Ferill 355. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1395 — 355. mál.
Svar
umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn frá Karli Gauta Hjaltasyni um fjármuni til loftslagsmála.
1. Hversu miklu fé hefur verið varið árlega til loftslagsmála á vegum ráðuneytisins á árunum 2017 til og með nóvember 2025, sundurliðað eftir ráðuneyti og stofnunum?
2. Til hvaða verkefna hafa þessir fjármunir runnið á umræddu tímabili? Þess er óskað að verkefnum verði skipt niður eftir:
a. skattstyrkjum,
b. aðgerðum í samgöngum,
c. aðgerðum í landbúnaði,
d. öðrum beinum aðgerðum, svo sem styrkveitingum og kaupum á þjónustu einkaaðila, svo sem fyrirtækja, einstaklinga og félagasamtaka.
Útgjöld ríkisins til ýmissa ólíkra mála geta falið í sér loftslagsávinning án þess þó að fyrsti tilgangur útgjaldanna sé vegna loftslagsmála. Þá geta bein útgjöld til loftslagsmála farið í afar ólíkar aðgerðir og þær snúið að ólíkum markmiðum á sviði loftslagsmála samkvæmt lögum:
a. „að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda með hagkvæmum og skilvirkum hætti,
b. að auka bindingu kolefnis úr andrúmslofti,
c. að stuðla að aðlögun að afleiðingum loftslagsbreytinga,
d. að skapa skilyrði fyrir stjórnvöld til þess að standa við alþjóðlegar skuldbindingar Íslands í loftslagsmálum,
e. að ná kolefnishlutleysi eigi síðar en árið 2040. Verði loftslagsmarkmið stjórnvalda uppfærð skal leggja til breytingar á þessu ákvæði því til samræmis.“
Þá geta aðgerðir til að ná fram ólíkum markmiðum snúið að mismunandi verkefnum, svo sem stjórnsýslu, upplýsingagjöf, greiningum og framkvæmd aðgerða, og innan ólíkra geira samfélagsins eru slíkar aðgerðir oft og tíðum ólíkar í eðli sínu. Til dæmis er framkvæmd aðgerða til að draga úr losun frá landi afar ólík aðgerðum til að minnka losun frá samgöngum á landi. Við þetta má einnig bæta rekstrarframlögum ríkisaðila til að ná sams konar markmiðum fyrir rekstur sinn og kolefnisjafna losun sem ekki næst að draga úr. Allt er þetta talið saman hér að neðan og útskýrt en ljóst er að umfang fyrirspurnar nálgast að felast í skýrslugjöf sem er jafnframt vísbending um að samþætta mætti betur þessar upplýsingar við þróun þeirra afurða sem unnið er að samkvæmt lögum um opinber fjármál, nr. 123/2015. Í öðrum löndum, líkt og Noregi, er sérstaklega tekið utan um loftslagsmál við framlagningu fjárlaga. Að svo stöddu er gert ráð fyrir að taka betur utan um fjármögnun loftslagsaðgerða í árlegri skýrslu verkefnisstjórnar sem ber að skila fyrir lok september ár hvert samkvæmt reglugerð 786/2024.
Gerður er sá fyrirvari við upplýsingarnar að neðan að í einstaka tilvikum geta verið tvítaldir fjármunir milli stofnunar og ráðuneytisins ef um var að ræða greiðslur innan árs vegna sérstakra verkefna.
Til að svara ofangreindum spurningum verður hér tekið saman svar sem snýr sérstaklega að fjármunum á málefnasviði ráðuneytis umhverfis-, orku- og loftslagsmála. Við það svar er bætt samantekt á svörum allra ráðuneyta í ljósi þess að ráðherra ber ábyrgð á málaflokknum.
Í viðauka 1 er að finna yfirlitstöflu yfir allt fjármagn allra ráðuneyta og undirstofnana þeirra. Þar er að finna það heildarfjármagn sem varið hefur verið í loftslagsmál síðastliðin níu ár, þar sem fyrsti tilgangur framlagsins er samdráttur í losun, kolefnisbinding eða viðbragð við áhrifum loftslagsbreytinga.
Svar vegna fjármuna á málefnasviði umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis.
