Ferill 702. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1387 — 702. mál.
Svar
innviðaráðherra við fyrirspurn frá Ólafi Adolfssyni um innleiðingu ákvæðis tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins um ökuskírteini í íslenskan rétt.
1. Hyggst ráðherra innleiða í íslenskan rétt ákvæði c-liðar 4. mgr. 6. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2006/126/EB frá 20. desember 2006 um ökuskírteini, með síðari breytingum?
Innviðaráðherra hefur hug á að innleiða ákvæði c-liðar 4. mgr. 6. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2006/126/EB í íslenskan rétt. Nánari útfærsla hefur verið til skoðunar í innviðaráðuneytinu.
2. Ef svarið er já, hvenær gerir ráðherra ráð fyrir að innleiðingunni verði lokið þannig að íslenskir borgarar geti á henni byggt?
Stefnt er að innleiðingu og að heimildin öðlist gildi á næstu misserum.
3. Ef svarið er nei, á hvaða röksemdum byggist neikvæð afstaða ráðherra til innleiðingarinnar?