Ferill 582. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1410 — 582. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (einföldun eftirlits).
(Eftir 2. umræðu, 18. júní.)
I. KAFLI
Breyting á lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu, nr. 36/1993.
1. gr.
II. KAFLI
Breyting á sóttvarnalögum, nr. 19/1997.
2. gr.
3. gr.
a. Í stað orðanna „Heilbrigðisfulltrúar, samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, dýralæknar“ í 1. málsl. kemur: Dýralæknar.
b. Orðin „viðkomandi heilbrigðisnefnd“ í 2. málsl. falla brott.
c. Í stað orðanna „gefa heilbrigðisnefndum“ í 3. málsl. kemur: eftir atvikum gefa Stofnun atvinnuveganna og Umhverfis- og orkustofnun.
4. gr.
III. KAFLI
Breyting á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.
5. gr.
a. 1. mgr. fellur brott.
b. 10. mgr. orðast svo:
Faggilding í skilningi laga þessara hefur sömu merkingu og í lögum um faggildingu o.fl., nr. 24/2006.
c. Í stað tilvísunarinnar „I–IV“ í 17. mgr. kemur: laganna.
6. gr.
a. 1. tölul. orðast svo: eftirlit með atvinnurekstri og annarri starfsemi eða athöfnum sem falla undir þessa grein, útgáfu og efni starfsleyfa, sbr. 7. gr., svo sem nánari tilgreiningu á hvaða starfsemi um er að ræða, og skráningarskyldu, sbr. 8. gr.
b. Í stað orðsins „heilbrigðisnefndar“ í 2. tölul. kemur: sveitarfélaga og Umhverfis- og orkustofnunar.
c. 4. tölul. fellur brott.
d. Í stað orðsins „heilbrigðisnefnda“ í 5. tölul. kemur: Umhverfis- og orkustofnunar.
e. 21. tölul. fellur brott.
7. gr.
a. Á eftir orðunum „þar á meðal ákvæði um“ í 1. tölul. kemur: hvaða starfsemi um er að ræða.
b. Í stað orðsins „heilbrigðisnefnda“ í 18. tölul. kemur: Umhverfis- og orkustofnunar.
c. Í stað orðanna „útgefandi starfsleyfis“ í 19. tölul. kemur: Umhverfis- og orkustofnun.
8. gr.
9. gr.
b. Í stað orðanna „útgefandi starfsleyfis“ í 3. mgr. 6. gr., 3., 4., 5. og 6. mgr. 7. gr., 4. mgr. 9. gr., 1. og 2. mgr. 14. gr., 1. mgr. 15. gr. og tvívegis í 1. mgr. 28. gr. laganna kemur: Umhverfis- og orkustofnun.
10. gr.
a. 1. mgr. orðast svo:
Umhverfis- og orkustofnun gefur út starfsleyfi samkvæmt lögum þessum.
b. Í stað orðsins „leyfisveitanda“ í 3. málsl. 4. mgr. kemur: Umhverfis- og orkustofnun.
c. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Ákvæði 3. mgr. þessarar greinar og 3. mgr. 6. gr. eiga aðeins við um atvinnurekstur skv. a- og b-lið viðauka II, falli starfsemin undir lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana.
11. gr.
12. gr.
a. Í stað viðaukatölunnar „IV“ í 1. og 2. mgr. kemur: II.
b. Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Falli starfsemi undir lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana er þó skylt að gefa út starfsleyfi.
c. Í stað orðanna „Hlutaðeigandi eftirlitsaðili“ í 2. málsl. 3. mgr. kemur: Umhverfis- og orkustofnun.
13. gr.
b. Í stað viðaukatölunnar „IV“ í 4. mgr. 9. gr. laganna kemur: II.
c. Í stað viðaukatalnanna „I–IV“ í 1. mgr. 34. gr., 1. og 2. mgr. 36. gr., 1. mgr. 39. gr., 1. mgr. 40. gr., 1., 3. og 4. mgr. 54. gr. og 1. mgr. 55. gr. laganna kemur: I og II.
d. Í stað orðanna „viðauka I–II“ í 38. gr. laganna kemur: viðauka I og a-lið viðauka II.
