Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1375, 157. löggjafarþing 443. mál: Miðstöð menntunar og skólaþjónustu o.fl. (miðlægur nemendagrunnur).
Lög nr. 74 28. júní 2026.
I. KAFLI
Breyting á lögum um Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, nr. 91/2023.
Miðlægur nemendagrunnur.
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu skal starfrækja miðlægan nemendagrunn fyrir leik-, grunn- og framhaldsskólastig. Tilgangur grunnsins er að uppfylla markmið og lögbundnar skyldur samkvæmt lögum þessum, lögum um leikskóla, lögum um grunnskóla og lögum um framhaldsskóla.
Í grunninn er heimilt að skrá grunnupplýsingar um nemendur, svo sem persónuupplýsingar, upplýsingar um skóla, bekk og kennara, námsmat og stuðningsþarfir, þar á meðal heilsufarsupplýsingar og upplýsingar um félagslegar aðstæður, að því marki sem nauðsynlegt er svo unnt sé að veita lögbundna menntun og þjónustu. Að auki er heimilt að skrá upplýsingar um kennara og annað starfsfólk skóla, svo sem persónuupplýsingar, starfstitil og starfssvið. Í grunninn er heimilt að skrá aðrar upplýsingar að því marki sem það er nauðsynlegt til að ná tilgangi skv. 1. mgr.
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu getur annast umsýslu með innritun í leik-, grunn- og framhaldsskóla. Í þeim tilgangi er heimilt að taka á móti og vista umsóknir í miðlægan nemendagrunn til viðbótar upplýsingum skv. 2. mgr. Umsóknir eru gerðar aðgengilegar þeim aðila sem annast innritun og er vinnsla umsókna jafnframt á ábyrgð þess aðila.
Þeir sem bera ábyrgð á verkefnum samkvæmt lögum þessum, lögum um leikskóla, lögum um grunnskóla og lögum um framhaldsskóla skulu hafa aðgang að upplýsingum í grunninum að því marki sem það er nauðsynlegt svo að þeir geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu, svo sem skólar og rekstraraðilar þeirra, sveitarfélög og aðilar skólaþjónustu. Aðrir aðilar geta fengið aðgang að gögnum í grunninum á grundvelli sérstakrar lagaheimildar eða samþykkis í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
Þeim sem bera ábyrgð á verkefnum samkvæmt lögum um leikskóla, lögum um grunnskóla og lögum um framhaldsskóla er skylt að skrá upplýsingar í miðlægan nemendagrunn eða gera þær aðgengilegar til skráningar, eftir því sem kveðið er á um í reglugerð skv. 7. mgr.
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu ber ábyrgð á rekstri miðlægs nemendagrunns og er ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga fyrir grunninn í heild sinni. Aðilar sem skrá upplýsingar í grunninn bera ábyrgð á að upplýsingar séu réttar og uppfærðar og að heimild hafi staðið til söfnunar þeirra.
Ráðherra skal setja reglugerð þar sem kveðið er nánar á um skráningu og vinnslu persónuupplýsinga í miðlægum nemendagrunni, þar á meðal hvaða persónuupplýsingar heimilt er að vinna með og í hvaða tilgangi vinnsla þeirra er heimil, um verklag við vinnslu persónuupplýsinga, hvaða aðilar hafa aðgang að nemendagrunninum, tengingar við önnur kerfi, öryggisráðstafanir, ráðstafanir til að vernda grundvallarréttindi og upplýsingaskyldu gagnvart þeim sem upplýsingarnar fjalla um.
II. KAFLI
Breyting á lögum um leikskóla, nr. 90/2008.
Hvert sveitarfélag annast innritun barna í leikskóla. Miðstöð menntunar og skólaþjónustu getur annast umsýslu með innritun barna í leikskóla.
Um skráningu og vinnslu upplýsinga í miðlægan nemendagrunn fer samkvæmt lögum um Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.
III. KAFLI
Breyting á lögum um grunnskóla, nr. 91/2008.
Hvert sveitarfélag annast innritun nemenda í grunnskóla. Miðstöð menntunar og skólaþjónustu getur annast umsýslu með innritun nemenda í grunnskóla.
Um skráningu og vinnslu upplýsinga í miðlægan nemendagrunn fer samkvæmt lögum um Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.
IV. KAFLI
Breyting á lögum um framhaldsskóla, nr. 92/2008.
Um skráningu og vinnslu upplýsinga í miðlægan nemendagrunn fer samkvæmt lögum um Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.
Þingskjal 1375, 157. löggjafarþing 443. mál: Miðstöð menntunar og skólaþjónustu o.fl. (miðlægur nemendagrunnur).
