Ferill 651. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1357  —  651. mál.




Svar


utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur um skipan í stjórnir, nefndir, ráð, vinnu- og starfshópa.


     1.      Í hvaða nefndir, ráð, vinnu- og starfshópa er skipað á vegum ráðherra? Hvaða einstaklingar hafa verið skipaðir í hvert sæti á kjörtímabilinu, til hversu langs tíma og hvaða póstar eru launaðir?
    Utanríkisráðherra skipar í þróunarsamvinnunefnd samkvæmt lögum nr. 121/2008, um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands, og í heiðursmerkjanefnd samkvæmt forsetabréfi nr. 76/2024 um heiðursmerki íslensku utanríkisþjónustunnar. Þá skipar ráðherra 31 fulltrúa í útflutnings- og markaðsráð til fjögurra ára í senn og jafnmarga til vara, sbr. 4. mgr. 2. gr. a laga nr. 38/2010, um Íslandsstofu, sjálfseignarstofnun.
    Á yfirstandandi kjörtímabili hefur utanríkisráðherra skipað í eftirfarandi nefndir, ráð, vinnu- og starfshópa:

               Þróunarsamvinnunefnd
Skipuð Formaður:
Stella Samúelsdóttir , UN Women Íslandi , formaður

Aðalfulltrúar:

Birna Þórarinsdóttir , UNICEF á Íslandi
Dagbjört Hákonardóttir, Samfylkingunni
Diljá Mist Einarsdóttir, Sjálfstæðisflokki
Halldór Halldórsson , Íslenska kalkþörungafélaginu
Ingvar Þóroddsson , Viðreisn
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir , Flokki fólksins
Kristín Ólafsdóttir , Hjálparstarfi kirkjunnar
Ragnar Schram , SOS Barnaþorpum
Sólrún María Ólafsdóttir , Rauða krossinum á Íslandi
Stefán Vagn Stefánsson , Framsóknarflokki
Sveinn Óskar Sigurðsson , Miðflokki
Sjöfn Vilhelmsdóttir , Landgræðsluskóla GRÓ
Valmundur Valmundarson , Sjómannasambandi Íslands
Þór Heiðar Ásgeirsson , Sjávarútvegsskóla GRÓ
Skipuð Þróunarsamvinnunefnd
Varafulltrúar:

Bjarni Gíslason , Hjálparstarfi kirkjunnar
Bjarni Richter , Jarðhitaskóla GRÓ
Halla Hrund Logadóttir , Framsóknarflokki
Helga Bára Bragadóttir , SOS Barnaþorpum
Dr. Irma Erlingsdóttir , Jafnréttisskóla GRÓ
Lilja Hrund Lúðvíksdóttir , Samtökum atvinnulífsins
Ómar Már Jónsson , Miðflokki
Ragnar Gunnarsson , Sambandi íslenskra kristniboðsfélaga
Ragnar Þór Ingólfsson , Flokki fólksins
Sara McMahon , UN Women Íslandi
Sigmar Guðmundsson , Viðreisn
Sigmundur Ernir Rúnarsson , Samfylkingunni
Steinunn Jakobsdóttir , UNICEF á Íslandi
Skipunartími      Skipunartími formanns frá 16. ágúst 2024 til 16. ágúst 2028 (skipuð á síðasta kjörtímabili)
Skipunartími aðalfulltrúa og varafulltrúa frá 23. maí 2025 til 23. maí 2029
Þóknun      Ekki er greidd sérstök þóknun fyrir setu í nefndinni
Heiðursmerkjanefnd
Skipuð      Martin Eyjólfsson , ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytis, formaður
Katrín Einarsdóttir, prótókollstjóri utanríkisráðuneytis
Birgir Hrafn Búason, mannauðsstjóri utanríkisráðuneytis
Skipunartími      Seta í nefndinni er ótímabundin en bundin við skipunartíma eða setningu í tilgreind störf , sbr. 8. gr. forsetabréfs um heiðursmerki íslensku utanríkisþjónustunnar
Þóknun      Ekki er greidd sérstök þóknun fyrir setu í nefndinni
    
