Ferill 662. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1364  —  662. mál.


                                  

Svar


umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn frá Heiðbrá Ólafsdóttur um torfhúsaarf Íslendinga.


     1.      Hver er fjöldi skráðra torfhúsa hér á landi?
    Engin gagnger úttekt hefur verið gerð á uppistandandi torfhúsum á landsvísu. Vönduð skráning og rannsókn var gerð á uppistandandi torfhúsum í Skagafirði og var skráningarskýrsla gefin út árið 2024, og voru þar skráð 59 torfhús. Slíkar upplýsingar liggja ekki enn fyrir í öðrum landshlutum.
    Varðveisla torfhúsa og torfhúsaarfsins af hálfu hins opinbera fer einna helst fram hjá byggðasöfnum og Þjóðminjasafni Íslands. Í húsasafni Þjóðminjasafns Íslands eru níu torfhús og fimm torfkirkjur, auk annarra mannvirkja þar sem torf er hluti af byggingarefni. Húsin eru um allt land. Þá eru torfhús hluti af safnkosti ýmissa byggðasafna líkt og Árbæjarsafns, Skógasafns o.fl. Bent hefur verið á að safnkosturinn endurspegli fremur kirkjur og stór höfuðból en síður alþýðubýli og útihús.
    Torfhúsaarfur Íslendinga er einstakur á heimsvísu en ætla má að hvergi annars staðar í heiminum standi fleiri torfhús en á Íslandi. Jafnframt má ætla að á fáum, ef einhverjum, stöðum í heiminum sé byggingarsaga heillar þjóðar, frá upphafi til nútíma, einskorðuð við torfhús líkt og á Íslandi. Þar sem hér standa enn torfhús, ólíkt mörgum öðrum löndum, sækir hingað erlent handverksfólk til þess eins að fá kennslu í handverkinu til að viðhalda því litla sem eftir er af torfi í þeirra heimalandi.

     2.      Hvað hafa mörg skráð torfhús horfið, fallið eða orðið að tóftum vegna skorts á viðhaldi?
    Þar sem rannsókn, svo sem skráning á torfhúsum á landsvísu, hefur ekki verið framkvæmd er óvíst hve mörg þeirra hafa fallið á sl. árum. Engu að síður má ætla að niðurstöður rannsóknar Byggðasafns Skagfirðinga, Torfhús í Skagafirði (2024), gefi mynd af stöðu torfhúsa á landsvísu en þar segir: „Afdrif 37 torfhúsa sem skráð voru á tímabilinu 1989–2021 voru könnuð. Af þessum húsum voru 62% horfin eða orðin að tóftum, 5% voru hálffallin en 33% voru enn uppistandandi. Ef ekkert verður að gert verða flest þeirra húsa sem eru uppistandandi í dag fallin eða horfin innan fárra ára eða áratuga.“

     3.      Hvað búa margir einstaklingar hér á landi yfir þeirri sérhæfðu handverksþekkingu sem torfhleðsla krefst?
    Staða torfhúsaarfsins á Íslandi og þeirrar sérhæfðu handverksþekkingar, á grindarsmíði, torf- og grjóthleðslu, sem húsagerðin krefst, er á hröðu undanhaldi.
    Í húsasafni Þjóðminjasafns Íslands er að finna meginhluta best varðveittra torfhúsa og torfkirkna landsins og má segja að með viðgerðum á þeim viðhaldist hluti þekkingarinnar.
Örfáir einstaklingar búa yfir nægilega góðri þekkingu til að taka að sér verkefni tengd torfhúsaarfinum. Í Fornverkaskólanum er almenningi veitt innsýn í hleðslutækni. En fagleg geta til að taka að sér stærri verkefni er snúa til að mynda að safnhúsum, friðuðum og friðlýstum torfhúsum, krefst yfirgripsmikillar þekkingar og reynslu. Sú reynsla og þekking fæst fyrst og fremst með þátttöku í raunverulegum verkefnum, líkt og viðgerðum á ólíkum gerðum torfhúsa. Ef viðgerðir og viðhald á torfhúsum er ekki til staðar mun þekkingin fjara út.