Í fylgiskjali 1 má sjá sundurliðað yfirlit yfir fjármagn sem aðalskrifstofa ráðuneytisins, stofnanir þess, sjóðir og ráð hafa varið í, þar sem fyrsti tilgangur framlagsins er samdráttur í losun, kolefnisbinding eða viðbragð við áhrifum loftslagsbreytinga. Hluti fjármagnsins flokkast undir aðrar aðgerðir.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti: Þau framlög sem ráðuneytið hefur talið til snúa að einhverju leyti að launakostnaði fyrir skrifstofu loftslagsmála innan ráðuneytisins, en framlög til málaflokksins spila einnig stóran þátt. U.þ.b. 7–10% af stöðugildum ráðuneytisins hafa snúið alfarið að loftslagsmálum frá árinu 2017 (þetta eru á bilinu 2–5 stöðugildi).
Auk launakostnaðar hefur ráðuneytið til umráða árlegar fjárheimildir sem eru eyrnamerktar loftslagsverkefnum. Fyrstu ár tímabilsins var um að ræða fjármögnun aðgerða samkvæmt fyrstu útgáfu aðgerðaáætlunar og þess sem nefnt var „sértækar aðgerðir til að draga úr losun“ en með auknum fjármunum úr ríkissjóði hefur umfang aukist og opnað fyrir fjármögnun umfangsmeiri loftslagsverkefna. Fjármagnið er einnig nýtt til að greiða ýmsa aðkeypta þjónustu ráðgjafa, greiningaraðila, verkefnastjóra o.fl.
Veðurstofa Íslands: Innan Veðurstofunnar eru aðallega aðrar aðgerðir skilgreindar sem fjármunir til loftslagsmála en þetta eru fjárveitingar til málaflokks loftslagsmála, þar af launakostnaður skrifstofu loftslags og aðlögunar og aðkeypt sérfræðiþjónusta.
Verkefni Veðurstofunnar sem snúa að loftslagsmálum má sjá hér:
* Leiðir vinnu við vísindalega skýrslugerð um áhrif loftslagsbreytinga á náttúrufar og samfélag á Íslandi með aðkomu sérfræðinga á sviði náttúruvísinda og samfélagslegra þátta.
* Hefur leitt landsnefnd vegna vísindastarfs um loftslagsbreytingar síðan árið 2024.
* Undanfari landsnefndar var tilraun með skipun stjórnar samráðsvettvangs um þekkingarsköpun vegna áhrifa loftslagsbreytinga til eins árs.
* Hefur verið skilgreind sem landstengiliður við milliríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar á tímabilinu sem um getur (2018–2025).
* Kemur að umsjón aðlögunaráætlunar og undirbúningi funda verkefnisstjórnar loftslagsaðgerða ásamt UOS og ráðuneyti.
* Hefur skv. 9. tölul. 1. mgr. 3. gr. laga um Veðurstofu Íslands það verkefni að kortleggja veðurfar landsins og fylgjast með loftslagsbreytingum og áhrifum þeirra á þá þætti náttúrunnar sem stofnunin á að vakta.
Land og skógur: Fjármunir Lands og skógar eru að stærstum hluta í framlögum til skógræktar, landnýtingar og náttúrumiðaðra lausna í loftslagsmálum. Stofnunin hefur einnig varið fé í skráningu kolefniseininga og aðkeypta ráðgjöf.
Verkefni stofnunarinnar eru til að mynda að:
* Veita upplýsingar um landnotkun, breytta landnotkun og skógrækt (LULUCF), þ.m.t. flatarmál og landfræðilega staðsetningu skóga, landgræðslu- og skógræktarsvæða, auk landgræðslu- og skógræktaraðgerða, og meta losun gróðurhúsalofttegunda og bindingu kolefnis úr andrúmslofti vegna mismunandi landnotkunarflokka í samræmi við skilyrði sem koma fram í leiðbeiningum milliríkjanefndar um loftslagsbreytingar um losunarbókhald.
* Taka þátt í ritun kafla um landnotkun, breytta landnotkun og skógrækt (LULUCF) í landsskýrslu um losun gróðurhúsalofttegunda.
