Ferill 562. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1396 — 562. mál.
Svar
umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn frá Eiríki Birni Björgvinssyni um útgjöld ríkissjóðs til loftslagsmála.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hver voru raunútgjöld ríkissjóðs á árunum 2017–2024, í þágu beinna aðgerða en ekki til reksturs og stjórnsýslu, sem miða að samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda á hverju ári fyrir sig og hvernig skiptist upphæð hvers árs niður á einstaka opinbera aðila, einkaaðila og fjárlagaliði?
Útgjöld ríkissjóðs til loftslagsmála takmarkast ekki við beinar aðgerðir sem miða að samdrætti í losun. Stór hluti framlags til loftslagsmála, sem er tiltölulega nýr málaflokkur innan stjórnsýslunnar, er laun, launatengdur kostnaður og annar rekstrar- og umsýslukostnaður. Í þessu svari er hins vegar ekki horft til slíkra útgjalda heldur aðeins talin til þau útgjöld sem snúa að verkefnum sem miða með beinum hætti að því að draga úr losun eða auka kolefnisbindingu, eða þeirri tegund loftslagsaðgerða sem kölluð er mótvægisaðgerðir. Ekki eru talin með þau útgjöld sem snúa að þeirri tegund loftslagsaðgerða sem kallaðar eru aðlögunaraðgerðir og snúa að því að auka seiglu samfélags og lífríkis frammi fyrir áhrifum loftslagsbreytinga. Aðlögunaraðgerðir eiga sér jafnframt styttri sögu innan íslensks stjórnkerfis, en fyrsta formlega aðlögunaráætlunin kom út í desember 2025.
Neðarlega í fylgiskjali má sjá samantekt yfir öll útgjöld ríkissjóðs í þágu beinna aðgerða til loftslagsmála. Ofar í sömu töflu má sjá hvernig fjárhæðin skiptist niður á einstaka opinbera aðila, einkaaðila og fjárlagaliði. Hér koma frekari skýringar á umræddum raunútgjöldum:
Land og skógur: Raunútgjöld Lands og skógar fyrir umbeðið tímabil snúa að stærstum hluta að aðgerðum í skógrækt, endurheimt votlendis, aðgerðum í þágu bættrar landnýtingar, kolefnisbókhaldi og náttúrumiðaðra lausna í loftslagsmálum. Í þessum tölum eru einnig verkefni sem snúa að losun frá landi og umbótaáætlun vegna hennar.
Loftslags- og orkusjóður: Raunútgjöld LOS (Orkusjóður fyrir sameiningu og Loftslags- og orkusjóður eftir sameiningu) eru að langstærstum hluta styrkir til sveitarfélaga, fyrirtækja og einstaklinga. Styrkirnir voru veittir sem liður í aðgerðum til þess að stemma stigu við áhrifum loftslagsbreytinga. Þeir snúa m.a. að:
* Innviðum fyrir rafbíla.
* Styrkjum til lækkunar óniðurgreidds kyndikostnaðar sveitarfélaga.
* Styrkjum til uppsetninga á hleðslustöðvum fyrir rafbíla (150 kW hleðslustöðvar).
* Fjárfestingarstyrkjum til sveitarfélaga o.fl.
* Innviðastyrkjum fyrir vistvæn ökutæki.
* Verkefnastyrkjum fyrir rekstur í haftengdri starfsemi.
* Aðgerðum til að minnka notkun jarðefnaeldsneytis.
* Hleðslustöðvum við gististaði og fjölsótta ferðamannastaði.
* Kaupum á vistvænum flutningabílum eða bættum innviðum.
* Hleðslustöðvum fyrir samgöngur.
* Minnkun olíunotkunar í iðnaði.
* Raf- og lífeldsneyti og metani.
* Innviðum fyrir orkuskipti.
* Tækjabúnaði sem nýtir endurnýjanlega orku í stað olíu.
* Raf- og lífeldsneytisframleiðslu.
* Hringrásarhagkerfinu.
* Innleiðingu nýrrar tækni eða nýsköpunar.
* Orkuskiptum í rekstri eða orkusparnaði.
* Orkuskiptum í samgöngum.
* Rafbílastyrkjum.
* Styrkjum til kaupa á hreinorku eða losunarfríum vöru- og hópferðaökutækjum
* Styrkjum til kaupa á nytjahjóli.
* Styrkjum til orkusparandi aðgerða í gróðurhúsum.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið: Að frátöldum launakostnaði ráðuneytisins hefur það til umráða árlegar fjárheimildir sem eru eyrnamerktar loftslagsverkefnum. Fyrstu ár tímabilsins var um að ræða fjármögnun aðgerða samkvæmt fyrstu útgáfu aðgerðaáætlunar og þess sem nefnt var „sértækar aðgerðir til að draga úr losun“ en með auknum fjármunum úr ríkissjóði hefur umfang aukist og opnað fyrir fjármögnun umfangsmeiri loftslagsverkefna. Fjármagnið er einnig nýtt til að greiða ýmsa aðkeypta þjónustu ráðgjafa, greiningaraðila, verkefnastjóra o.fl.
Fjármála- og efnahagsráðuneytið: Raunútgjöld fjármála- og efnahagsráðuneytisins fóru að stærstum hluta í skattstyrki, t.d. í formi vaskívilnana fyrir bíla, hleðslustöðvar o.fl., hvata til orkuskipta bílaleigna (vaskur af útleigu), afslátt af vörugjaldi farartækja með metangas sem aðalorkugjafa og undanþágu frá vörugjaldi vegna íblöndunar endurnýjanlegs eldsneytis.
Atvinnuvegaráðuneytið: Raunútgjöld atvinnuvegaráðuneytisins til loftslagsmála voru alfarið í aðgerðum er snúa að landbúnaði, svo sem í tengslum við landgræðslu, skógrækt og garðyrkju.
Vísað er í svar ráðherra við fyrirspurn Karls Gauta Hjaltasonar, 355. mál á 157. löggjafarþingi, um fjármuni til loftslagsmála, fyrir yfirlit yfir skiptingu fjármuna niður á einstaklinga, fyrirtæki og aðra opinbera aðila (sveitarfélög).
Fylgiskjal.