Ferill 568. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1385  —  568. mál.

2. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um Stofnun atvinnuveganna.

Frá meiri hluta atvinnuveganefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá atvinnuvegaráðuneyti, Samtökum heilbrigðiseftirlitssvæða, Heilbrigðiseftirliti Austurlands, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra, Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja, Heilbrigðiseftirliti Vestfjarða, Heilbrigðiseftirliti Vesturlands, Heilbrigðiseftirliti Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness, Dýralæknafélagi Íslands, BHM, BSRB, Sameyki, Félagi íslenskra náttúrufræðinga, Félagi heilbrigðis- og umhverfisfulltrúa, Matvælastofnun, Verðlagsstofu skiptaverðs, Fiskistofu, Hugverkastofunni, Bændasamtökum Íslands, Samtökum iðnaðarins, Samtökum fyrirtækja í landbúnaði, félaginu Icelandic Lamb, Samtökum atvinnulífsins, Viðskiptaráði, SVÞ, Samtökum ferðaþjónustunnar, Félagi atvinnurekenda, Samtökum fiskframleiðenda og útflytjenda, Landssambandi smábátaeigenda, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Fjórðungssambandi Vestfirðinga, Sambandi sveitarfélaga á Austurlandi, Sambandi sveitarfélaga á Vesturlandi, Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, Persónuvernd, Skattinum og Samtökum sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra og Þóru J. Jónasdóttur yfirdýralækni.
    Nefndinni bárust 62 umsagnir auk minnisblaða frá atvinnuvegaráðuneyti og eru gögnin aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
    Með frumvarpinu er lagt til að sett verði á fót stofnun sem sameini Matvælastofnun, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs. Þá felur frumvarpið í sér að eftirlit með matvælum verði fært frá heilbrigðisnefndum sveitarfélaga til nýrrar stofnunar.

Umfjöllun nefndarinnar.
Almennt.
    Eins og rakið er í greinargerð með frumvarpinu á það sér nokkurn aðdraganda. Markmiðið með því er að einfalda og auka skilvirkni í eftirliti og sömuleiðis að öflugar starfsstöðvar með fjölbreyttum störfum verði um allt land þar sem veitt verði öflug þjónusta við atvinnulíf. Frá árinu 2010 hefur Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) gert athugasemdir við skipulag eftirlits hér á landi. Í júlí árið 2024 var íslenskum stjórnvöldum sent formlegt áminningarbréf þar sem sú afstaða birtist að stjórnsýsla á sviði matvæla- og heilbrigðiseftirlits hér á landi væri hvorki nægjanlega samræmd né stöðug. Í greinargerð með frumvarpinu er vísað til skýrslna þar sem bent er á sama vanda. Telur meiri hlutinn mikilvægt að brugðist verði við þeim ábendingum sem fram hafa komið undanfarin ár. Af sameiningu þessara stofnana verður faglegur ávinningur sem mun einfalda eftirlitskerfi og gera þau skilvirkari.
    Í byrjun maí árið 2024 skipuðu umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og matvælaráðherra (nú atvinnuvegaráðherra) stýrihóp sem hafði það hlutverk að rýna tillögur og sviðsmyndir sem fram koma í skýrslu starfshóps frá árinu 2023. Helstu niðurstöður voru þær að óskýr verkaskipting í núverandi kerfi ylli því að áreiðanleiki og samfella í framkvæmd eftirlits væri ekki tryggð. Stýrihópurinn taldi að tvær sviðsmyndir (sviðsmyndir 3 og 4) byðu upp á raunhæfar leiðir til að skýra ábyrgð, draga úr ósamræmi og efla samhæfingu í framkvæmd opinbers eftirlits. Í sviðsmynd 3 var gert ráð fyrir því að eftirlit færðist alfarið til ríkisstofnana, þ.e. Matvælastofnunar annars vegar og Umhverfis- og orkustofnunar hins vegar. Síðari sviðsmyndin (sviðsmynd 4) fól í sér að heilbrigðiseftirlit á sveitarstjórnarstigi yrði áfram til staðar en ríkisstofnanir fengju aukið yfirstjórnarhlutverk og boðvald yfir heilbrigðiseftirliti. Var síðari sviðsmyndin talin töluvert flóknari í útfærslu og framkvæmd. Við samningu frumvarpsins sem hér er til umfjöllunar var því byggt á sviðsmynd 3 sem skapar að mati meiri hluta nefndarinnar skýrari ábyrgðarkeðju og er betur til þess fallin að tryggja samræmi í stjórnsýslu í þeim verkefnum sem stofnunin mun sinna.
    Eins og bent var á við umfjöllun nefndarinnar um frumvarpið er sameining stofnana ekki ein og sér nægjanleg til að tryggja einföldun og aukna skilvirkni við stjórnsýslu þeirrar stofnunar sem með frumvarpinu er lagt til að komið verði á fót. Vinna við yfirfærslu þeirra verkefna sem ný stofnun á að sinna hefur verið í gangi um nokkurt skeið og lögð er áhersla á að markmið frumvarpsins verði áfram höfð að leiðarljósi við þá vinnu sem fram undan er. Sá starfshópur sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra skipaði lagði enda áherslu á það í skýrslu sinni frá 17. október 2023 að lagabreytingar um tilfærslu eftirlitsverkefna nægðu ekki einar og sér til að tryggja samræmi um allt land. Auk þess þyrfti að vinna verkáætlun með aðkomu ráðuneyta og var lögð áhersla á að fjármagn yrði tryggt til að þróa upplýsingakerfi sem uppfylltu nútímakröfur. Telur meiri hlutinn að með frumvarpinu séu stigin tímabær og mikilvæg skref í átt að einföldun, aukinni skilvirkni og samræmdu eftirlitskerfi.

