Ferill 510. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1377 — 510. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um almennar íbúðir, nr. 52/2016 (hækkun stofnframlaga ríkisins o.fl.).
(Eftir 2. umræðu, 15. júní.)
1. gr.
2. gr.
a. Í stað „18%“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: 18–23%.
b. Við 1. mgr. bætast tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Ráðherra skal með reglugerð kveða nánar á um hlutfall stofnframlags ríkisins innan þeirra marka sem kveðið er á um í 1. málsl. með hliðsjón af markaðsaðstæðum hverju sinni. Ráðherra skal leita umsagnar þess ráðherra sem fer með opinber fjármál um breytingar á hlutfalli stofnframlags ríkisins.
c. 2. mgr. orðast svo:
Heimilt er að veita allt að 5% viðbótarframlag frá ríkinu vegna íbúðarhúsnæðis á vegum sveitarfélaga, íbúðarhúsnæðis sem ætlað er námsmönnum eða öryrkjum, svo og vegna íbúðarhúsnæðis sem umbreytt er úr atvinnuhúsnæði. Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun skal meta þörf fyrir og ákvarða fjárhæð viðbótarframlagsins. Óheimilt er að hafa eigendaskipti á íbúð sem veitt hefur verið viðbótarframlag vegna nema til komi endurgreiðsla þess og Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun og viðkomandi sveitarfélag hafi veitt samþykki sitt fyrir eigendaskiptunum að uppfylltum nánari skilyrðum, sbr. 1. mgr. 16. gr. Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun er þó heimilt að fresta eða veita undanþágu frá endurgreiðslu viðbótarframlags að nánari skilyrðum uppfylltum.
d. Í stað 1. og 2. málsl. 10. mgr. koma þrír nýir málsliðir, svohljóðandi: Ráðherra setur með reglugerð frekari ákvæði um stofnframlög ríkisins, þar á meðal nánari skilyrði fyrir veitingu þeirra. Ráðherra er m.a. heimilt að setja með reglugerð ákvæði um hlutfall stofnframlags ríkisins skv. 1. mgr. og mat Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar á þörf á framlögum skv. 2. og 3. mgr. Jafnframt er ráðherra heimilt að kveða nánar á um ákvörðun hlutfalls stofnframlaga ríkisins í hverju verkefni, hámarksfjárhæð sérstaks byggðaframlags, efni umsókna um stofnframlög, lágmarksfjölda almennra íbúða, gerð almennra íbúða, stærðir þeirra, viðmið um ákvörðun leigufjárhæðar, hagkvæmni, verð og byggingarkostnað, úrræði til þess að tryggja sem lægst íbúðar- og leiguverð, takmarkanir á arðgreiðslum og eigendaskipti íbúða.
3. gr.