Ferill 307. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Nr. 18/157.
Þingskjal 1390 — 307. mál.
Þingsályktun
um breytingu á þingsályktun um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, nr. 24/152.
Alþingi ályktar að eftirfarandi breytingar verði á þingsályktun um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, nr. 24/152:
1. Við A-lið (Vatnasvið) 1. tölul. (Orkunýtingarflokkur) bætist tveir nýir liðir á eftir liðnum Vestfirðir, Ófeigsfjörður, svohljóðandi:
a. Vestfirðir, Vattardalsá og Tröllá, Tröllárvirkjun, R4163A,
b. Vestfirðir, Skúfnavötn, Skúfnavatnavirkjun, R4103A.
2. Við B-lið (Háhitasvæði) 1. tölul. (Orkunýtingarflokkur) bætist nýr liður á eftir liðnum Reykjanesskagi, Krýsuvíkursvæði, Austurengjar, svohljóðandi: Suðurland, Hellisheiði, Bolaalda, R4292A.
3. Við A-lið (Vatnasvið) 2. tölul. (Biðflokkur) bætist tveir nýir liðir á réttan stað miðað við landshluta, svohljóðandi:
a. Vestfirðir, Glámuhálendi, Hvanneyrardalsvirkjun, R4159A,
b. Austfirðir, Hamarsá, Hamarsvirkjun, R4292A.
Samþykkt á Alþingi 16. júní 2026.