatnshlot áður en framkvæmd eða starfsemi hefst. Óheimilt sé að gefa út leyfi fyrir framkvæmdir eða starfsemi ef þær valda því að lagalega bindandi umhverfismarkmið vatnshlota náist ekki nema ef undanþága hafi verið veitt fyrir því. Umhverfis- og orkustofnun fer þegar með mikilvægt hlutverk á sviði vatnamála, þar á meðal við framkvæmd laga um stjórn vatnamála, stjórnsýslu og eftirlit samkvæmt vatnalögum og lögum um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu, og hefur því þegar yfir að ráða sérþekkingu á vatnsauðlindum, vatnshlotum og áhrifum starfsemi á vatn. Veruleg samlegð getur því falist í því að frekari verkefni tengd vatnamálum færist til stofnunarinnar.

Verkefni sveitarfélaga.
    Nefndin fjallaði um þau verkefni sem gert er ráð fyrir að færist til sveitarfélaga og undirbúning við þær breytingar á reglugerðum sem fyrirhugað er að ráðast í. Í umsögnum til nefndarinnar var gagnrýnt að samhliða framlagningu frumvarpsins lægju ekki fyrir drög að þeim reglugerðum. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að verkefni tengd loftgæðamálum og gerð viðbragðsáætlana fari að hluta til sveitarfélaga. Samþykktir sem sveitarfélög setja sér, t.d. um fráveitur, meðhöndlun úrgangs o.fl., verði nú samdar af sveitarfélögum í stað heilbrigðisnefnda. Er gert ráð fyrir að sveitarfélög fái heimildir til að gera kröfur um ráðstafanir vegna umgengni og umhirðu utan húss í stað heilbrigðisnefnda. Í upplýsingum sem nefndinni bárust frá ráðuneytinu er útlistað hvaða verkefni það eru sem sveitarfélög munu hafa aðkomu að, og þær reglugerðir sem kunna að taka breytingum eftir að frumvarpið verður að lögum. Auk þess kemur þar fram að þær tillögur hafi verið kynntar Sambandi íslenskra sveitarfélaga og fulltrúum sveitarfélaga í óformlegum starfshópi og verða drög að breytingum á reglugerðum kynnt í samráðsgátt. Meiri hlutinn leggur áherslu á mikilvægi þess að fyrirhugaðar breytingar á reglugerðum í tengslum við frumvarpið verði lagðar fram sem fyrst og unnar í samráði við sveitarfélög og hagaðila. Með því má koma í veg fyrir óvissu sem umsagnaraðilar hafa lýst áhyggjum af og undirstrikar meiri hlutinn mikilvægi þess að það verði gert eins fljótt og unnt er. Þá telur meiri hlutinn eðlilegt að lagt verði mat á þann kostnað sem sveitarfélög kunna að verða fyrir vegna breytinganna og þeirra verkefna sem eftir verða.

Menntun og hæfni starfsfólks.
    Fram komu athugasemdir við að með frumvarpinu væri hið lögverndaða starfsheiti heilbrigðisfulltrúi lagt niður sem gerir kröfur um ákveðna háskólamenntun, starfsreynslu og námskeið til öflunar starfsréttinda. Hvergi sé kveðið á um hvaða menntunar- eða hæfniskröfur verði gerðar til þeirra sem munu sinna heilbrigðiseftirlitinu hjá Umhverfis- og orkustofnun en starfið sé flókið, fjölbreytt og feli í sér ríka ábyrgð. Því verði að gjalda varhuga við afnámi menntunar- og hæfniskrafna þessa starfsfólks. Að mati meiri hlutans er mikilvægt að starfsfólk hafi viðeigandi þekkingu og hæfni til að vinna við heilbrigðiseftirlit. Bendir meiri hlutinn í því efni á upplýsingar sem nefndin fékk frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti þar sem fram kemur að fyrir liggi að ekki verði dregið úr kröfum varðandi menntun og hæfni starfsfólks þó að starfsheitið heilbrigðisfulltrúi verði afnumið við samþykkt frumvarpsins. Þá sé mikil áhersla lögð á þjálfun nýliða hjá Umhverfis- og orkustofnun og fari eftirlitsfólk í gegnum sérstaka þjálfun við upphaf starfs.