Fjárhagsáhrif sameiningar á ríkissjóð og sveitarfélög.
    Fyrir nefndinni var fjallað um það hvaða fjárhagslegu áhrif fyrirhuguð sameining kynni að hafa á ríkissjóð og sveitarfélög. Í þeim gögnum sem bárust nefndinni frá atvinnuvegaráðuneyti um áhrif á fjárhag sveitarfélaga kemur fram að þær breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu muni hafa jákvæð áhrif á kostnað sveitarfélaga og draga úr rekstraráhættu. Um 70% þeirra verkefna sem heilbrigðiseftirlit sinnir eru lögbundin verkefni. Önnur verkefni sem heilbrigðiseftirliti eru falin eru um 30% af heildarumfangi og þau skila engum eða litlum tekjum. Með tilfærslu verkefna sem tengjast eftirliti með matvælum verði til 15–20 stöðugildi hjá nýrri stofnun víðs vegar um landið. Líkt og fram kemur í minnisblaði frá atvinnuvegaráðuneyti, dags. 18. maí 2026, eru áhrif á ríkissjóð talin óveruleg en til skemmri tíma megi ætla að kostnaður vegna sameiningar og breytinga falli til. Til lengri tíma megi ætla að stærri eining leiði til hagræðingar í rekstri og gert sé ráð fyrir því að nýta það fjármagn til þess að efla stofnunina svo að hún verði vel í stakk búin til að sinna hlutverki sínu.

Flutningur matvælaeftirlits til Stofnunar atvinnuveganna.
    Í frumvarpinu er lagt til að matvælaeftirlit verði fært frá heilbrigðisnefndum sveitarfélaga til nýrrar stofnunar. Fram kemur í greinargerð með frumvarpinu að markmiðið með þeim breytingum sé að tryggja að opinbert eftirlit með matvælum sé árangursríkt, skilvirkt og óhlutdrægt, það uppfylli kröfur um gæði og samræmi í framkvæmd og sé í samræmi við skuldbindingar Íslands samkvæmt EES-samningnum. Matvælaeftirlit hafi verið til skoðunar í allmörg ár og fram hafi komið fjölmargar athugasemdir við fyrirkomulag þess.
    Nefndinni bárust gögn hvað þetta varðar, m.a. skýrsla stýrihóps um fyrirkomulag eftirlits með hollustuháttum, mengunarvörnum og matvælum frá því í júní árið 2025. Í greinargerð með frumvarpinu er rakin sú vinna sem unnin hefur verið. Þar er vísað til skýrslna þar sem bent hefur verið á þau vandkvæði sem nú eru á matvælaeftirliti og stjórnsýslu þess.
    Nefndin fjallaði nokkuð um þessar breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu, sérstaklega þá gagnrýni sem fram kom af hálfu heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga. Í þeim athugasemdum kom fram að með þessu væri um verulega stefnubreytingu að ræða, að breytingin gæti haft í för með sér frekara flækjustig eftirlits og óskýra ábyrgð og að hún myndi veikja tengsl við nærsamfélagið. Líkt og rakið er að framan var horft til tveggja sviðsmynda við gerð frumvarpsins. Var það mat frumvarpshöfunda að sú leið sem valin var yrði til einföldunar miðað við núgildandi lög og þá sviðsmynd sem ekki var valin. Nefndin metur sem svo að þó að lagaumgjörð sú sem lögð er til í frumvarpinu kunni í fyrstu að reynast flókin muni hún til langframa leiða af sér einföldun á framkvæmd allri. Það er og mat nefndarinnar að mjög mikilvægt sé að þekking og störf haldist í hinum dreifðari byggðum landsins. Markmiðið með frumvarpinu er alls ekki að færa sérfræðistörf frá landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins. Beinir meiri hlutinn því til atvinnuvegaráðherra að fylgjast grannt með stöðu þeirra starfa sem flytjast munu til nýrrar stofnunar og að tryggja eftir fremsta megni að þeim sem starfi úti á landi í tengslum við verkefni Stofnunar atvinnuveganna fækki ekki. Meiri hlutinn hvetur raunar til þess að leiðir verði skoðaðar til að fjölga störfum úti á landi, m.a. við matvælaeftirlit, en sú starfsemi á sér að meginstefnu stað á landsbyggðinni.