14. gr.
15. gr.
16. gr.
a. Í stað orðanna „skulu Umhverfis- og orkustofnun, sbr. 51. gr., og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga, sbr. 47. gr.“ í 1. málsl. 3. mgr. kemur: skal Umhverfis- og orkustofnun.
b. 2. málsl. 3. mgr. orðast svo: Sveitarfélögum er heimilt að setja upp og reka mælistöðvar vegna hugsanlegs álags vegna umferðar eða starfsemi.
c. 2. málsl. 4. mgr. fellur brott.
d. Orðin „í samvinnu við heilbrigðisnefndir sveitarfélaga“ í 2. málsl. 6. mgr. falla brott.
e. 1.–3. málsl. 7. mgr. orðast svo: Umhverfis- og orkustofnun skal gefa út staðbundnar áætlanir um loftgæði þar sem m.a. koma fram tímaáætlun, aðgerðir og stefnumörkun til að bæta loftgæði. Þá skal stofnunin, eftir því sem við á í samráði við hlutaðeigandi sveitarfélög, vinna viðbragðsáætlanir sem taka til skammtímaaðgerða varðandi loftgæði á einstökum svæðum. Umhverfis- og orkustofnun skal gefa út tilkynningar til almennings um loftgæði eftir því sem við á.
f. Í stað orðsins „heilbrigðisnefnd“ í 4. málsl. 7. mgr. kemur: sveitarfélag í samráði við Umhverfis- og orkustofnun.
g. Lokamálsliður 7. mgr. fellur brott.
17. gr.
a. Orðin „heilbrigðisnefndar eða“ í 1. mgr. falla brott.
b. 2. mgr. fellur brott.
18. gr.
a. Í stað orðsins „heilbrigðisnefndar“ kemur: Umhverfis- og orkustofnunar.
b. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Álit Umhverfis- og orkustofnunar.
19. gr.
Sveitarfélögum er heimilt að hafa samvinnu sín á milli um framkvæmd þeirra verkefna sem þeim eru falin í lögum þessum eða reglugerðum settum samkvæmt þeim. Sveitarstjórnir skulu gera með sér samkomulag um tilhögun samstarfsins, þar á meðal um stjórn, rekstur og kostnaðarskiptingu. Um samvinnu sveitarfélaga fer eftir ákvæðum sveitarstjórnarlaga. Heimilt er að fela byggðasamlagi eða öðru sveitarfélagi framkvæmd eftirlits og stjórnvaldsaðgerða samkvæmt lögum þessum.
20. gr.
21. gr.
22. gr.
23. gr.
a. Í stað orðsins „yfirumsjón“ í 2. mgr. kemur: umsjón.
b. 2. málsl. 2. mgr. fellur brott.
c. 4. mgr. orðast svo:
Stofnunin fer því aðeins með beint eftirlit að lög mæli svo fyrir eða ráðherra ákveði það með reglugerð.
d. Greinin ásamt fyrirsögn flyst í XII. kafla.
24. gr.
25. gr.
26. gr.
27. gr.
28. gr.
Ráðherra er heimilt að ákveða með reglugerð að starfsemi heilbrigðiseftirlits skuli hljóta faggildingu og þá hvernig að henni skuli staðið.
29. gr.
a. Orðin „Heilbrigðisnefndum og“ í 1. málsl. falla brott.
b. Við 1. og 2. málsl. bætist: eða Stofnun atvinnuveganna.
c. Orðin „heilbrigðisnefndar eða“ og „eftir því sem við á“ í 3. málsl. falla brott.
