Ferill 690. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1401 — 690. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur um tímabundna ráðningu upplýsingafulltrúa.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Á hverju byggist tímabundin ráðning upplýsingafulltrúa í dómsmálaráðuneytinu án auglýsingar? Mun fyrrverandi upplýsingafulltrúi, sem ráðinn var aðstoðarmaður ráðherra, snúa aftur eftir eitt ár? Var einhverjum vandkvæðum bundið að auglýsa stöðuna?
Staða upplýsingafulltrúa í dómsmálaráðuneytinu hefur nú verið auglýst laus til umsóknar.
Tímabundin ráðning upplýsingafulltrúa kom í kjölfar breytinga á starfsmannahaldi ráðuneytisins. Þáverandi upplýsingafulltrúi, sem var ráðinn tímabundið, tók við starfi aðstoðarmanns ráðherra þegar fyrri aðstoðarmaður lét skyndilega af störfum.
Vegna stöðu verkefna í ráðuneytinu var talið nauðsynlegt að bregðast hratt við og ráða í starf upplýsingafulltrúa sem fyrst. Við vinnslu málsins yfirsást að þrátt fyrir þessar aðstæður hefði verið rétt að auglýsa stöðuna. Það hefur nú verið gert.
Fyrrverandi upplýsingafulltrúi, sem nú gegnir starfi aðstoðarmanns ráðherra, mun ekki snúa aftur í starf upplýsingafulltrúa ráðuneytisins.