Staða yfirdýralæknis.
    Í frumvarpinu er lagt til að embætti yfirdýralæknis verði lagt niður í núverandi mynd. Í 3. gr. frumvarpsins er lagt til að hjá Stofnun atvinnuveganna skuli starfa yfirdýralæknir sem ráðinn verði af forstjóra en samkvæmt gildandi lögum heyrir yfirdýralæknir undir forstjóra Matvælastofnunar og er skipaður af ráðherra.
    Umsagnir bárust frá yfirdýralækni, Dýralæknafélagi Íslands, BHM og Bændasamtökum Íslands þar sem gagnrýnd voru þau áform sem fram koma í frumvarpinu. Sú gagnrýni sneri einna helst að því að með þessu yrði faglegt sjálfstæði yfirdýralæknis ekki tryggt og staða hans innan stjórnsýslunnar ekki heldur. Í umsögn BHM kemur fram að ef frumvarpið verður að lögum muni það rýra verulega faglegt sjálfstæði embættisins og skerða faglega stöðu þess innan stjórnsýslunnar. Brýnt sé að tryggja að yfirdýralæknir njóti óskoraðs sjálfstæðis í faglegum ákvörðunum sínum. Í umsögn Bændasamtaka Íslands er lögð áhersla á að yfirdýralæknir skuli vera faglegur ráðgjafi ráðherra í dýraheilbrigðismálum og dýravelferð og að tryggja skuli sjálfstæði hans gagnvart hinni nýju stofnun.
    Í minnisblaði frá atvinnuvegaráðuneyti og í greinargerð með frumvarpinu er vísað til skýrslu Ríkisendurskoðunar frá því í nóvember árið 2023 þar sem fram komu ábendingar um að núgildandi fyrirkomulag væri ekki í samræmi við almenna stjórnsýsluhætti, þ.e. að ráðherra skipaði yfirdýralækni. Er því í frumvarpinu lagt til að horfið verði frá embættisskipan yfirdýralæknis en kveðið verði á um ábyrgð hans í ákveðnum málaflokkum og að hann hafi faglegt sjálfstæði í þeim málaflokkum sem hann hefur umsjón með.
    Meiri hlutinn telur ekki ástæðu til að leggja til breytingu á frumvarpinu hvað þetta varðar. Meiri hlutinn leggur áherslu á mikilvægi þess að yfirdýralæknir haldi faglegu sjálfstæði í þeim verkefnum sem honum eru falin eins og kveðið er á um í 3. gr. frumvarpsins.

Gjaldskrár og kostnaður eftirlitsskyldra aðila.
    Fyrir nefndinni var nokkuð fjallað um gjaldskrár nýrrar stofnunar, mögulegan kostnaðarauka fyrir eftirlitsskylda aðila og mögulegar breytingar á gjaldskrám eftir sameiningu. Fram kom fyrir nefndinni að kostnaður við eftirlit hjá Matvælastofnun væri töluvert meiri nú en gert væri ráð fyrir í gjaldskrá, þ.e. að gjaldskráin tæki ekki mið af raunkostnaði við eftirlit. Fyrir nefndinni kom fram að Stofnun atvinnuveganna myndi starfa eftir einni sameiginlegri gjaldskrá og að gert væri ráð fyrir því að hún tæki mið af raunkostnaði við eftirlit. Það myndi í sumum tilvikum óhjákvæmilega leiða til frekari kostnaðar við eftirlit. Meiri hlutinn hvetur til þess að fjárhagslegt hagræði af sameiningunni verði frekar nýtt til að gera breytingar á gjaldskrá sem eru til hagsbóta fyrir atvinnulífið og að tryggt verði að gjaldtaka verði bæði hófleg og gagnsæ. Telur meiri hlutinn ljóst að svigrúm flestra sem stunda matvælaframleiðslu hér á landi til aukinna útgjalda sem tengjast eftirliti sé takmarkað. Meiri hlutinn hvetur því ráðuneytið til að fylgjast vel með breytingum á gjaldskrá þegar lögin taka gildi og bregðast við ef þörf er á.