* Taka þátt í vinnu við gerð landnotkunaraðgerða í aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum og vinna að gerð umbótaáætlunar til að styrkja bókhald vegna landnotkunar til að uppfylla kröfur loftslagssamningsins (UNFCCC) og reglur Evrópusambandsins þar að lútandi.
Umhverfisstofnun/Umhverfis- og orkustofnun: Fjármunir þáverandi Umhverfisstofnunar snúa að stærstum hluta að vinnu við lögbundin verkefni sem tengjast lögum um loftslagsmál, nr. 70/2012, og lögum um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir, nr. 96/2023. Umhverfis- og orkustofnun í dag og þáverandi Umhverfisstofnun ber ábyrgð á losunarbókhaldi Íslands skv. 6. gr. laga um loftslagsmál. Þá sinnir stofnunin stjórnsýsluhlutverki varðandi utanumhald viðskiptakerfis ESB með losunarheimildir (ETS-kerfið).
Launakostnaður er einnig inni í framlögum stofnunarinnar til loftslagsmála en árin 2017– 2021 sá teymi loftslagsmála hjá Umhverfisstofnun um bæði losunarbókhald og ETS-kerfið. Sama teymi vann líka að gagnaöflun fyrir mengunarefni og vöktun og upplýsingasöfnun varðandi loftgæði. Launatölurnar ná því yfir öll þessi viðfangsefni. Á árunum 2022–2025 féll það í hlut tveggja teyma sem tóku við af teymi loftslagsmála, teymi losunarbókhalds og teymi loftgæða og losunarheimilda árið 2022. Þessi skipting hélt sér á nýrri Umhverfis- og orkustofnun og mynda þessi tvö teymi saman svið loftslagsmála.
Auknar fjárveitingar sem komu inn til stofnunarinnar vegna loftslagsmála skýrast af ýmsum viðbótarverkefnum. Annars vegar hefur vinna við bæði losunarbókhald og ETS-kerfið orðið flóknari og umfangsmeiri eftir því sem alþjóðlegt regluverk hefur þróast. Þannig bættist t.d. við skýrsla um framreikninga og ýmis fleiri verkefni, sem tengjast því að Ísland þarf ekki eingöngu að uppfylla skyldur gagnvart UNFCCC og Parísarsamningnum heldur líka gagnvart ESB, bæði hvað varðar ETS, samfélagslosun og LULUCF. Þá hefur ETS-kerfið verið að stækka þar sem fleiri geirar eru að bætast við. Aukinheldur hefur umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið veitt tímabundna fjármuni til að stofnunin geti stutt betur við vinnu við aðgerðaáætlun, m.a. með aðkomu sérfræðinga losunarbókhalds að mati á áhrifum mismunandi aðgerða (þ.e. útreikningum á því hversu miklum samdrætti eða bindingu tilteknar aðgerðir gætu skilað).
Loftslags- og orkusjóður: Styrkir sem Orkusjóður (fyrir sameiningu) og Loftslags- og orkusjóður (eftir sameiningu) hafa veitt einstaklingum og fyrirtækjum til þess að stemma stigu við áhrifum loftslagsbreytinga snúa m.a. að:
* Innviðum fyrir rafbíla,
* styrkjum til lækkunar óniðurgreidds kyndikostnaðar sveitarfélaga,
* styrkjum til uppsetninga á hleðslustöðvum fyrir rafbíla (150 kW hleðslustöðvar),
* fjárfestingarstyrkjum til sveitarfélaga o.fl.,
* innviðastyrkjum fyrir vistvæn ökutæki,
* verkefnastyrkjum fyrir rekstur í haftengdri starfsemi,
* aðgerðum til að minnka notkun jarðefnaeldsneytis,
* hleðslustöðvum við gististaði og fjölsótta ferðamannastaði,
* kaupum á vistvænum flutningabílum eða bættum innviðum,
* hleðslustöðvum fyrir samgöngur,
* minnkun olíunotkunar í iðnaði,
* raf- og lífeldsneyti og metani,
* innviðum fyrir orkuskipti,
* tækjabúnaði sem nýtir endurnýjanlega orku í stað olíu,
* raf- og lífeldsneytisframleiðslu,
* hringrásarhagkerfinu,
* innleiðingu nýrrar tækni eða nýsköpunar,
* orkuskiptum í rekstri eða orkusparnaði,
* orkuskiptum í samgöngum,
* rafbílastyrkjum,
* styrkjum til kaupa á hreinorku- eða losunarfríum vöru- og hópferðaökutækjum,
* styrkjum til kaupa á nytjahjóli,
* styrkjum til orkusparandi aðgerða í gróðurhúsum.