                         Starfshópur um utanríkisviðskipti og efnahagslegt öryggi
Skipuð      Dr. Benedikt Jóhannesson , formaður
Hlynur Guðjónsson , sendifulltrúi í utanríkisráðuneyti
Dr. Sigurður Páll Ólafsson , skrifstofustjóri í fjármála- og efnahagsráðuneyti
Anna Hrefna Ingimundardóttir , aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
Dr. Sveinn Agnarsson , prófessor við Háskóla Íslands
Skipunartími      Frá 17. desember 2025 fram að skilum á niðurstöðum og tillögum sem áætlað er að verði í ágúst 2026
Þóknun      Samkvæmt ákvörðun þóknananefndar
                        
                              Starfshópur um hagsmunagæslu stjórnvalda vegna endurskoðunar ETS-kerfis vegna millilandaflugs
Skipuð      Ingólfur Friðriksson , skrifstofustjóri í utanríkisráðuneyti, formaður
Guðmundur V. Friðjónsson , sérfræðingur í atvinnuvegaráðuneyti
Guðrún Heiður Ísaksdóttir , sérfræðingur í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti
Vala Hrönn Viggósdóttir , lögfræðingur í innviðaráðuneyti
Skipunartími      Frá 6. október 2025. Erindi starfshópsins tekur mið af þróun í lagasetningarferli Evrópusambandsins og upptökuferli í EES-samninginn
Þóknun      Ekki er greidd sérstök þóknun fyrir setu í starfshópnum
                                  
Matshópur um styrkveitingar utanríkisráðuneytisins til félagasamtaka í þróunarsamvinnu
Skipuð      Sólveig Ólafsdóttir , sérfræðingur
Sunna Kristín Hilmarsdóttir , verkefnastjóri hjá Háskólanum í Reykjavík
Þórður Kristinsson , mannfræðingur
Skipunartími      3. júní 2025 til 2. júní 2026
Þóknun      Samkvæmt ákvörðun þóknananefndar
                         Matshópur Heimsmarkmiðasjóðs atvinnulífs um þróunarsamvinnu
Skipuð      Huld Ingimarsdóttir , fyrrverandi fjármálastjóri hjá Reykjavíkurborg
Konráð S. Guðjónsson , hagfræðingur hjá Kontext ehf. og fyrrverandi efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar
Regína Bjarnadóttir , þróunarhagfræðingur og framkvæmdastjóri Aurora Foundation
Skipunartími      1. maí 2025 til 30. apríl 2027
Þóknun Samkvæmt ákvörðun þóknananefndar

     2.      Í hvaða stjórnir er skipað á vegum ráðherra? Hvaða einstaklingar hafa verið skipaðir í hverja stjórn á kjörtímabilinu og til hversu langs tíma? Hverjir þeirra eru jafnframt starfsmenn ráðuneyta og í hvaða stjórnum sitja þeir?
    Utanríkisráðherra skipar stjórn GRÓ – Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu til sex ára í senn í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 1260/2019.
    Núverandi skipun stjórnar er sem hér segir:
     –      Ólafur Stephensen, formaður
     –      Dr. Antonio Abreu, fulltrúi aðalframkvæmdastjóra UNESCO
     –      Halla Jónsdóttir, fulltrúi menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis
     –      Sæunn Stefánsdóttir, fulltrúi íslensku UNESCO nefndarinnar
     –      Ragnar Schram, fulltrúi þróunarsamvinnunefndar
    Skipunartími formanns er frá 20. apríl 2026 og skipunartími annarra stjórnarmeðlima er frá 12. febrúar 2026.
    Af framangreindum einstaklingum er Halla Jónsdóttir starfsmaður Stjórnarráðs Íslands.