Ferill 394. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1367  —  394. mál.




Svar


umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn frá Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur um eitrunaráhrif svartolíu á norðurslóðum.

    
    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvernig hyggst ríkisstjórnin vernda viðkvæm sjávarvistkerfi og fiskstofna á norðurslóðum fyrir langvarandi eitrunaráhrifum svartolíu, þ.m.t. þungmálmum og fjölhringja arómatískum kolvetnum (PAH)?
    
    Hér er spurt sérstaklega um vernd sjávarvistkerfa og fiskstofna á norðurslóðum vegna svartolíu og er gert ráð fyrir að þar sé átt við norðurslóðir eins og þær eru skilgreindar af hálfu Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar (IMO). Sérstakar bindandi reglur gilda á vegum IMO um siglingar og mengunarvarnir skipa á norðurslóðum, svokallaður Pólkóði (Polar Code), sem gekk í gildi 2017 eftir áralangar samningaviðræður. Áhrifasvæði Pólkóðans í kringum Norðurheimskautið, ásamt helstu förnum og mögulegum siglingaleiðum, sést á korti sem fylgir hér með. Það svæði nær að litlu leyti yfir helstu siglingaleiðir til og frá Íslandi, eða varðandi fiskveiðar við Ísland. Það skýrist að miklu leyti af því að horft var m.a. til venjubundinnar útbreiðslu hafíss þegar mörk Pólkóðasvæðisins voru sett, en ekki bara til ákveðinnar breiddargráðu.
    Samkvæmt ákvæðum Pólkóðans eins og þau eru sett í MARPOL-samningnum um mengunarvarnir frá skipum er notkun og flutningur svartolíu bannaður við Suðurskautslandið. Notkun og flutningur svartolíu sem eldsneytis hefur verið bannaður innan áhrifasvæðis Pólkóðans á norðurslóðum frá og með 1. júlí 2024 en þó gilda undanþágur frá því fyrir tiltekin skip til 1. júlí 2029. Íslensk stjórnvöld hafa stutt hertar umhverfiskröfur varðandi skipaeldsneyti innan norðurslóða sem hafa ekki náð fram að ganga til þessa. Áframhaldandi umræða er um hertar reglur varðandi skipaeldsneyti og mengun frá skipum á norðurslóðum í IMO, sbr. svar við fyrirspurn um heimskautaeldsneyti.
    Almennt hefur dregið mjög úr notkun svartolíu í lögsögu Íslands á undanförnum árum og þar með úr neikvæðum umhverfisáhrifum hennar, sbr. svar við fyrirspurn um reglur um losun og eldsneytisnotkun skipa. Íslenski fiskiskipaflotinn hefur hætt notkun svartolíu, en flutningaskip og skemmtiferðaskip nota flest svartolíu á siglingu innan íslenskrar lögsögu, þótt strangari kröfur til eldsneytis hafi verið settar á alþjóðavísu og innan lands árið 2020.
    Umhverfis- og orkustofnun vaktar mengun í sjó við Íslandsstrendur í samræmi við kröfur OSPAR-samningsins um vernd NA-Atlantshafsins og annarra alþjóðlegra stofnana. Árið 2021 kom út skýrsla á vegum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, Ástand hafsins við Ísland, sem byggði á niðurstöðum þeirrar vöktunar. Þar segir m.a.: „Vöktun á mengunarefnum í sjó hefur almennt sýnt að styrkur þeirra er langt undir viðmiðunarmörkum sem skilgreind eru sem ásættanleg vegna heilsu manna og lífríkisins. Styrkur flestra efna er líka oftast minni en t.d. á hafsvæðum nálægt ströndum sunnar í Evrópu. Breytingar á styrk mengunarefna eru yfirleitt litlar. Engu að síður er mikilvægt að halda vöktun áfram, ekki síst vegna hagsmuna Íslands sem eyríkis og útflytjanda sjávarafurða þar sem nauðsynlegt er að sýna á hverjum tíma fram á hollustu afurða og heilbrigði hafsins.“
    Hvað þungmálma varðar þá er styrkur þeirra einkum vaktaður hér við land með mælingum í þorski og kræklingi, ásamt óbeinum mælingum á styrk tins. Styrkur þungmálma í sjávarlífverum við Ísland mælist yfirleitt nokkuð stöðugur en virðist almennt mega skýra af náttúrulegum orsökum og er yfirleitt undir viðmiðunarmörkum varðandi heilbrigði og viðunandi ástand umhverfisins.
    Samkvæmt áðurnefndri skýrslu frá 2021 er skýr vísbending um að styrkur ýmissa mengunarefna fari minnkandi við Íslandsstrendur, þar á meðal varðandi þrávirk lífræn efni, sem PAH-efni teljast til. Styrkur mældra efna er yfirleitt alltaf undir viðmiðunarmörkum varðandi heilbrigði og viðunandi ástand umhverfis. Varðandi PAH-efni sérstaklega þá hefur losun þeirra frá Íslandi dregist verulega saman, eða um 84%, frá 1990, samkvæmt tölum frá Umhverfis- og orkustofnun. Stór hluti þrávirkra mengunarefna á Íslandsmiðum kemur langt að frá uppsprettum utan Íslands, en þar hefur orðið jákvæð þróun varðandi mörg slík efni, m.a. vegna þess að alþjóðlegir samningar á borð við Stokkhólmssamninginn um þrávirk lífræn efni hafa skilað árangri.
    Þótt staða mála almennt hvað mengun af þessum völdum varðar sé góð á íslenskum hafsvæðum og þróun á undanförnum árum um margt jákvæð er mikilvægt að viðhalda öflugri vöktun á mengunarefnum í hafi og skoða frekari leiðir til að draga úr mengun vegna umhverfis- og efnahagslegra hagsmuna.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.