Loftslagsráð: Loftslagsráð er sjálfstætt starfandi ráð sem hefur það meginhlutverk að veita stjórnvöldum aðhald með faglegri ráðgjöf um loftslagsmál.
Hlutverk ráðsins samkvæmt lögum er að:
a. veita ráðgjöf um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda og aðgerðir til að auka kolefnisbindingu,
b. veita ráðgjöf um aðlögun að loftslagsbreytingum,
c. rýna á undirbúningsstigi áætlanir stjórnvalda sem snerta loftslagsmál,
d. hafa yfirsýn yfir miðlun fræðslu og upplýsinga um loftslagsmál til almennings, fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga,
e. rýna tillögur sem berast frá fagstofnunum um vöktun og rannsóknir sem tengjast loftslagsbreytingum,
f. vinna að öðrum verkefnum sem ráðherra felur ráðinu hverju sinni.
Þær fjárheimildir sem veittar hafa verið í loftslagsráð (síðastliðin ár í gegnum Veðurstofu Íslands) fara því í þóknun fyrir fulltrúa ráðsins, laun til starfsmanns þess og lögbundin verkefni þeirra. Yfirlit yfir fjárheimildir ráðsins er að finna neðarlega í fylgiskjali 1.
Samantekt svara allra ráðuneyta.
Í fylgiskjali 2 má sjá samantekt á svörum annarra ráðuneyta, að frátöldu félags- og húsnæðismálaráðuneyti og mennta- og barnamálaráðuneyti. Vegna ráðherraskipta fellur fyrirspurnin niður í samræmi við 57. gr. laga um þingsköp, nr. 55/1991. Kostnaður annarra ráðuneyta Stjórnarráðsins, að frátöldum skattstyrkjum fjármála- og efnahagsráðuneytisins, samanstendur að stærstum hluta af framlögum til samgangna og annarra aðgerða. Einungis atvinnuvegaráðuneyti telur fram veitta fjármuni til landbúnaðar, þá í tengslum við landgræðslu, skógrækt og garðyrkju. Aðeins fjármála- og efnahagsráðuneyti veitti skattstyrki (vísað er til svars ráðuneytisins til þess að sjá sundurliðun á skattstyrkjum).
Fjármagnið sem ráðuneytin telja til samgangna er að stærstum hluta samgöngustyrkir til starfsfólks (annaðhvort bein framlög eða kaup á strætókortum). Mat umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins er að fjármunir sem varið er í samgöngustyrki séu ekki fjármunir sem teljist til þeirra fjármuna sem hér er óskað eftir, þ.e. þar sem fyrsti tilgangur framlagsins er samdráttur í losun, kolefnisbinding eða viðbragð við áhrifum loftslagsbreytinga.
Undir aðrar aðgerðir fellur hins vegar fjölbreyttur kostnaður, svo sem kolefnisbinding (kaup á kolefniseiningum), kaup á þjónustu einkaaðila, þar á meðal fyrirtækja, einstaklinga og félagasamtaka. Utanríkisráðuneyti tilgreinir framlög til verkefna með loftslagsáhrif að meginmarkmiði og kjarnaframlög til alþjóðastofnana sem starfa að loftslagsmálum.