     4.      Með hvaða hætti ætla stjórnvöld að viðhalda þeirri þekkingu?
    Húsasafn Þjóðminjasafns Íslands er kjarni safnkostsins á landsbyggðinni. Húsasafnið veitir innsýn í húsakost þjóðarinnar á fyrri tíð og þróun húsagerðar. Meðal húsa safnsins eru nær allir stærstu og merkustu torfbæir landsins og flestar torfkirkjur sem eru í upprunalegri gerð. Þeir handverksmenn sem komið hafa að verki við viðhald safnsins undanfarna áratugi, bæði hvað varðar torf- og grjóthleðslu og timbursmíð, eru fáir og hafa þekkingu sína ekki úr skólakerfinu, heldur hefur hún borist frá einni kynslóð til annarrar sem óáþreifanlegur menningararfur. Eftir að þjóðin hætti að búa í torfhúsum fjaraði undan þessari þekkingu og þeir sem kunnu til verka fengu verkefni sín fyrst og fremst við viðhald safnhúsa. Fólk í minjavörslunni hefur lengi verið meðvitað um þessa stöðu. Til þess að tryggja betur viðhald húsasafnsins og þá þekkingu á handverki sem var til staðar voru um síðustu aldamót uppi hugmyndir um að setja á laggirnar verkstæði á vegum Þjóðminjasafnsins. Með því átti að halda betur utan um verkefni húsasafnsins og jafnvel fastráða handverksmenn til að tryggja þeim stöðuga atvinnu og þar með treysta viðhald þekkingar á þessu sviði. Miklar breytingar urðu um það leyti á starfsemi safnsins, m.a. ný þjóðminjalög sem gengu í gildi árið 2001, flutningur á safninu o.fl. sem varð til þess að þessi áform náðu ekki fram að ganga.
    Mikið gæfuspor var stigið þegar Fornverkaskólinn í Skagafirði tók til starfa árið 2006 að frumkvæði Byggðasafns Skagfirðinga. Er hann enn starfandi nú, 20 árum síðar, og mikill fjöldi fólks, bæði Íslendingar og erlendir nemar, hafa notið leiðsagnar þar í fornu handverki. Viðfangsefni skólans hefur mjög beinst að endurgerð og viðhaldi á gamla Tyrfingsstaðabænum á Kjálka. Minjastofnun Íslands hefur á undaförnum árum styrkt starfsemi skólans með framlögum úr húsafriðunarsjóði.
    Rekstur skólans hefur þó stundum reynst þungur og árið 2016 óskaði þáverandi safnstjóri byggðasafnsins eftir aukinni aðkomu Minjastofnunar Íslands og ríkisins að skólanum til að tryggja betur starfsgrundvöll hans. Í kjölfarið fóru fram umræður innan minjavörslunnar um varðveislu forns handverks og voru m.a. endurvaktar gamlar hugmyndir um að ríkið tæki yfir bygginguna Villa Nova á Sauðárkróki og kæmi þar upp handverksmiðstöð í Skagafirði með tengslum við Fornverkaskólann. Var hugmyndin m.a. sú að tengja þessa þekkingu betur við íslenska skólakerfið, iðn- og fjölbrautaskóla. Voru þessar hugmyndir m.a. til umræðu innan forsætisráðuneytis en áður höfðu svipaðar hugmyndir verið til skoðunar í menntamálaráðuneyti.
