Ferill 657. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1397 — 657. mál.
Svar
umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur um skipan í stjórnir, nefndir, ráð, vinnu- og starfshópa.
1. Í hvaða nefndir, ráð, vinnu- og starfshópa er skipað á vegum ráðherra? Hvaða einstaklingar hafa verið skipaðir í hvert sæti á kjörtímabilinu, til hversu langs tíma og hvaða póstar eru launaðir?
Umhverfis-, orku- og auðlindaráðherra skipar í eftirfarandi lögbundnar nefndir og ráð:
* Breiðafjarðarnefnd, samkvæmt lögum nr. 54/1995, um vernd Breiðafjarðar.
* Fagráð náttúruminjaskrár, samkvæmt lögum nr. 60/2013, um náttúruvernd.
* Fagráð Loftslags- og orkusjóðs, samkvæmt reglugerð nr. 1566/2024, um Loftslags- og orkusjóð.
* Fornminjanefnd, samkvæmt lögum nr. 80/2012, um menningarminjar.
* Hreindýraráð, samkvæmt lögum nr. 64/1994, um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.
* Húsafriðunarnefnd, samkvæmt lögum nr. 80/2012, um menningarminjar.
* Loftslagsráð, samkvæmt lögum nr. 70/2012, um loftslagsmál.
* Mengunarvarnaráð hafna, samkvæmt lögum nr. 33/2004, um varnir gegn mengun hafs og stranda.
* Landsnefnd um vísindastarf vegna loftslagsbreytinga, samkvæmt lögum nr. 70/2012, um loftslagsmál.
* Ofanflóðanefnd, samkvæmt lögum nr. 49/1997, um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum.
* Ráðgjafarnefnd hagsmunaaðila, samkvæmt lögum nr. 36/2011, um stjórn vatnamála.
* Ráðgjafarnefnd fagstofnana og eftirlitsaðila, samkvæmt lögum nr. 36/2011, um stjórn vatnamála.
* Ráðgjafarnefnd náttúruminjaskrár, samkvæmt lögum nr. 60/2013, um náttúruvernd.
* Ráðgjafarnefnd um erfðabreyttar lífverur, samkvæmt lögum nr. 18/1996, um erfðabreyttar lífverur.
* Ráðgjafarnefnd um stefnumarkandi áætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum, samkvæmt lögum nr. 20/2016, um landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum.
* Samráðsnefnd eftirlitsskyldra aðila, samkvæmt raforkulögum, nr. 65/2003.
* Sérfræðinganefnd til ráðgjafar um innflutning og ræktun framandi tegunda og dreifingu lifandi lífvera, samkvæmt lögum nr. 60/2013, um náttúruvernd.
* Svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðs (fjögur talsins), samkvæmt lögum nr. 60/2007, um Vatnajökulsþjóðgarð.
* Úrskurðarnefnd raforkumála, samkvæmt raforkulögum, nr. 65/2003.
* Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, samkvæmt lögum nr. 130/2011, um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.
* Vatnaráð, samkvæmt lögum nr. 36/2011, um stjórn vatnamála.
Á kjörtímabilinu hefur umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra skipað í fimm lögbundnar nefndir og fimm lögbundin ráð, fimm ólögbundnar nefndir, fjóra starfshópa, fjóra stýrihópa, einn samráðshóp, tvo vinnuhópa og eitt framkvæmdateymi.
Nánar er vísað til fylgiskjals I um skipanir ráðherra á kjörtímabilinu, hvaða einstaklingar hafa verið skipaðir í hvert sæti á kjörtímabilinu, til hversu langs tíma og hvaða póstar eru launaðir.
2. Í hvaða stjórnir er skipað á vegum ráðherra? Hvaða einstaklingar hafa verið skipaðir í hverja stjórn á kjörtímabilinu og til hversu langs tíma? Hverjir þeirra eru jafnframt starfsmenn ráðuneyta og í hvaða stjórnum sitja þeir?
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra skipar í eftirfarandi stjórnir:
* Stjórn Íslenskra orkurannsókna, samkvæmt lögum nr. 86/2003, um Íslenskar orkurannsóknir.
* Stjórn Kvískerjasjóðs, samkvæmt lögum nr. 19/1988, um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá.
* Stjórn Loftslags- og orkusjóðs, samkvæmt lögum nr. 76/2020, um Loftslags- og orkusjóð.
* Stjórn Úrvinnslusjóðs, samkvæmt lögum nr. 162/2002, um úrvinnslugjald.
* Svæðisstjórn Vatnajökulsþjóðgarðs, samkvæmt lögum nr. 60/2007, um Vatnajökulsþjóðgarð.
* Verkefnisstjórn loftslagsaðgerða, samkvæmt lögum nr. 70/2012, um loftslagsmál.
* Verkefnisstjórn áætlunar um vernd og orkunýtingu landsvæða, samkvæmt lögum nr. 48/2011, um verndar- og orkunýtingaráætlun.
* Verkefnisstjórn um stefnumarkandi áætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum, samkvæmt lögum nr. 20/2016, um landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum.
* Verkefnisstjórn um gerð landsáætlunar um landgræðslu og skógrækt, samkvæmt lögum nr. 33/2019, um skóga og skógrækt, og lögum nr. 155/2018, um landgræðslu.
* Svæðisstjórn fyrir Snæfellsjökulsþjóðgarð, samkvæmt lögum nr. 60/2013, um náttúruvernd.
Á kjörtímabilinu hefur umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra skipað í þrjár stjórnir: svæðisstjórn fyrir Vatnajökulsþjóðgarð, verkefnisstjórn áætlunar um vernd og orkunýtingu landsvæða og verkefnisstjórn um gerð landsáætlunar um landgræðslu og skógrækt. Starfsmaður frá ráðuneytinu var skipaður í verkefnisstjórn um gerð landsáætlunar um landgræðslu og skógrækt.
Nánar er vísað til fylgiskjals II um það hvaða einstaklingar hafa verið skipaðir í hvert sæti á kjörtímabilinu og til hversu langs tíma.
Fylgiskjal I.
www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s1397-f_I.pdf
Fylgiskjal II.