30. gr.
a. Orðin „og húsdýrahalds“ í 1. tölul. 1. mgr. falla brott.
b. 2. mgr. orðast svo:
Sveitarstjórn semur drög að samþykktum og breytingum á þeim og leitar umsagnar Umhverfis- og orkustofnunar.
c. 3. mgr. orðast svo:
Sé umsögn Umhverfis- og orkustofnunar neikvæð er samþykktin endursend til sveitarstjórnar með leiðbeiningum um hvað til þurfi svo að jákvæð umsögn fáist.
d. Við 1. málsl. 5. mgr. bætist: og eftirlit, þ.m.t. sýnatöku, eftirfylgni eftirlits og beitingu þvingunarúrræða, sbr. XVII. kafla.
e. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Til að knýja á um framkvæmd ráðstafana samkvæmt samþykktum sem settar eru á grundvelli þessarar greinar fer sveitarstjórn með valdsvið og heimildir til beitingar þvingunarúrræða skv. XVI. kafla, að því marki sem sveitarstjórn, en ekki Umhverfis- og orkustofnun, fer með framkvæmd og eftirlit samkvæmt hlutaðeigandi samþykkt.
31. gr.
32. gr.
a. Orðin „heilbrigðisnefnd eða“ í 1. og 3. málsl. 1. mgr. og í 2. mgr. falla brott.
b. Í stað orðanna „viðkomandi heilbrigðiseftirliti“ í 3. málsl. 1. mgr. kemur: Umhverfis- og orkustofnun.
c. Orðin „og heilbrigðisnefnda“ í 1. málsl. 3. mgr. falla brott.
d. Orðin „eða heilbrigðisnefndar“ í 2. málsl. 3. mgr. falla brott.
e. Orðin „eða heilbrigðisnefnd“ í 5. málsl. 3. mgr. falla brott.
f. Orðin „og sektir sem heilbrigðisnefndir leggja á að frádregnum kostnaði við innheimtu renna til rekstraraðila heilbrigðiseftirlits“ í lokamálslið 3. mgr. falla brott.
33. gr.
a. 1. mgr. orðast svo:
Fulltrúum Umhverfis- og orkustofnunar skal heimill aðgangur til skoðunar og eftirlits, þar á meðal töku sýna og myndatöku, að öllum þeim stöðum sem lög þessi, reglugerðir og samþykktir ná yfir og er heimilt að leita aðstoðar lögreglu ef með þarf.
b. Orðin „í samráði við heilbrigðisnefndir“ í 2. mgr. falla brott.
c. 4. mgr. fellur brott.
34. gr.
a. Orðin „eða heilbrigðisnefnd“ tvívegis í 1. mgr. falla brott.
b. 2. málsl. 2. mgr. fellur brott.
35. gr.
36. gr.
37. gr.
Viðauki II. Önnur mengandi starfsemi og hollustuháttastarfsemi.
a. Önnur mengandi starfsemi:
1. Aksturs- og/eða kennslubraut.
2. Bensínstöð.
3. Bifreiða- og vélaverkstæði.
4. Bifreiðasprautun.
5. Bón- og bílaþvottastöð.
6. Brenna, stærri en 100 m3.
7. Efnalaug og þvottahús.
8. Eldi alifugla, annað en í viðauka I.
9. Eldi sjávar- og ferskvatnslífvera.
10. Eldi svína, annað en í viðauka I.
11. Endurvinnsla skipa, sbr. 64. gr. a laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003.
12. Flugeldasýning.
13. Flugvöllur þar sem er áætlunarflug.
14. Flutningur úrgangs.
15. Formeðferð, svo sem þvottur, bleiking, mersivinnsla eða litun textíltrefja eða textílefna, önnur en í viðauka I.
16. Framköllun, t.d. á ljós-, röntgen- og kvikmyndum.
17. Framleiðsla á aukefnum og hjálparefnum fyrir matvælaiðnað, önnur en í viðauka I.
18. Framleiðsla á áfengi og gosdrykkjum, önnur en í viðauka I.
19. Framleiðsla á hreinsi- og þvottaefnum, önnur en í viðauka I.
20. Framleiðsla á ilmvatni og snyrtivörum, önnur en í viðauka I.
21. Framleiðsla á spónaplötum, límtré og þess háttar, önnur en í viðauka I.
22. Framleiðsla glers, önnur en í viðauka I.
23. Framleiðsla leirvara með brennslu, önnur en í viðauka I.
24. Framleiðsla lífrænna og ólífrænna efna, önnur en í viðauka I.
25. Framleiðsla plasts, önnur en í viðauka I.
26. Garðaúðun og meindýravarnir.
27. Geymsla gass og annarra hættulegra efna.
28. Geymsla koldíoxíðs í jörðu.
29. Glerullar- og steinullarframleiðsla, önnur en í viðauka I.
30. Hreinsivirki fráveitu sem meðhöndlar meira en 50 pe.
31. Jarðborun.
32. Kanínurækt.
33. Kítín- og kítosanframleiðsla.
34. Líkbrennsla.
35. Loðdýrarækt.
36. Málningarvöruframleiðsla.
37. Meðferð og vinnsla hráefna úr dýra- og/eða jurtaríkinu vegna matvæla- eða fóðurvinnslu, önnur en í viðauka I.
38. Meðhöndlun asbests.
39. Meðhöndlun og förgun spilliefna, þ.m.t. námuúrgangsstaðir, sbr. 14. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, önnur en í viðauka I.
40. Meðhöndlun seyru, þ.m.t. flutningur, notkun og hreinsun.
41. Meðhöndlun úrgangs, önnur en í viðauka I.
42. Móttökustöð fyrir úrgang.
43. Niðurrif bifreiða og bílapartasala.
44. Niðurrif mannvirkja.
45. Olíubirgðastöðvar.
46. Olíumalar- og malbikunarstöðvar og geymsla olíuefna utan fastra starfsstöðva.
47. Pappírsvöru- og pappakassaframleiðsla, önnur en í viðauka I.
48. Prentun þar sem er notkun á mengandi efnum.
49. Rannsóknir og vinnsla kolvetnis, önnur en í viðauka I.
50. Ryðvarnarverkstæði.
51. Saltvinnsla.
52. Skotvöllur.
53. Sláturhús, önnur en í viðauka I.
54. Smurstöð.
55. Spennistöð þar sem spennar innihalda yfir 2.000 lítra af olíu.
56. Starfsemi þar sem notað er kælikerfi sem inniheldur flúoraðar gróðurhúsalofttegundir eða ósoneyðandi efni sem og þjónusta við þau kerfi.
57. Steypueiningaverksmiðja.
58. Steypustöð.
59. Sútunarverksmiðjur, aðrar en í viðauka I.
60. Trésmíðaverkstæði, önnur en í viðauka I.
61. Vefnaðar- og spunaverksmiðjur.
62. Vinnsla á hrájárni eða stáli, önnur en í viðauka I.
63. Vinnsla gúmmís, önnur en í viðauka I.
64. Vinnsla jarðefna, þ.m.t. legsteinagerð, önnur en í viðauka I.
65. Vinnsla járnlausra málma, önnur en í viðauka I.
66. Vinnsla málma, önnur en í viðauka I.
67. Virkjun og orkuveita frá 1 MW.
68. Yfirborðsmeðferð efna, hluta eða afurða með lífrænum leysum, önnur en í viðauka I.
69. Yfirborðsmeðferð málma eða plastefna, önnur en í viðauka I.
70. Æfingasvæði slökkviliðs.
b. Hollustuháttastarfsemi:
1. Almenningssalerni.
2. Baðstaður í náttúrunni, flokkur 1 og 2.
3. Daggæsla hjá dagforeldrum með sex börn eða fleiri.
4. Dvalarheimili.
5. Fangagæsla.
6. Fangelsi.
7. Gististaður, að undanskilinni heimagistingu.
8. Heilsuræktarstöð.
9. Heimili og stofnanir fyrir börn og unglinga með sex börn eða fleiri.
10. Hestaleiga og/eða reiðskóli.
11. Íþróttahús.
12. Íþróttamiðstöð.
13. Íþróttavöllur.