    Loks má nefna að lögð var fram á Alþingi 2024 þingsályktunartillaga um varðveislu gamals handverks (Tillaga til þingsályktunar um viðhald fagþekkingar á hefðbundnu og fornu handverki. 155. löggjafarþing 2024–2025. Þskj. 83, 83. mál), en tillaga þessi var unnin í samráði við Minjastofnun Íslands. Þingsályktunartillaga þessi var áður lögð fram á 154. löggjafarþingi ( 565. mál). Þar segir; „Nauðsynlegt er að móta og hrinda í framkvæmd áætlun um viðhald fagþekkingar á hefðbundnu og fornu handverki á Íslandi. Hætt er við því að sú þekking, sem oft hvílir á herðum örfárra einstaklinga, glatist með tímanum. Gera þarf átak í handverksmenntun einstaklinga og fjölgun viðhaldsverkefna á menningarminjum.“
    Haustið 2023 var haldið málþing í Skagafirði sem bar yfirskriftina „Torfarfurinn – málþing um varðveislu byggingarhandverks“ og var haldið í tilefni heimsóknar nema í fornu handverki ásamt kennurum frá NTNU háskólanum í Þrándheimi í Noregi, en auk þeirra komu þar saman margir helstu sérfræðingar Íslands í fornu handverki til samtals um þennan málaflokk. Þar komu skýrt fram áhyggjur manna af stöðu þessara mála í landinu, ekki síst vegna þess hversu fáir fagmenn sinna verkefnum á sviði torfarfsins. Jafnframt var bent á að þekkingu verði eingöngu komið til komandi kynslóða í gegnum raunveruleg verkefni þar sem mönnum gefst tækifæri til þess að læra ólík vinnubrögð. Ljóst er að töluverður fjöldi torfhúsa er enn uppistandandi en fjármagn til viðgerða af skornum skammti. Þótt þekkingin sé til staðar í dag þá eru þær viðgerðir sem ráðist er í yfirleitt minni háttar. Ef viðgerðir og viðhald á torfhúsum er ekki til staðar mun þekkingin fjara út. Viðhald á húsasafni Þjóðminjasafns Íslands myndi gegna lykilhlutverki við að koma nauðsynlegri þekkingu milli kynslóða. Almennt séð hafa aðrir torfhúsaeigendur ekki endilega þekkingu eða fjárráð til að standa í viðgerðum og viðhaldi á slíkum byggingum.
    Fólk innan minjavörslunnar hefur lengi verið meðvitað um þann vanda sem við blasir varðandi varðveislu torfhúsaarfsins. Síðasti aldarfjórðungur er varðaður góðum áformum sem af ýmsum ástæðum hafa ekki gengið eftir. Stærsti vandinn er líklega sá að torfhús eru komin úr almennri notkun og því lítill markaður fyrir þessa sérþekkingu. Um 15 torfhús, -kirkjur og tilheyrandi mannvirki úr torfi eru í húsasafni Þjóðminjasafns Íslands og eru því safngripir. Ætla má þó að meiri hluti torfbygginga á landsvísu sé ekki í eigu eða vörslu ríkisins og skiptist ábyrgðin á viðhaldi þeirra á ólíka aðila. Jafnframt er þörf á að viðhalda handverksþekkingunni sem þarf til framtíðar. Byggingar þessar þurfa hins vegar ekki að standa sem dauðar skeljar. Það er lykilatriði að finna þessum húsum hlutverk við hæfi og í sumum þessara húsa og bæja eru nú þegar rekin söfn sem draga til sín þúsundir ferðamanna á hverju ári.
    Varðandi varðveislu og nýtingu torfhúsa má benda á nýlega rannsókn Sigríðar Sigurðardóttur sem unnin var á vegum ferðamáladeildar Háskólans á Hólum, „Viðhorf til nytja- og minjagildis torfbygginga“ og „Torfbyggingar í ferðaþjónustu, viðhorf og hugmyndir“ (Háskólinn á Hólum, 2020).

