Ferill 391. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1370 — 391. mál.
Svar
umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn frá Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur um heimskautaeldsneyti.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Mun Ísland styðja samræmdar norrænar aðgerðir og beita sér hjá Alþjóðasiglingamálastofnuninni (IMO) fyrir viðurkenningu og skyldunotkun á heimskautaeldsneyti fyrir skip á norðurslóðum?
Ísland hefur stutt hertar aðgerðir til að draga úr mengun frá skipum á norðurslóðum á vettvangi IMO. Ísland studdi m.a. ályktun sem var samþykkt í umhverfisnefnd IMO (MEPC) árið 2021 þar sem aðildarríki og rekstraraðilar skipa eru hvattir til að velja að nota eimað eldsneyti með lágu innihaldi arómatískra efna eða aðra hreinni valkosti í eldsneyti eða knúningsaðferðir sem sýnt hefur verið fram á að dragi úr losun sótagna (e. black carbon) frá skipum þegar þau starfa á eða nærri Norðurslóðum. Ísland studdi einnig árið 2022 tillögu Norðmanna um að gerð verði breyting á skilgreiningu á svartolíu í viðauka I við MARPOL-samninginn vegna eiginleika nýrra eldsneytistegunda sem komið hafa á markaðinn. Á fundum MEPC hefur Ísland stutt að „heimskautaeldsneyti“ verði skilgreint.
Íslensk stjórnvöld munu áfram styðja tillögur sem miða að þessu, m.a. varðandi hugsanlegar breytingar á svokölluðum Pólkóða IMO (e. Polar Code), og horfa jákvæðum augum á breytingar sem snúa að heimskautaeldsneyti. Skoða þarf einstakar tillögur þess efnis og meta þær með tilliti til ávinnings og áhrifa á siglingar við Ísland. Tillaga sem nú liggur fyrir í IMO gerir ráð fyrir að áhrifasvæði fyrir skyldunotkun heimskautaeldsneytis nái langt út fyrir svæði Pólkóðans og m.a. yfir lögsögur Íslands og Noregs. Þar þarf að meta ávinning af sérstökum reglum í ljósi þess að siglingar á þessum slóðum eru á opnu hafi en ekki við ís. Ísland mun skoða þessa og aðrar tillögur um heimskautaeldsneyti í nánu samráði við önnur Norðurlönd og nágrannaríki og styðja aðgerðir sem hafa skýran ávinning en eru ekki of íþyngjandi fyrir siglingar við Ísland ef ekki er hægt að sýna fram á ávinning.