14. Leiksvæði, önnur en leiksvæði við fjöleignarhús með sameiginlegu svæði.
15. Sambýli þar sem veitt er þjónusta allan sólarhringinn.
16. Samgöngumiðstöð.
17. Samkomuhús, þ.m.t. veitingastaður.
18. Skemmti- og þemagarður, þ.m.t. tívolí og dýragarður.
19. Skólahúsnæði.
20. Starfsmannabúðir.
21. Starfsmannabústaðir.
22. Starfsemi þar sem veitt er heilbrigðisþjónusta.
23. Stofa þar sem fram fer húðrof.
24. Stofa þar sem fram fer meðferð á líkama án húðrofs.
25. Sund- og baðstaður.
26. Tjald- og hjólhýsasvæði.
27. Útihátíð.
28. Verslunarmiðstöð.
38. gr.
IV. KAFLI
Breyting á áfengislögum, nr. 75/1998.
39. gr.
V. KAFLI
Breyting á lögum um brunavarnir, nr. 75/2000.
40. gr.
41. gr.
VI. KAFLI
Breyting á lögum um tóbaksvarnir, nr. 6/2002.
42. gr.
43. gr.
Hlutverk Umhverfis- og orkustofnunar.
44. gr.
a. 2. málsl. 7. mgr. fellur brott.
b. Í stað orðanna „heilbrigðisnefndar á viðkomandi eftirlitssvæði“ í 1. og 2. málsl. 11. mgr. kemur: ÁTVR.
c. 5. málsl. 11. mgr. orðast svo: ÁTVR er heimilt að innheimta gjald fyrir leyfi og Umhverfis- og orkustofnun er heimilt að innheimta gjald fyrir eftirlit með starfsemi leyfishafa.
d. 2. málsl. 13. mgr. fellur brott.
45. gr.
46. gr.
a. Í stað orðanna „Heilbrigðisnefndir, undir yfirumsjón Umhverfis- og orkustofnunar, hafa eftirlit með smásölustöðum tóbaks og fylgjast með því í umdæmi sínu“ í 1. mgr. kemur: Umhverfis- og orkustofnun hefur eftirlit með smásölustöðum tóbaks og fylgist með því.
b. Í stað orðanna „heilbrigðisnefndar og getur þá nefndin“ í 2. mgr. kemur: Umhverfis- og orkustofnunar og getur þá stofnunin.
c. Í stað orðanna „heilbrigðisnefnd á viðkomandi eftirlitssvæði“ í 1. málsl. 3. mgr. kemur: Umhverfis- og orkustofnun.
d. Í stað orðsins „heilbrigðisnefnd“ í 2. málsl. 3. mgr. kemur: stofnuninni.
e. Í stað orðsins „heilbrigðisnefndar“ í 4. mgr. 17. gr. kemur: ÁTVR og Umhverfis- og orkustofnunar.
47. gr.
48. gr.
a. Við 1. tölul. bætist: og framkvæmd leyfisveitinga, sbr. 1. mgr. 5. gr.
b. 3. tölul. orðast svo: verkefni Umhverfis- og orkustofnunar um framkvæmd eftirlits, sbr. 5. gr. b, að höfðu samráði við ráðuneyti umhverfis-, orku- og loftslagsmála.
VII. KAFLI
Breyting á lögum um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003.
49. gr.
Umhverfis- og orkustofnun fer með eftirlit með framkvæmd laga þessara.
50. gr.
a. Orðin „og eftir atvikum heilbrigðisnefndar“ í 2. málsl. 1. mgr. falla brott.
b. Í stað orðsins „útgefandi“ í 3. málsl. 1. mgr. kemur: Umhverfis- og orkustofnun.
c. 2. mgr. orðast svo:
Umhverfis- og orkustofnun veitir starfsleyfi samkvæmt lögum þessum.
d. Í stað orðanna „útgefanda starfsleyfis“ og „Útgefandi starfsleyfis“ í 4. mgr., 5. mgr., tvívegis í 9. mgr., í 10. mgr. og 11. mgr. kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Umhverfis- og orkustofnun.
51. gr.