Réttindi starfsfólks.
    Í ákvæði til bráðabirgða í frumvarpinu kemur fram að starfsfólk sem er í starfi við heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga við gildistöku laganna og sinnir þeim verkefnum sem færast til Umhverfis- og orkustofnunar samkvæmt lögunum skuli eiga forgangsrétt til starfa við Umhverfis- og orkustofnun sem verða til vegna lagabreytinganna. Ákvæði 7. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins sem lýtur að auglýsingaskyldu gildi ekki um störf sem ráðið er í samkvæmt þessu ákvæði.
    Í umsögnum komu fram áhyggjur af réttindum starfsfólks við lagabreytingarnar og bent á að ekkert í frumvarpinu tryggi að starfandi heilbrigðisfulltrúar haldi áunnum kjörum og réttindum við yfirfærslu frá sveitarfélögum til Umhverfis- og orkustofnunar, þar á meðal vegna námsleyfis, lengds uppsagnarfrests, veikindaréttar og greiðslu í lífeyrissjóð. Einnig er gagnrýnt að ekki sé skýrt hvernig fer með orlofsréttindi starfsfólks og farið fram á að sá hluti áunnins orlofs sem ávinnst frá 1. maí 2026 til gildistöku laganna, þ.e. orlof til úttektar eftir 1. maí 2027, flytjist með starfsfólki sem kjósi að taka starfi hjá Umhverfis- og orkustofnun þannig að það geti notið fulls orlofs næsta sumar. Líkt og kemur fram í upplýsingum ráðuneytisins til nefndarinnar, dags. 8. júní 2026, undirritaði Umhverfis- og orkustofnun stofnanasamning við Félag íslenskra náttúrufræðinga á síðasta ári en flestir heilbrigðisfulltrúar eru í því stéttarfélagi og gerir samningurinn ráð fyrir endurskoðun vegna heilbrigðiseftirlitanna. Leggur meiri hlutinn áherslu á að eitt af viðfangsefnum þeirrar endurskoðunar verði áðurnefnd áunnin réttindi þess starfsfólks sem flyst yfir til stofnunarinnar. Bendir meiri hlutinn á að um veikindarétt er sérstök regla í kjarasamningum opinberra aðila þar sem fram kemur að auk starfsaldurs hjá núverandi stofnun skuli telja starfstíma hjá öðrum stofnunum ríkisins, sveitarfélögum og sjálfseignarstofnunum sem kostaðar eru að meiri hluta af almannafé. Í áðurnefndum upplýsingum ráðuneytisins kemur jafnframt fram að unnið sé að því að gera yfirfærslu áunnins orlofs yfirstandandi orlofsárs mögulega en til þess þurfi samvinnu sveitarfélaga og Fjársýslu ríkisins. Að öðrum kosti fái starfsfólk greitt út orlof sitt við starfslok hjá sveitarfélögum sem komi á móti því leyfi sem það óskar eftir að taka hjá Umhverfis- og orkustofnun þar til orlofsréttur hefur myndast hjá stofnuninni. Jafnframt sé verið að kanna möguleikann á að starfsfólk heilbrigðiseftirlitanna geti áfram greitt í sama lífeyrissjóð. Meiri hlutinn fagnar þessu og beinir því til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis að huga sérstaklega að kjarasamningsbundnum réttindum starfsfólks sem flyst yfir til Umhverfis- og orkustofnunar.
    Í greinargerð með ákvæði til bráðabirgða kemur fram að áætlað sé að um 35–45 stöðugildi verði til hjá Umhverfis- og orkustofnun með lagabreytingunum. Þá sé gert ráð fyrir að fyrri störf verði lögð niður og viðkomandi hafi þá forgang til að ráða sig í nýtt starf hjá stofnuninni. Starfsfólk kunni að þurfa að hlíta breytingum á starfi eða starfsstigi í samræmi við skipulag stofnunarinnar og starfslýsingu. Í áðurnefndum upplýsingum ráðuneytisins til nefndarinnar kemur fram að stefnt sé að því að nýtt skipurit Umhverfis- og orkustofnunar með verkefnum heilbrigðiseftirlitanna verði tilbúið innan fjögurra vikna frá samþykkt frumvarpsins og séu drög að tveimur sviðsmyndum þegar til skoðunar hjá stofnuninni. Þá kemur fram að stofnunin hafi unnið drög að ráðningarbréfi fyrir starfsfólk sem kemur frá heilbrigðiseftirlitum til stofnunarinnar verði frumvarpið að lögum. Stefnt sé að því að innan fjögurra vikna frá samþykkt frumvarpsins liggi fyrir hversu mörg störf bjóðast og á hvaða stað í skipuriti stofnunarinnar. Þá sé stefnt að því að ráðningarbréf verði send til fólks sem býðst og þiggur störf áður en uppsagnarbréf berst. Meiri hlutinn telur þetta jákvætt og hvetur til þess að starfsfólki sé haldið upplýstu um framgang þeirrar undirbúningsvinnu sem nú stendur yfir hjá Umhverfis- og orkustofnun.