Verðlagsstofa skiptaverðs.
    Fyrir nefndinni komu fram athugasemdir þess efnis að ef Verðlagsstofa skiptaverðs yrði hluti af nýrri stofnun kynni það að hafa áhrif á kjarasamninga, m.a. kjarasamninga sjómanna. Í umsögn Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi er bent á það að í ákvæði 1.44 í kjarasamningi milli SFS og Sjómannasambands Íslands komi fram að kjarasamningurinn hvíli á þeirri forsendu að ekki verði gerðar verulegar breytingar á hlutverki Verðlagsstofu skiptaverðs og úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna, sbr. lög nr. 13/1998.
    Í 2. gr. laganna er kveðið á um að ráðherra skipi forstöðumann Verðlagsstofu skiptaverðs til fimm ára í senn en sé einnig heimilt að fela forstöðumanni annarrar ríkisstofnunar jafnframt forstöðu Verðlagsstofu skiptaverðs með skipun. Auk þess er í ákvæðinu kveðið á um að ráðherra geti samið við aðrar ríkisstofnanir um að annast rekstur skrifstofu Verðlagsstofu skiptaverðs eftir því sem hagkvæmt þykir og að semja við fagaðila um almenna öflun og úrvinnslu gagna.
    Samkvæmt upplýsingum í minnisblaði frá ráðuneytinu, dags. 18. maí, kemur fram að fiskistofustjóra hafi verið falið að annast forstöðu fyrir Verðlagsstofu skiptaverðs og því hafi sami forstjóri farið með forstöðu bæði Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs. Þá hafi auk þess verið samið við Fiskistofu um almennan rekstur og stofnanirnar samnýtt húsnæði, tölvukerfi og aðra þjónustu. Í minnisblaðinu er vísað til þess að úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna hafi það hlutverk að ákveða fiskverð sem nota skal við uppgjör á aflahlut áhafnar einstakra skipa. Í lögunum er kveðið á um að Verðlagsstofa skiptaverðs annist upplýsingaöflun og skrifstofuhald fyrir úrskurðarnefndina. Því er það ekki einungis Verðlagsstofa skiptaverðs sem fer með framkvæmd laganna heldur hefur úrskurðarnefndin ákvörðunarvald í einstökum deilumálum og verður það óbreytt samkvæmt frumvarpinu.
    Meiri hlutinn telur rök ekki hníga til þess að túlka megi ákvæði frumvarpsins með þeim hætti að um verulega breytingu á hlutverki Verðlagsstofu skiptaverðs og úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna sé að ræða. Í frumvarpinu er lagt til að Verðlagsstofa skiptaverðs verði hluti af nýrri stofnun og að verkefni hennar verði unnin innan sérstakrar einingar þar sem fylgst verður með fiskverði og uppgjöri á aflahlut sjómanna. Þau verkefni sem Verðlagsstofu skiptaverðs eru falin á grundvelli laga nr. 13/1998 haldast efnislega óbreytt ef frumvarpið verður að lögum.

Vernd afurðarheita.
    Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar er varða vernd afurðarheita. Umsjón með skráningu afurðarheita hefur verið á höndum Matvælastofnunar. Í frumvarpinu er lagt til að það verkefni færist til Hugverkastofunnar en eftirlit með notkun skráðra afurðarheita verði hjá Stofnun atvinnuveganna. Þá verður kveðið á um að Stofnun atvinnuveganna veiti umsögn um það hvernig umsókn samræmist kröfum skv. 4., 5. og 8. gr. laganna. Í umsögnum til nefndarinnar og við umfjöllun um málið var lögð áhersla á þau tækifæri sem felast í skilvirkari stjórnsýslu hvað varðar skráningu afurðarheita. Vernd afurðarheita bjóði upp á fjölmörg tækifæri til að efla innlenda matvælaframleiðslu á grundvelli sérstöðu íslenskra matvæla. Þá tekur meiri hlutinn undir það sem fram kemur í umsögn Bændasamtaka Íslands um að gæta þurfi sérstaklega að samstarfi Hugverkastofunnar og Stofnunar atvinnuveganna og um að sérþekking á matvælaframleiðslu verði tryggð. Þá hvetur meiri hlutinn til þess að Hugverkastofan og Stofnun atvinnuveganna kynni kerfið og vinni að því að gera það aðgengilegra svo að það megi nýtast íslenskum framleiðendum betur.