3. Hvaða mælingar liggja fyrir um árangur af framangreindri ráðstöfun opinbers fjár?
Verkefnisstjórn loftslagsaðgerða gerir árlega grein fyrir framgangi loftslagsaðgerða í skýrslu verkefnisstjórnar 1 . Í reglugerð nr. 786/2024 um verkefnisstjórn vegna gerðar og eftirfylgni áætlana á sviði loftslagsmála segir: „Verkefnisstjórn skal skila skýrslu til ráðherra um framgang loftslagsaðgerða fyrir lok september ár hvert. Í skýrslunni skal farið yfir þróun losunar gróðurhúsalofttegunda og bindingu kolefnis og hvort hún sé í samræmi við áætlanir, fjallað um framgang aðgerða og eftir atvikum settar fram ábendingar verkefnisstjórnar. Að minnsta kosti annað hvert ár skal verkefnisstjórn í skýrslu sinni fjalla um framgang og árangur aðlögunaraðgerða.“ Í desember síðastliðnum var kynnt ný aðlögunaráætlun vegna loftslagsbreytinga og mun skýrsla verkefnastjórnar fyrir árið 2026 jafnframt gera grein fyrir framgangi aðlögunaraðgerða.
Annað hvert ár skilar Ísland skýrslu um stefnur, aðgerðir og framreiknaða losun (e. Report on Policies, Measures, and Projections) fyrir Ísland til loftslagssamningsins (UNFCCC). Síðustu skýrslu var skilað í mars 2025 2 .
Þá heldur verkefnisstjórn loftslagsaðgerða úti heimasíðunni co2.is þar sem gerð er grein fyrir stöðu aðgerða í aðgerða- og aðlögunaráætlunum auk stöðu losunar.
Samkvæmt loftslagsstefnu Stjórnarráðsins ber ráðuneytum að taka saman töluleg gögn um losun gróðurhúsalofttegunda sem rekja má til eigin starfsemi, t.d. í tengslum við samgöngur starfsfólks, orkunotkun og aðra rekstrarþætti. Upplýsingum um niðurstöður mælinganna er skilað til Umhverfis- og orkustofnunar og þeim miðlað á heimasíðu Grænna skrefa.
4. Hverjir eru helstu viðtakendur umræddra fjármuna á verkefnasviði ráðuneytisins? Óskað er eftir upplýsingum um greiðslur yfir 500 þús. kr. og fyrir hvað var greitt.
Í fylgiskjali 3 er að finna lista yfir alla viðtakendur fjármuna sem fengu greiðslur yfir 500 þús. kr., frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti, stofnunum þess, ráðum og sjóðum.
Viðauki I
Yfirlit yfir heildarfjármagn allra ráðuneyta og stofnana sem varið hefur verið í loftslagsmál.
| Flokkur | 2017 | 2018 | 2019 | 2020 | 2021 | 2022 | 2023 | 2024 | 2025 | Samtals |
| Skattstyrkir | 4.020.000.000 | 5.150.000.000 | 4.796.000.000 | 7.949.000.000 | 12.707.000.000 | 14.366.000.000 | 19.042.000.000 | 3.730.000.000 | 3.818.000.000 | 75.578.000.000 |
| Landbúnaður | 0 | 0 | 250.000.000 | 98.000.000 | 732.281.000 | 1.016.182.000 | 467.974.000 | 232.250.000 | 353.983.708 | 3.150.670.708 |
| Samgöngur | 71.635.230 | 170.392.500 | 608.948.136 | 218.784.568 | 250.455.308 | 374.526.566 | 472.654.955 | 4.734.110.024 | 7.841.684.607 | 14.743.191.894 |
| Aðrar aðgerðir | 337.904.807 | 392.375.723 | 813.669.072 | 1.342.034.921 | 2.038.324.346 | 2.346.047.725 | 2.614.378.247 | 2.740.575.224 | 4.072.064.263 | 16.697.374.329 |
| Samtals | 4.429.540.037 | 5.712.768.223 | 6.468.617.208 | 9.607.819.489 | 15.728.060.654 | 18.102.756.291 | 22.597.007.202 | 11.436.935.248 | 16.085.732.578 | 110.169.236.931 |
| Samtals án skattstyrkja | 409.540.037 | 562.768.223 | 1.672.617.208 | 1.658.819.489 | 3.021.060.654 | 3.736.756.291 | 3.555.007.202 | 7.706.935.248 | 12.267.732.578 | 34.591.236.931 |
Fylgiskjal I.
www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s1395-f_I.pdf
www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s1395-f_II.pdf
www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s1395-f_III.pdf
1 Skýrsla verkefnisstjórnar loftslagsaðgerða, 2025.
2 Skýrsla Íslands um stefnur, aðgerðir og framreiknaða losun, 2025.