Innleiðing og framkvæmd.
    Meiri hlutinn beinir því til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis að hugað verði sérstaklega að innleiðingu frumvarpsins og framkvæmd þess. Meiri hlutinn tekur alvarlega þær athugasemdir sem borist hafa nefndinni sem snúa fyrst og fremst að innleiðingu og framkvæmd þeirra breytinga sem lagðar eru til með frumvarpinu. Með vönduðum undirbúningi við innleiðingu þeirra breytinga er unnt að lágmarka áhættu á þjónusturofi og tryggja að breytingarnar hafi ekki neikvæð áhrif á þjónustu eða viðbragðsgetu stjórnvalda.

Breytingartillögur.
Samþykktir um húsdýrahald.
    Í minnisblaði frá ráðuneytinu er á það bent að í lögum um búfjárhald, nr. 38/2013, komi fram að sveitarstjórn sé heimilt að setja sér samþykkt um búfjárhald og að jafnframt sé kveðið á um heimild sveitarfélags til að setja sér samþykkt um húsdýrahald í lögum nr. 7/1998. Meiri hlutinn leggur til breytingu þess efnis að orðin „og húsdýrahalds“ falli brott úr 59. gr. laga nr. 7/1998, enda er um tvítekningu að ræða.

Skýrari heimildir sveitarfélaga.
    Fyrir nefndinni bárust ábendingar um að gjaldtökuheimildir sveitarfélaga væru ekki nógu skýrar í frumvarpinu. Leggur meiri hlutinn til breytingar á 30. gr. frumvarpsins með það að markmiði að koma til móts við þær athugasemdir.

Breytingar við 6. gr.
    Með 6. gr. frumvarpsins eru lagðar til breytingar á 4. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, en það ákvæði kveður á um heimild ráðherra til að setja í reglugerð ákvæði um tiltekin atriði. Í minnisblaði frá ráðuneytinu er lagt til að 4. og 21. tölul. ákvæðisins falli brott með það að markmiði að koma í veg fyrir tvíverknað og skörun við eftirlit, enda er sú starfsemi sem þar er nefnd nú þegar eftirlitsskyld hjá Matvælastofnun. Leggur meiri hlutinn til breytingar á 6. gr. til samræmis við tillögur ráðuneytisins.
    Að lokum leggur meiri hlutinn til lagatæknilegar breytingar sem ekki er ætlað að hafa efnisleg áhrif.

    Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


     1.      Í stað orðanna „Matvælastofnun“ og „Matvælastofnunar“ í c-lið 3. gr., b-lið 29. gr., 67. gr., 72. gr. og 74. gr. komi, í viðeigandi falli: Stofnun atvinnuveganna.
     2.      Við 6. gr. bætist tveir nýir stafliðir, svohljóðandi:
                  a.      4. tölul. fellur brott.
                  b.      21. tölul. fellur brott.
     3.      Við 30. gr. bætist tveir nýir stafliðir, svohljóðandi:
                  a.      Orðin „og húsdýrahalds“ í 1. tölul. 1. mgr. falla brott.
                  b.      Við 1. málsl. 5. mgr. bætist: og eftirlit, þ.m.t. sýnatöku, eftirfylgni eftirlits og beitingu þvingunarúrræða, sbr. XVII. kafla.
     4.      5., 6., 7., 8., 15. og 34. tölul. b-liðar 37. gr. falli brott.
     5.      Á eftir 39. gr. komi nýr kafli, V. KAFLI, Breyting á lögum um brunavarnir, nr. 75/2000, með tveimur nýjum greinum, svohljóðandi:
                  a.      (40. gr.)
                      Í stað orðsins „heilbrigðiseftirlits“ í 3. mgr. 16. gr. laganna kemur: Umhverfis- og orkustofnunar.
                  b.      (41. gr.)
                      Í stað orðanna „heilbrigðisfulltrúi viðkomandi sveitarfélags“ í 2. málsl. 1. mgr. 29. gr. laganna kemur: Umhverfis- og orkustofnun.
     6.      Á eftir 62. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
                 Orðin „og skal hann vera starfandi heilbrigðisfulltrúi“ í 1. mgr. 13. gr. laganna falla brott.
     7.      Í stað orðsins „sveitarfélögum“ í 70. gr. komi: Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

    Jens Garðar Helgason og Ólafur Adolfsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 11. júní 2026.

María Rut Kristinsdóttir,
form., frsm.
Ása Berglind Hjálmarsdóttir. Dagur B. Eggertsson.
Grétar Mar Jónsson. Sigurður Helgi Pálmason.