Byggðasjónarmið og starfsstöðvar á landsbyggðinni.
    Fyrir nefndinni var fjallað um mikilvægi þess að starfsstöðvar nýrrar stofnunar héldust á landsbyggðinni en þær stofnanir sem sameina á í Stofnun atvinnuveganna hafa nú starfsstöðvar vítt og breitt um landið. Eins og fram kom fyrir nefndinni er gert ráð fyrir því að ný stofnun hafi öflugar starfsstöðvar um allt land og að flestir starfsmenn sem færast til Stofnunar atvinnuveganna verði á landsbyggðinni. Meiri hlutinn beinir því til ráðuneytisins að hugað verði sérstaklega að því við sameiningu þessara stofnana að byggðasjónarmið verði höfð að leiðarljósi og að starfsstöðvar haldist á landsbyggðinni og veiti þjónustu í heimabyggð. Mikilvægt er að sú sérþekking á staðbundnum aðstæðum, sem orðið hefur til á löngum tíma, haldist innan nýrrar stofnunar.

Framsal eftirlits.
    Fyrir nefndinni var fjallað um það hvort sameining stofnana yrði til þess fallin að auka flækjustig við eftirlit og hvort heimsóknum til eftirlitsskyldra aðila fjölgaði í kjölfarið.
    Í 5. gr. frumvarpsins er lagt til að Stofnun atvinnuveganna verði heimilt að semja við aðra aðila um afmörkuð verkefni. Um er að ræða almenna reglu um heimild til framsals eftirlits. Á það er bent í minnisblaði ráðuneytisins, dags. 29. maí 2026, að horft er til þess að skoða samvinnu Stofnunar atvinnuveganna og Umhverfis- og orkustofnunar sem ætlað er að taka við eftirliti með hollustuháttum og mengunarvörnum. Frumvarp þess efnis er til umfjöllunar í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis. Þá sé horft til þess að aðilar sem hafa fallið undir eftirlit hjá Matvælastofnun, Fiskistofu og/eða heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga og falli undir löggjöf um matvæli sæki nú eftirlit og þjónustu til eins aðila í stað þriggja. Þá kemur fram í minnisblaði ráðuneytisins, dags. 18. maí 2026, að gert sé ráð fyrir samstarfi Stofnunar atvinnuveganna og Umhverfis- og orkustofnunar, m.a. þannig að eftirlitsheimsóknir verði samnýttar.
    Þær breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu munu að mati meiri hlutans leiða til einföldunar, aukinnar skilvirkni og samræmingar eftirlits. Hluti af þeim breytingum er að gera stofnuninni kleift að útvista afmörkuðum verkefnum til annarra aðila og hvetur meiri hlutinn til þess að sú heimild verði nýtt eins og kostur er. Meiri hlutinn telur þó rétt að beina því til ráðuneytisins að hugað verði sérstaklega að því að við framsal eftirlits verði flækjustig ekki meira en er nú. Þá leggur meiri hlutinn áherslu á að frekar verði horft til þess að gera eftirlit áhættumiðað sem leiði til fækkunar eftirlitsheimsókna.

