Ferill 713. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1405 — 713. mál.
Síðari umræða.
Breytingartillaga
við tillögu til þingsályktunar um heildarendurskoðun lagaumgjarðar
og framkvæmdar veitingar ríkisborgararéttar.
Frá Jóni Pétri Zimsen og Sigurði Erni Hilmarssyni.
1. mgr. tillögugreinarinnar orðist svo:
Alþingi ályktar að fela dómsmálaráðherra að skoða heildstætt lagaumgjörð og framkvæmd veitingar ríkisborgararéttar. Slík skoðun hafi að markmiði:
a. að tryggja betur skýrleika, mörk og samspil þess að veita ríkisborgararétt með stjórnvaldsákvörðun Útlendingastofnunar og að Alþingi veiti ríkisborgararétt með lögum; báðar leiðir skuli vera fyrir hendi en að jafnaði skuli nýta stjórnsýsluleiðina áður en umsóknum sé beint til Alþingis,
b. að tryggja að málefnalegar ástæður liggi að baki veitingu ríkisborgararéttar með lögum, sbr. kröfur jafnræðisreglu 65. gr. stjórnarskrárinnar,
c. að tryggja öllum þingmönnum sama aðgang að upplýsingum og gögnum tengdum umsóknum um ríkisborgararétt til Alþingis,
d. að tryggja að umsóknir um ríkisborgararétt með lögum njóti ekki forgangs Útlendingastofnunar umfram umsóknir um ríkisborgararétt með stjórnvaldsákvörðun.