Ferill 552. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1365 — 552. mál.
Svar
umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn frá Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur um stafrænt fullveldi Íslands.
1. Hvaða gagnavinnsla og gagnageymsla á vegum ráðuneytisins er í skýjum erlendra fyrirtækja? Óskað er eftir upplýsingum um hvort um er að ræða evrópsk fyrirtæki eða bandarísk.
Sameiginlegar skýjalausnir ráðuneytanna byggjast að verulegu leyti á þjónustu Microsoft. Fyrst og fremst er um að ræða lausnir innan skrifstofuhugbúnaðarsvítunnar Microsoft 365. Dæmi um lausnir innan Microsoft 365 eru Outlook, Word, Excel, PowerPoint, Teams o.s.frv. sem eru nýttar í daglegum rekstri.
Helstu kerfi ráðuneytisins eru eftirfarandi:
| Hugbúnaður/kerfi | Fyrirtæki | Höfuðstöðvar fyrirtækis | Gögn vistuð | Heimilisfang endanlegra eigenda |
| Microsoft 365 | Microsoft Írland | BNA | EES | BNA |
| Málaskrá | Hugvit | Ísland | Ísland | Ísland |
2. Hvaða gögn á vegum ráðuneytisins eru geymd í skýjum erlendra fyrirtækja? Óskað er eftir upplýsingum um hvort um er að ræða evrópsk fyrirtæki eða bandarísk.
Gögn ráðuneytanna sem hýst eru í skýjalausnum erlendra þjónustuaðila eru fyrst og fremst tilkomin vegna almennra daglegra starfa. Þetta eru til að mynda tölvupóstar, skjöl, samskiptagögn, dagatöl, skrár og önnur rekstrargögn sem verða til í daglegri starfsemi.
3. Hefur ráðuneytið skilgreint stafrænt fullveldi í netmiðlun þess?
Nei, ráðuneytið hefur ekki sett fram slíka skilgreiningu.
4. Er rótarfang, vefur, póstþjónn eða nafnaþjónn ráðuneytisins og undirstofnana skráður á Íslandi?
Upplýsingar um skráningu rótarfangs, vefs, póstþjóns og nafnaþjóns ráðuneytisins og stofnana þess má nálgast í meðfylgjandi töflu.
| Stofnun | Rótarfang | Vefur | Póstþjónn | Nafnaþjónn |
| Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið | Já | Já | Já | Já |
| Land og skógur | Já | Nei | Nei | Nei |
| Minjastofnun Íslands | Já | Nei | Nei | Já |
| Náttúrufræðistofnun | Já | Nei | Nei | Nei |
| Náttúruverndarstofnun | Já | Nei | Nei | Já |
| Umhverfis- og orkustofnun | Já | Já | Nei | Já |
| Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála | Já | Já | Nei | Nei |
| Úrvinnslusjóður | Já | Já | Nei | Já |
| Veðurstofa Íslands | Já | Nei | Nei | Já |
5. Hefur verið tryggt innan ráðuneytisins að tölvupóstur sé virkur ef samband rofnar við útlönd?
Til er viðbragðsáætlun til að tryggja tölvupóstsamskipti ef samband við útlönd rofnar. Þorri tölvupóstþjónustu stjórnvalda er í skýjalausnum utan Íslands og viðbragðsáætlunin tekur mið af tveimur meginsviðsmyndum:
Ef hefðbundið netsamband um sæstrengi dettur út hefur Umbra, í samstarfi við Farice, komið á varaleið um gervihnetti sem þegar er komin í prófanir. Þessi leið tryggir að bæði innlend og erlend tölvupóstsamskipti haldi áfram án verulegs rofs. Til lengri tíma litið hefur Ísland einnig tryggt sér aðgang að öruggum fjarskiptatengingum í gegnum gervihnattakerfi Evrópusambandsins sem styrkir þessar varnir enn frekar.
Ef allt samband rofnar við útlönd, þ.m.t. gervihnattasamband, fellur tenging við skýjalausnir erlendis niður. Í þeirri sviðsmynd tekur við viðbragðsáætlun um að endurreisa staðbundið póstkerfi sem byggist á gagnaafritum sem hýst eru á Íslandi. Slík endurreisn tryggir innlenda tölvupóstþjónustu milli ráðuneytanna og annarra innlendra aðila.