Réttindi starfsfólks (ákvæði til bráðabirgða).
    Í ákvæði til bráðabirgða er kveðið á um réttindi starfsfólks Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs ef frumvarpið verður að lögum. Fyrir nefndinni komu fram athugasemdir frá stéttarfélögum og fagfélögum við ákvæðið. Gerðar voru athugasemdir við það að í ákvæðinu væri mælt fyrir um að starfsfólk Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs sem ráðið yrði til starfa hjá Stofnun atvinnuveganna héldi þeim réttindum sem það hefði áunnið sér til námsleyfis og varðandi lengdan uppsagnarfrest því að hið sama ætti ekki við um starfsfólk heilbrigðiseftirlits. Þá var gagnrýnt að ekki væri skýrt hvernig færi um orlofsréttindi starfsfólks og lagt til að sá hluti orlofs sem ávinnst frá 1. maí 2026 til gildistöku laganna, þ.e. orlof til úttektar eftir 1. maí 2027, flyttist með því starfsfólki sem kysi að taka við starfi hjá Stofnun atvinnuveganna. Jafnframt gerðu stéttarfélög og fagfélög athugasemd við það að starfsfólki væri ekki tryggð staða hjá hinni nýju stofnun með flutningi starfa þar sem hin nýja stofnun yfirtekur fyrri ráðningarsamning. Fjármálaráðuneyti gaf út handbók um sameiningu ríkisstofnana árið 2008 þar sem útlistaðar eru þrjár mögulegar leiðir við starfsmannabreytingar. Leið 1 felur í sér að störf verði lögð niður og starfsmönnum ekki tryggður forgangur að nýjum störfum. Leið 2 felur í sér niðurlagningu starfa en að starfsmönnum sé tryggður forgangur að nýjum störfum. Leið 3 er sú leið sem vísað er til að framan þar sem störf eru ekki lögð niður heldur flutt til með því að ný stofnun yfirtaki gildandi ráðningarsamninga. Sú leið felur í sér mestar hindranir við gerð breytinga á skipulagi nýrrar stofnunar en markmiðið með breytingunum er einföldun og meiri skilvirkni í eftirliti með því að búa til öfluga stofnun á sviði eftirlits með matvælum og fiskveiðum með samræmdum ferlum um land allt.
    Leið 2 felur í sér forgang til starfa hjá Stofnun atvinnuveganna og ekki þarf að auglýsa störf hjá hinni nýju stofnun. Með þeirri leið er tryggt að þeir sem koma frá Matvælastofnun, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs njóti sama réttar og starfsmenn heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga að því er varðar ráðningu í þau 20 stöðugildi sem verða til við flutning verkefna á sviði eftirlits með matvælum sem flytjast frá heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga. Báðir hópar njóta forgangs þegar ráðið verður í störf hjá hinni nýju stofnun og ekki þarf að auglýsa þau. Í ljósi þessa leggur meiri hlutinn ekki til breytingar á leiðum hvað varðar starfsmannabreytingar en undirstrikar mikilvægi þess að haldið verði í þá þekkingu sem til er nú og þýðingu þess að starfsmenn séu vel upplýstir um tímalínu starfsmannabreytinga. Meiri hlutinn leggur jafnframt áherslu á að við framkvæmd þessara breytinga verði sérstaklega hugað að stöðu starfsfólks sem kann að vera í fæðingarorlofi eða veikindaleyfi eða er fjarverandi af sambærilegum og lögmætum sökum við gildistöku laganna. Meiri hlutinn mælist til þess að því verði gert kleift að nýta forgangsrétt til starfa hjá Stofnun atvinnuveganna með sama hætti og öðru starfsfólki.
    Í frumvarpinu er lagt til að tiltekin verkefni verði færð frá sveitarfélögum til ríkisins. Eins og kemur fram í minnisblaði ráðuneytisins er ekki þar með sagt að þau störf verði lögð niður enda sé fyrirkomulag mismunandi í þeim níu heilbrigðisumdæmum sem nú eru til. Hjá hluta heilbrigðisnefnda sinnir sama starfsfólk matvæla- og heilbrigðiseftirliti þar sem matvælaþátturinn er veigaminni þáttur í störfum þeirra. Þannig er ekki hægt að ganga út frá því að störf verði lögð niður hjá sveitarfélögum í öllum tilvikum. Starfsfólk sem hefur gegnt þessum störfum hjá sveitarfélögum nýtur eftir sem áður forgangs til hinna nýju starfa hjá Stofnun atvinnuveganna og er staða þeirra ósambærileg stöðu starfsmanna ríkisins sem færast til Stofnunar atvinnuveganna en störf þeirra verða lögð niður. Telur meiri hlutinn engu að síður mikilvægt að kannaðir verði möguleikar þess við gerð stofnanasamnings að áðurnefnd áunnin réttindi starfsfólks heilbrigðiseftirlits flytjist með þeim til hinnar nýju stofnunar. Í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis er til umfjöllunar frumvarp þar sem lagt er til að framkvæmd eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum færist til ríkisins og verði framvegis hjá Umhverfis- og orkustofnun. Í upplýsingum sem bárust umhverfis- og samgöngunefnd frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti við umfjöllun um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (einföldun eftirlits) ( þskj. 984, 582. mál á yfirstandandi löggjafarþingi) kemur fram að unnið sé að því að gera yfirfærslu áunnins orlofs á yfirstandandi orlofsári mögulega en til þess þurfi samvinnu sveitarfélaga og Fjársýslu ríkisins. Að öðrum kosti fái starfsfólk greitt út orlof sitt við starfslok hjá sveitarfélögum sem komi á móti því leyfi sem það óskar eftir að taka hjá Umhverfis- og orkustofnun þar til orlofsréttur hefur myndast hjá stofnuninni. Jafnframt sé verið að kanna möguleika á því að starfsfólk heilbrigðiseftirlits geti áfram greitt í sama lífeyrissjóð. Telur meiri hlutinn rétt að beina því til atvinnuvegaráðuneytis að vinna að því að hið sama eigi við um þá starfsmenn heilbrigðiseftirlits sem hefja störf hjá Stofnun atvinnuveganna. Þá bendir meiri hlutinn á að um veikindarétt gildir sérstök regla í kjarasamningum þar sem fram kemur að auk starfsaldurs hjá núverandi stofnun skuli telja starfstíma hjá öðrum stofnunum ríkis, sveitarfélögum og sjálfseignarstofnunum sem kostaðar eru að meiri hluta af almannafé.
    Meiri hlutinn beinir því til ráðuneytisins að gætt verði sérstaklega að kjarasamningsbundnum réttindum starfsfólks sem hlýtur ráðningu í ný störf hjá Stofnun atvinnuveganna. Þá tekur meiri hlutinn undir það sem fram kemur í umsögn Félags íslenskra náttúrufræðinga um að skipaður verði forstjóri sem fyrst eftir samþykkt laganna svo að hægt verði að hefjast handa við undirbúning og skipulag nýrrar stofnunar, m.a. með það að markmiði að eyða óvissu í tengslum við stofnanasamninga og kjör starfsfólks.

