Ferill 472. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1389 — 472. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Davíðsdóttur um mannauðsmál.
Eftirfarandi er yfirlit yfir mönnun, aðkeypta ráðgjöf og samningsbundna þjónustu á sviði mannauðsmála í ráðuneytinu á tímabilinu 2016–2026, byggt á fyrirliggjandi starfsmannagögnum, samningum og bókhaldsupplýsingum.
1. Hversu mörg stöðugildi eru nú í mannauðsmálum í ráðuneytinu?
Í ráðuneytinu starfar frá 2025 einn mannauðsstjóri. Enginn mannauðsstjóri var starfandi í ráðuneytinu á tímabilinu 2018–2025.
2. Hvernig hefur þróunin verið í fjölda stöðugilda er sinna mannauðsmálum í ráðuneytinu á árunum 2016–2026? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
Þróun stöðugilda sem sinnt hafa mannauðsmálum í ráðuneytinu á árunum 2016–2026 má finna í töflu 1. Tekið skal fram að á hluta tímabilsins var ekki starfsmaður í fullu starfi við mannauðsmál heldur voru verkefni á því sviði ýmist unnin samhliða öðrum verkefnum eða leyst með öðrum hætti. Af þeirri ástæðu var keypt þjónusta í mannauðsmálum nokkur.
Þann 1. september 2025 hóf núverandi mannauðsstjóri störf í ráðuneytinu en frá byrjun árs 2018 var enginn mannauðsstjóri starfandi í ráðuneytinu.
Tafla 1: Fjöldi stöðugilda sem sinnt hafa mannauðsmálum í ráðuneytinu á árunum 2016–2026.
| Ár | Stöðugildi |
| 2016 | 1 |
| 2017 | 1 |
| 2018 | 0,3 |
| 2019 | 0 |
| 2020 | 0 |
| 2021 | 0 |
| 2022 | 0 |
| 2023 | 0 |
| 2024 | 0 |
| 2025 | 0,3 |
| 2026 | 1 |
3. Hefur ráðuneytið keypt sérfræðiráðgjöf vegna mannauðsmála árin 2016–2026? Svar óskast sundurliðað eftir árum og fyrirtækjum/rekstraraðilum.
Á tímabilinu 2016–2026 keypti ráðuneytið sérfræðiráðgjöf vegna mannauðsmála, enda var enginn mannauðsstjóri starfandi í ráðuneytinu frá 2018–2025. Sundurliðun eftir árum og fyrirtækjum eða rekstraraðilum kemur fram í töflu 3 undir svari við 5. lið fyrirspurnarinnar.
4. Hefur ráðuneytið gert samninga við fyrirtæki/rekstraraðila um þjónustu eða ráðgjöf á sviði mannauðsmála á árunum 2016–2026? Ef svo er, hvernig fór samningaferlið fram? Hafa samningar verið boðnir út? Hvaða fyrirtæki/rekstraraðilar sinna slíku fyrir ráðuneytið?
Ráðuneytið nýtti sér þjónustu og ráðgjöf á sviði mannauðsmála eftir þörfum hverju sinni á umræddu tímabili. Við val á þjónustuaðilum var tekið mið af þörfum hverju sinni, sérþekkingu og þeim eiginleikum sem viðkomandi þjónusta og ráðgjöf þurfti að búa yfir.
Síðla árs 2021 gerði ráðuneytið samning við Attentus – mannauð og ráðgjöf ehf. um mannauðsstjóra til leigu í stað þess að vera með starfandi mannauðsstjóra hjá ráðuneytinu. Samningurinn var ekki boðinn út.
Í samningnum við Attentus fólst að mannauðsstjóri til leigu sinnti bæði mannauðsverkefnum ráðuneytisins og hjá undirstofnunum ráðuneytisins, sem eru 39 talsins.
Á tímabili samningsins fjölgaði starfsmönnum í ráðuneytinu um 20% vegna flutnings verkefna til ráðuneytisins í samræmi við skiptingu stjórnarmálefna samkvæmt forsetaúrskurði.
Í ljósi umfangs mannauðstengdra verkefna í ráðuneytinu og undirstofnunum þess ákvað núverandi ráðherra að hverfa frá þessu fyrirkomulagi. Mannauðsstjóri var ráðinn í fullt starf og samningnum við Attentus sagt upp.
5. Hver hefur kostnaður vegna fyrrgreindrar þjónustu eða ráðgjafar verið á árunum 2016– 2026? Svar óskast sundurliðað eftir árum, fyrirtækjum/rekstraraðilum.
Kostnaður vegna kaupa á þjónustu og sérfræðiráðgjöf á sviði mannauðsmála á árunum 2016–2025 er sundurliðaður í meðfylgjandi töflu.
Tafla 2: Kostnaður vegna sérfræðiráðgjafar og annarrar þjónustu á sviði mannauðsmála á árunum 2016–2025.
| Ár | Fyrirtæki/rekstraraðili | Krónur |
| 2016 | Maskína rannsóknir | 50.000 |
| 2017 | Attentus – mannauður og ráðgjöf | 1.221.475 |
| Hagvangur ehf. | 30.000 | |
| 2018 | Attentus – mannauður og ráðgjöf | 2.289.678 |
| Goðhóll | 1.187.004 | |
| Maskína rannsóknir | 90.000 | |
| 2019 | Attentus – mannauður og ráðgjöf | 7.460.250 |
| Goðhóll | 3.465.583 | |
| Maskína rannsóknir | 145.150 | |
| Vottun hf. | 590.480 | |
| 2020 | Attentus – mannauður og ráðgjöf | 2.554.411 |
| Goðhóll | 3.458.042 | |
| Maskína rannsóknir | 302.000 | |
| Vegferð | 1.000.000 | |
| Vottun hf. | 237.100 | |
| 2021 | Attentus – mannauður og ráðgjöf | 3.650.364 |
| Goðhóll | 3.933.978 | |
| Intellecta ehf. | 558.000 | |
| Maskína rannsóknir | 630.500 | |
| Vegferð | 5.687.500 | |
| Vottun hf. | 237.100 | |
| 2022 | Attentus – mannauður og ráðgjöf | 7.908.570 |
| Goðhóll | 2.747.450 | |
| Maskína rannsóknir | 133.000 | |
| Vegferð | 1.000.000 | |
| Vottun hf. | 237.100 | |
| 2023 | Attentus – mannauður og ráðgjöf | 8.804.335 |
| Goðhóll | 604.940 | |
| Maskína rannsóknir | 183.210 | |
| Vegferð | 2.000.000 | |
| Vottun hf. | 237.100 | |
| 2024 | Attentus – mannauður og ráðgjöf | 9.850.760 |
| Goðhóll | 893.200 | |
| Maskína rannsóknir | 232.100 | |
| Vegferð | 1.000.000 | |
| Vottun hf. | 253.100 | |
| LOGOS slf. | 6.571.138 | |
| 2025 | Attentus – mannauður og ráðgjöf | 10.542.314 |
| Goðhóll | 1.329.000 | |
| Vottun hf. | 286.050 | |
| LOGOS slf. | 1.238.525 | |
| 2026 | Attentus – mannauður og ráðgjöf | 487.725 |
| Goðhóll | 16.628 | |
| Prósent ehf. | 43.400 | |
| Vottun hf. | 354.702 |