Ferill 535. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Prentað upp.

Þingskjal 1406  —  535. mál.
Leiðréttur texti.

3. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um innviðafélag.

Frá meiri hluta fjárlaganefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið að nýju eftir að því var vísað til hennar eftir 2. umræðu.
Nokkur álitamál hafa komið upp í tengslum við umfjöllun málsins og hafa leitt til þess að meiri hlutinn leggur til nokkrar tillögur til breytinga.

Áheyrnarfulltrúar.
    Gerð er tillaga sem heimilar Alþingi að kjósa einn til tvo áheyrnarfulltrúa sem sitja stjórnarfundi félagsins. Fyrir 2. umræðu frumvarpsins gerði meiri hlutinn tillögu um að samningar félagsins um einstök verkefni yrðu kynntir fastanefndum Alþingis og með tillögu um áheyrnarfulltrúa í stjórn félagsins er áréttað að þau verkefni sem félagið tekur að sér verða hluti af heildarstefnu stjórnvalda í samgöngumálum.
    Áheyrnarfulltrúar bera ekki sömu ábyrgð og stjórnarmenn og taka ekki þátt í formlegri ákvarðanatöku eða atkvæðagreiðslum. Þeir eru engu að síður bundnir trúnaði um allt sem fram fer á stjórnarfundum.

Veggjöld.
    Gerðar eru tvær tillögur er varða 7. gr. frumvarpsins um veggjöld, annars vegar til að skilgreina betur hver ber ábyrgð á greiðslu veggjalds og hins vegar til að skýra betur hvaða útgjöld standa að baki ákvörðun um veggjald.
    Fyrri tillagan skýrir að skráður eigandi beri ábyrgð á greiðslu veggjalda en þó þannig að ef um er að ræða kaupleigu, eignaleigu eða fjármögnunarleigu ber umráðamaður ábyrgð á greiðslu veggjalda. Í frumvarpinu er tilgreint að félaginu sé heimilt að gera samninga um innheimtu gjalda. Meiri hlutinn bendir á að sú heimild getur m.a. átt við um bílaleigur.
    Í seinni tillögunni eru talin upp eftirfarandi atriði sem geta legið að baki útreikningi á fjárhæð veggjalds:
    Gjaldtaka af umferð skal miðast við að standa straum af byggingarkostnaði, viðhaldi, rekstri, þróun og eðlilegum afrakstri af fjárfestingu vega eða skilgreinds samgöngukerfis. Heimilt er einnig að byggja gjaldtöku á sjónarmiðum um vernd umhverfis, þróun skilgreinds samgöngukerfis, umferðaröryggi og stýringu umferðar.
    Til eðlilegs afraksturs telst eðlileg ávöxtun eigin fjár og annars bundins fjármagns félagsins að teknu tilliti til fjármögnunar, áhættu, líftíma, eðlis og umfangs viðkomandi verkefnis. Afrakstur samkvæmt ákvæði þessu skal byggjast á málefnalegum og gagnsæjum forsendum og standa í beinum tengslum við viðkomandi samgöngumannvirki eða skilgreint samgöngukerfi. Gjaldtaka skal ekki vera umfram það sem nauðsynlegt er til að tryggja fjárhagslega sjálfbærni viðkomandi samgöngumannvirkis eða skilgreinds samgöngukerfis.

Stofnefnahagsreikningur.
    Í stað almennrar heimildar um að færa eignarhald á þegar byggðum samgöngumannvirkjum til félagsins er skýrara að nefna mannvirkin sérstaklega. Öll eignatilfærsla af þessu tagi verður líka tekin upp sem heimildarákvæði í 6. gr. fjárlaga og er það áréttað með breytingartillögu við 4. gr. frumvarpsins.
    Gerð er tillaga að ákvæði til bráðabirgða sem sérstaklega tilgreinir þrjú mannvirki sem færast til félagsins. Það eru Vaðlaheiðargöng, ný Ölfusárbrú og ný brú yfir Hornafjarðarfljót. Sé heimildin ekki nýtt innan tveggja ára frá gildistöku fellur hún úr gildi.
    Nú þegar eru veggjöld innheimt í Vaðlaheiðargöngum og er gert ráð fyrir að félagið hefji innheimtu veggjalda við Hornafjarðarfljót eins fljótt og verða má eftir stofnun félagsins.
    Gert er ráð fyrir að innviðafélaginu verði komið á fót á grunni Vaðlaheiðarganga hf. Ríkissjóður hefur nú þegar keypt út alla aðra sem voru hluthafar í félaginu og er það því í 100% eigu ríkissjóðs.
    Varðandi Hornafjarðarfljót er miðað við að verðmæti, sem nemur útlögðum kostnaði hjá Vegagerðinni við verkefnið eins og það er skilgreint í samgönguáætlun, verði fært til félagsins.

    Í ljósi þess sem að framan hefur verið rakið leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


     1.      Á eftir orðinu „samgöngumál“ í 2. mgr. 4. gr. komi: og samkvæmt heimild í 6. gr. fjárlaga.
     2.      Við 5. gr. bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
                      Alþingi er heimilt að kjósa einn til tvo áheyrnarfulltrúa sem sitja stjórnarfundi félagsins. Áheyrnarfulltrúi skal ekki vera kjörinn fulltrúi á Alþingi eða í sveitarstjórnum. Kosning Alþingis skal liggja fyrir innan tveggja vikna frá boðun aðalfundar ár hvert. Áheyrnarfulltrúi hefur rétt til að sitja stjórnarfundi og tjá sig um málefni félagsins með almennum hætti. Áheyrnarfulltrúi hefur hvorki atkvæðis- né tillögurétt á stjórnarfundum. Þá hefur áheyrnarfulltrúi ekki rétt til að fá sérálit sitt skráð í gerðabók. Þar sem áheyrnarfulltrúi tekur ekki þátt í formlegri ákvarðanatöku eða atkvæðagreiðslum í stjórn ber hann ekki sömu lagalegu skaðabótaábyrgð og stjórnarmenn skv. 134. gr. laga um hlutafélög, nr. 2/1995. Áheyrnarfulltrúi er bundinn trúnaði um allt sem fer fram á stjórnarfundi félagsins.
     3.      Við 7. gr.
                  a.      Við 1. mgr. bætist tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Gjaldtaka af umferð skal miðast við að standa straum af byggingarkostnaði, viðhaldi, rekstri, þróun og eðlilegum afrakstri af fjárfestingu vega eða skilgreinds samgöngukerfis. Heimilt er einnig að byggja gjaldtöku á sjónarmiðum um vernd umhverfis, þróun skilgreinds samgöngukerfis, umferðaröryggi og stýringu umferðar.
                  b.      Á eftir orðinu „kaupleigu“ í 3. mgr. komi: eignaleigu eða fjármögnunarleigu samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki
     4.      Við bætist ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
                      Ráðherra, í samráði við ráðherra sem fer með samgöngumál, er heimilt að færa yfir til innviðafélags eignarhald á samgöngumannvirkjum eða samningstengdum réttindum sem þeim tilheyra í formi hlutafjár frá ríkissjóði. Heimildin tekur til samgöngumannvirkja við Hornafjarðarfljót, Vaðlaheiðarganga og Ölfusárbrúar. Sé heimildin ekki nýtt fyrir 1. júlí 2028 fellur hún úr gildi.

Alþingi, 18. júní 2026.

Dagur B. Eggertsson,
1. varaform, frsm.
Arna Lára Jónsdóttir. Grímur Grímsson.
Ingvar Þóroddsson. Katrín Sif Árnadóttir.