Breytingartillögur.
Umsögn Skattsins.
    Í umsögn Skattsins til nefndarinnar eru lagðar til breytingar annars vegar á e-lið 13. gr. frumvarpsins og hins vegar 7. tölul. g-liðar 12. gr. frumvarpsins. Í umsögninni eru gerðar athugasemdir við að í ákvæðunum sé mælt fyrir um það með fortakslausum hætti á hvaða formi embættið skuli veita upplýsingar. Meiri hlutinn tekur undir sjónarmið um að það hljóti að ráðast af aðstæðum hverju sinni hvort unnt er eða hagkvæmt fyrir báða aðila að gögn séu afhent með stafrænum hætti. Meiri hlutinn áréttar þó að um er að ræða nauðsynlegar upplýsingar til að stofnunin geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu. Tryggja þarf skilvirka miðlun upplýsinga í rauntíma. Í minnisblaði atvinnuvegaráðuneytis, dags. 28. maí 2026, kemur fram að ráðuneytið muni tryggja fjármögnun á stafrænni lausn til gagnasamskipta milli Skattsins og stofnunarinnar. Telur meiri hlutinn því tilefni til að tiltaka í ákvæðinu að miðlun upplýsinga geti farið fram með beinni stafrænni tengingu milli þessara stofnana en ráðherra verði að öðru leyti falið að útfæra nánar fyrirkomulag gagnasamskipta með reglugerð.

Starfsfólk á landsbyggðinni.
    Fyrir nefndinni var fjallað um mikilvægi þess að starfsstöðvar nýrrar stofnunar héldust á landsbyggðinni en þær stofnanir sem sameina á í Stofnun atvinnuveganna hafa nú starfsstöðvar vítt og breitt um landið. Eins og fram kom fyrir nefndinni er gert ráð fyrir því að ný stofnun hafi öflugar starfsstöðvar um allt land og að flestir starfsmenn sem færast til Stofnunar atvinnuveganna verði á landsbyggðinni. Mikilvægt er að sérþekking á staðbundnum aðstæðum, sem orðið hefur til á löngum tíma, haldist innan nýrrar stofnunar. Í ljósi þess leggur meiri hlutinn til að kveðið verði á um staðsetningu starfsmanna á landsbyggðinni.

Fisksjúkdómanefnd.
    Í umsögn yfirdýralæknis er lagt til að dýralækni verði tryggt sæti í fisksjúkdómanefnd. Meiri hlutinn tekur undir þau sjónarmið og leggur til breytingu á 1. málsl. b-liðar 31. gr. frumvarpsins þess efnis. Verður þannig tryggt að sá sem skipaður er fyrir hönd Stofnunar atvinnuveganna í nefndina verði dýralæknir.