Lög nr. 74 28. júní 2026.
Lög um breytingu á lögum um Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, lögum um leikskóla, lögum um grunnskóla og lögum um framhaldsskóla (miðlægur nemendagrunnur).
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. laganna:- Við 1. mgr. bætist nýr stafliður, svohljóðandi: starfrækja miðlægan nemendagrunn skv. 4. gr. a.
- Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
2. gr.
Á eftir 4. gr. laganna kemur ný grein, 4. gr. a, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:Í grunninn er heimilt að skrá grunnupplýsingar um nemendur, svo sem persónuupplýsingar, upplýsingar um skóla, bekk og kennara, námsmat og stuðningsþarfir, þar á meðal heilsufarsupplýsingar og upplýsingar um félagslegar aðstæður, að því marki sem nauðsynlegt er svo unnt sé að veita lögbundna menntun og þjónustu. Að auki er heimilt að skrá upplýsingar um kennara og annað starfsfólk skóla, svo sem persónuupplýsingar, starfstitil og starfssvið. Í grunninn er heimilt að skrá aðrar upplýsingar að því marki sem það er nauðsynlegt til að ná tilgangi skv. 1. mgr.
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu getur annast umsýslu með innritun í leik-, grunn- og framhaldsskóla. Í þeim tilgangi er heimilt að taka á móti og vista umsóknir í miðlægan nemendagrunn til viðbótar upplýsingum skv. 2. mgr. Umsóknir eru gerðar aðgengilegar þeim aðila sem annast innritun og er vinnsla umsókna jafnframt á ábyrgð þess aðila.
Þeir sem bera ábyrgð á verkefnum samkvæmt lögum þessum, lögum um leikskóla, lögum um grunnskóla og lögum um framhaldsskóla skulu hafa aðgang að upplýsingum í grunninum að því marki sem það er nauðsynlegt svo að þeir geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu, svo sem skólar og rekstraraðilar þeirra, sveitarfélög og aðilar skólaþjónustu. Aðrir aðilar geta fengið aðgang að gögnum í grunninum á grundvelli sérstakrar lagaheimildar eða samþykkis í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
Þeim sem bera ábyrgð á verkefnum samkvæmt lögum um leikskóla, lögum um grunnskóla og lögum um framhaldsskóla er skylt að skrá upplýsingar í miðlægan nemendagrunn eða gera þær aðgengilegar til skráningar, eftir því sem kveðið er á um í reglugerð skv. 7. mgr.
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu ber ábyrgð á rekstri miðlægs nemendagrunns og er ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga fyrir grunninn í heild sinni. Aðilar sem skrá upplýsingar í grunninn bera ábyrgð á að upplýsingar séu réttar og uppfærðar og að heimild hafi staðið til söfnunar þeirra.
Ráðherra skal setja reglugerð þar sem kveðið er nánar á um skráningu og vinnslu persónuupplýsinga í miðlægum nemendagrunni, þar á meðal hvaða persónuupplýsingar heimilt er að vinna með og í hvaða tilgangi vinnsla þeirra er heimil, um verklag við vinnslu persónuupplýsinga, hvaða aðilar hafa aðgang að nemendagrunninum, tengingar við önnur kerfi, öryggisráðstafanir, ráðstafanir til að vernda grundvallarréttindi og upplýsingaskyldu gagnvart þeim sem upplýsingarnar fjalla um.
3. gr.
Á eftir orðunum „innritunar í“ í 1. málsl. 1. mgr. 5. gr. laganna kemur: leik-, grunn- og.4. gr.
Við 26. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:Hvert sveitarfélag annast innritun barna í leikskóla. Miðstöð menntunar og skólaþjónustu getur annast umsýslu með innritun barna í leikskóla.
5. gr.
Á eftir 4. mgr. 30. gr. a laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi:Um skráningu og vinnslu upplýsinga í miðlægan nemendagrunn fer samkvæmt lögum um Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.
6. gr.
Á eftir 5. mgr. 5. gr. laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi:Hvert sveitarfélag annast innritun nemenda í grunnskóla. Miðstöð menntunar og skólaþjónustu getur annast umsýslu með innritun nemenda í grunnskóla.
7. gr.
Á eftir 5. mgr. 47. gr. a laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi:Um skráningu og vinnslu upplýsinga í miðlægan nemendagrunn fer samkvæmt lögum um Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.
8. gr.
Á eftir 3. mgr. 55. gr. laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi:Um skráningu og vinnslu upplýsinga í miðlægan nemendagrunn fer samkvæmt lögum um Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.
9. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 15. júní 2026.