     5.      Hver er stefna stjórnvalda er varðar varðveislu torfhúsaarfs Íslendinga sem er einstakur á heimsvísu?
    Minjastofnun Íslands birti árið 2022 stefnu stjórnvalda um verndun og rannsóknir á fornleifum og byggingararfi 2022–2027 1 í samræmi við a-lið 8. gr., a-lið 9. gr. og b-lið 11. gr. laga um menningarminjar, nr. 80/2012. Í þeirri stefnu kemur fram að mikilvægt sé að styðja við fagþekkingu á hverjum tíma og gæta þess að þekking á fornu handverki sem tengist viðhaldi fornleifa, byggingararfs og báta glatist ekki og sé miðlað áfram til komandi kynslóða. Þessi handverksþekking verði að vera til staðar í landinu svo að hægt sé að halda við menningararfi sem undir málaflokkinn heyrir. Einnig þurfi að efla þekkingu á smíðatólum og byggingarefnum fyrri tíma. Lögð er áhersla á nauðsyn þess að stuðla að stöðugri nýliðun og miðlun þekkingar milli kynslóða ásamt því að fjölga viðhaldsverkefnum (sjá sérstaklega markmið nr. 4, bls. 16–18, auk fimm skilgreindra aðgerða). Varðveisla verkþekkingar er mikilvæg á fleiri sviðum byggingararfsins, svo sem í viðgerðum á eldri timburhúsum og við meðhöndlun bárujárns, sem fæstir iðnnemar kynnast lengur í námi sínu. Bent hefur verið á þann möguleika að styrkja iðnnema og iðnaðarmenn til að vinna með reynslumiklum handverksmönnum á þeim sviðum sem snúa að varðveislu séríslenskra byggingaraðferða og hefða.
    Í nýlegri skýrslu starfshóps á vegum umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis, Minjavernd – staða, áskoranir og tækifæri, er víða fjallað um mikilvægi þess að handverksþekkingu sé haldið við, m.a. í 3. kafla, en þar segir m.a.; „Til þess að viðhalda þessari þekkingu þarf að tryggja henni sess í menntakerfi þjóðarinnar. Boða þarf til samtals milli skólayfirvalda iðnnáms á Íslandi og minjavörslu um það hvernig handverksþekkingunni verði best viðhaldið á Íslandi. Við Norska vísinda- og tækniháskólann (NTNU) í Þrándheimi er hefðbundið handverk kennt til bakkalárgráðu. Það nám er fjármagnað beint af ríkinu. Í Noregi hafa þrjú ráðuneyti sameinast um að fjármagna kennslu á háskólastigi í viðhaldi handverksþekkingar. Á Íslandi mætti sjá fyrir sér samstarf viðkomandi ráðuneyta um kennslu í fornu handverki á framhaldsskólastigi, hvort sem það væri í formi sérnáms eða einstakra áfanga. Benda má á að Byggðasafn Skagfirðinga hefur til margra ára rekið Fornverkaskólann. Tryggja mætti rekstrargrundvöll skólans og tengja hann formlegu iðnnámi við framhaldsskóla.“
    Loks má nefna að Ísland hefur staðfest samning UNESCO frá árinu 2003 um varðveislu óáþreifanlegs menningararfs, en samningurinn öðlaðist gildi hér á landi árið 2006. Með þátttöku sinni hefur Ísland skuldbundið sig til að halda utan um og vernda lifandi hefðir, siði og handverk í landinu. Ísland hefur tekið nokkur skref í þessa átt, en nefna má í því sambandi vefinn Lifandi hefðir 2 sem þjónar sem opinber yfirlitsskrá yfir óáþreifanlegan menningararf á Íslandi. Torfhleðsla, torfskurður og -stunga eru meðal atriða á yfirlitsskránni. Í tengslum við þetta má nefna að smíði og notkun súðbyrðinga var skráð á heimslista UNESCO árið 2021, en það var gert á grundvelli sameiginlegrar tilnefningar Norðurlandanna. Fyrsta sjálfstæða tilnefning Íslands var samþykkt á lista UNESCO árið 2025, um íslenska sundlaugamenningu.

1     www.minjastofnun.is/is/um-okkur/stefnumotun
2     lifandihefdir.is/