Hlutverk héraðsdýralækna.

    Í 34. gr. frumvarpsins eru lagðar til breytingar á lögum um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, nr. 66/1998. Í b-lið ákvæðisins er kveðið á um eftirlitshlutverk héraðsdýralækna. Í umsögn yfirdýralæknis er bent á að ekki sé kveðið á um eftirlit með lyfjanotkun. Í umsögninni er lagt til að kveðið verði á um það að héraðsdýralæknar hafi eftirlit með heilbrigði, aðbúnaði og velferð dýra. Leggur meiri hlutinn til breytingar á 34. gr. í samræmi við athugasemdir yfirdýralæknis.

    Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


     1.      Í stað orðanna „súna, lyfjaónæmis“ í 3. málsl. 3. mgr. 3. gr. komi: súnur og lyfjaónæmi.
     2.      Á eftir 7. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
                      Stofnun atvinnuveganna skal hafa starfsfólk sem staðsett er á höfuðborgarsvæðinu, Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Austurlandi og Suðurlandi.
     3.      7. tölul. g-liðar 12. gr. orðist svo: Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
                      Stofnun atvinnuveganna er heimilt að afla nauðsynlegra upplýsinga um útflutningsverð á fiski og afurðaverð hjá tollyfirvöldum með stafrænum eða öðrum skilvirkum hætti, svo sem með afhendingu upplýsinga í rauntíma með beinni stafrænni tengingu, að því marki sem slíkar upplýsingar eru nauðsynlegar til að unnt sé að framfylgja ákvæðum laga þessara. Þannig skal stofnunin fylgjast með og bera saman upplýsingar um útflutningsverð fisks og afurða í opinberum skráningum og þær upplýsingar sem útgerðir og útflutningsaðilar senda stofnuninni. Tollyfirvöld skulu láta stofnuninni í té upplýsingar með þeim hætti sem ráðherra ákveður í reglugerð. Stofnun atvinnuveganna og starfsmenn hennar skulu meðhöndla upplýsingar sem veittar eru samkvæmt þessari grein í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Stofnun atvinnuveganna og starfsmennirnir bera jafnframt sömu þagnarskyldu og starfsmenn tollyfirvalda samkvæmt ákvæðum tollalaga. Ráðherra er heimilt með reglugerð að útfæra nánar fyrirkomulag gagnasamskipta milli Stofnunar atvinnuveganna og Skattsins, þ.m.t. að kveða á um afhendingu slíkra upplýsinga í rauntíma með beinni stafrænni tengingu eða öðrum sambærilegum sjálfvirkum hætti.
     4.      Við e-lið 13. gr.
                  a.      Á eftir orðinu „stafrænum“ í 1. málsl. komi: eða öðrum skilvirkum.
                  b.      Við 1. málsl. bætist: svo sem með afhendingu upplýsinga í rauntíma með beinni stafrænni tengingu.
                  c.      Á eftir orðunum „stafrænum hætti“ í 2. málsl. komi: eða á annan skilvirkan hátt.
                  d.      Í stað orðsins „gagnasamskipti“ í 7. málsl. komi: fyrirkomulag gagnasamskipta.
                  e.      Við 7. málsl. bætist: þ.m.t. að kveða á um afhendingu slíkra upplýsinga í rauntíma með beinni stafrænni tengingu eða öðrum sambærilegum sjálfvirkum hætti.
     5.      Við 1. efnismálsl. b-liðar 31. gr. bætist: sem skal vera dýralæknir.
     6.      Við 34. gr.
                  a.      Í stað orðanna „velferð dýra“ í 2. efnismálsl. b-liðar komi: heilbrigði, velferð og aðbúnaði dýra.
                  b.      Við bætist nýr stafliður sem verði b-liður, svohljóðandi: Á eftir orðunum „heilbrigðismál dýra“ í b-lið 2. mgr. 5. gr. laganna kemur: þ.m.t. lyfjanotkun, sbr. ákvæði 4. tölul. 2. mgr. 11. gr. lyfjalaga.
     7.      Í stað orðanna „lögin voru birt“ í 3. mgr. ákvæðis til bráðabirgða komi: lög þessi eru birt.

Alþingi, 15. júní 2026.

Lilja Rafney Magnúsdóttir,
form.
Ingvar Þóroddsson,
frsm.
Ásthildur Lóa Þórsdóttir.
Kristján Þórður Snæbjarnarson. Eydís Ásbjörnsdóttir Eiríkur Björn Björgvinsson.