Ferill 307. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1384  —  307. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit


um tillögu til þingsályktunar um breytingu á þingsályktun um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, nr. 24/152.

Frá 1. minni hluta umhverfis- og samgöngunefndar.


    Afgreiðsla rammaáætlunar er mikilvægt ferli sem tekur þó ekki til allra þátta sem geta skipt máli fyrir almannahagsmuni. Þeir varða ekki einstakan virkjunaraðila eða einstaka virkjunarkosti í núverandi kerfi heldur kalla á pólitíska afstöðu og heildarsýn.
    Í umræddri áætlun er m.a. verið að fjalla um jarðhitasvæði í nánu samhengi við eitt mikilvægasta innviðafyrirtæki höfuðborgarsvæðisins, Orkuveitu Reykjavíkur, og auðlindir sem tengjast grunnþjónustu almennings. Því telur 1. minni hluti mikilvægt að meiri hlutinn fjalli á heildstæðari hátt um hvaða áhrif ráðstöfunin geti haft á núverandi auðlindanýtingu, afhendingaröryggi, verðmyndun og langtímahagsmuni almennings.
    Í umsögnum hefur komið fram að mikilvægt sé að tryggja að nýting svæðisins hafi ekki áhrif á getu þeirra svæða og auðlinda sem Orkuveitan nýtir þegar í þágu almennings. Að slíku má stuðla með skilyrðum í nýtingarleyfum, samvinnu, eftirliti og vöktun, líkt og rakið er í nefndaráliti, sem er mikilvægt og þarft. Fyrsti minni hluti undirstrikar að það er mikilvægt að tryggt sé frá upphafi að samvinna, eftirlit og vöktun komi í veg fyrir að gengið verði á auðlindir sem þegar eru nýttar í þágu almennings. Hér þarf skýra samvinnu ríkis, sveitarfélaga og viðkomandi fyrirtækja. Þá þurfa leyfisveitingar, samningar og áherslur stjórnenda að endurspegla vernd almannahagsmuna. Fyrsti minni hluti leggur áherslu á að þetta þarf ríkisstjórnin að tryggja.
    Stærri spurningin, sem ekki er rædd í áliti meiri hlutans, snýr að því að þriðji aðili kunni að þróa jarðhitasvæði sem opinbert veitufyrirtæki þarf mögulega síðar að kaupa heitt vatn af til dreifingar. Slíkt getur haft áhrif á verðmyndun og þar með hitaveitureikning almennings til framtíðar. Sambærilegt álitaefni kemur upp þegar sveitarfélög semja við einkaaðila um nýtingu jarðhita í stað opinbers veitufyrirtækis sem fer með dreifingu á svæðinu. Það að einkaaðili þrói auðlindanýtingu og hið opinbera, líkt og Orkuveita Reykjavíkur, kaupi síðan heitt vatn til dreifingar er nýr veruleiki sem kann að hafa áhrif á verðlag til framtíðarkynslóða.
    Slíkt fyrirkomulag getur vissulega dregið úr fjárfestingaráhættu hins opinbera við rannsóknir og auðlindanýtingu. Eigi að síður telur 1. minni hluti nauðsynlegt að staldra við og meta hvort tryggja þurfi framtíðarsýn, samninga og skilyrði með skýrari hætti.
    Önnur mikilvæg spurning fyrir pólitíska ákvörðunartöku og heildarsýn er hvernig verið er að ráðstafa verðmætum til einkaaðila í gegnum framtíðarvirkjunarleyfi um ókomna tíð án þess að fyrir hendi sé umgjörð um hvernig ábati af nýtingu skili sér til þjóðarinnar allrar. Ríkisstjórnin þarf að taka afstöðu ótengda einstökum verkefnum um hver stefnan á að vera um eignarhald auðlinda og ábata til þjóðarinnar og sú stefna þarf að virka við úthlutun gæða.
    Fyrsti minni hluti telur nauðsynlegt að halda því til haga að ekki er hægt að tryggja með almennum hætti að orka frá einstökum virkjunarkosti nýtist í heimabyggð, þótt uppbygging geti vissulega styrkt raforkukerfið. Því þarf að varast að leggja of mikla áherslu á staðbundinn ávinning nema skýrari reglur, samningar eða forsendur liggi fyrir sem ekki eru til staðar í dag. Fyrsti minni hluti telur að slík atriði þurfi að taka inn í stefnu og umgjörð orkumála óháð einstökum verkefnum.

Niðurstaða.
    Í ljósi þess að ekki hefur verið fjallað með fullnægjandi hætti um framangreindar spurningar, sem eru stórar, hvetur 1. minni hluti ríkisstjórnina til að leggja mat á almannahagsmuni, verðmyndun, eignarhald, opinbera innviði og ábata til þjóðarinnar í stærra samhengi en nú er gert.

Alþingi, 15. júní 2026.

Halla Hrund Logadóttir.