52. gr.
a. 5. málsl. 1. mgr. fellur brott.
b. Í stað orðanna „útgefanda starfsleyfis skv. 2. mgr. 14. gr.“ í 2. mgr. kemur: Umhverfis- og orkustofnunar.
53. gr.
54. gr.
55. gr.
56. gr.
a. Í stað orðsins „eftirlitsaðili“ í 1. mgr. kemur: Umhverfis- og orkustofnun.
b. Orðin „Umhverfis- og orkustofnun hefur“ í 1. mgr. falla brott.
c. Orðin „eða viðkomandi eftirlitsaðila“ í 6. mgr. falla brott.
57. gr.
a. 2. mgr. orðast svo:
Umhverfis- og orkustofnun veitir starfsleyfi fyrir starfsemi þar sem fram fer endurvinnsla skipa. Starfsleyfi vegna endurvinnslu skipa yfir 500 brúttótonnum skal vera til fimm ára í senn, en að öðru leyti gilda ákvæði 14.–17. gr. um útgáfu starfsleyfa eftir því sem við á. Um starfsleyfi fyrir starfsemi þar sem fram fer endurvinnsla skipa undir 500 brúttótonnum gilda ákvæði laga um hollustuhætti og mengunarvarnir.
b. 4. mgr. fellur brott.
58. gr.
a. 2. málsl. 1. mgr. fellur brott.
b. Orðið „einnig“ í 3. málsl. 1. mgr. fellur brott.
c. Í stað orðsins „heilbrigðiseftirlitsins“ í 3. málsl. 1. mgr. kemur: eftirlitsins.
d. Orðin „og öðrum eftirlitsaðilum samkvæmt lögum þessum“ í 2. mgr. falla brott.
e. 5. mgr. fellur brott.
59. gr.
a. Orðin „og heilbrigðisnefnd þar sem hún fer með eftirlit“ í 1. mgr. falla brott.
b. Orðin „eða heilbrigðisnefnd þar sem hún fer með eftirlit“ í 4. mgr. falla brott.
60. gr.
VIII. KAFLI
Breyting á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda, nr. 33/2004.
61. gr.
a. Orðin „heilbrigðiseftirliti sveitarfélaganna eða“ í 2. málsl. falla brott.
b. Orðin „eða við hlutaðeigandi heilbrigðiseftirlit eftir því sem við á“ í 3. málsl. falla brott.
c. Lokamálsliður fellur brott.
62. gr.
63. gr.
64. gr.
65. gr.
66. gr.
a. Orðin „og heilbrigðisnefnd“ í 3. málsl. a-liðar falla brott.
b. Í stað orðsins „heilbrigðisnefnd“ í 4. og 5. málsl. a-liðar kemur: Umhverfis- og orkustofnun.
c. 6. málsl. a-liðar fellur brott.
d. 3. málsl. b-liðar fellur brott.
e. Orðin „heilbrigðisnefnd eða“ í 4. málsl. b-liðar falla brott.
67. gr.
68. gr.
a. Orðin „eða heilbrigðisnefnd, þar sem það á við“ í 1. mgr. falla brott.
b. Lokamálsliður 2. mgr. fellur brott.
c. Orðin „en tilkynna skal það hluteigandi heilbrigðisnefnd“ í 3. mgr. falla brott.
69. gr.
IX. KAFLI
Breyting á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr. 85/2007.
70. gr.
X. KAFLI
Breyting á lögum um uppbyggingu og rekstur fráveitna, nr. 9/2009.
71. gr.
XI. KAFLI
Breyting á lögum um stjórn vatnamála, nr. 36/2011.
72. gr.
a. Orðin „og heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga“ í 1. málsl. 1. mgr. falla brott.
b. Orðin „í samvinnu við heilbrigðisnefndir og“ í 2. málsl. 1. mgr. falla brott.
c. Orðin „frá hlutaðeigandi heilbrigðisnefndum“ í 3. mgr. falla brott.
73. gr.
74. gr.
a. Í stað orðanna „heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga“ í 4. málsl. 2. mgr. kemur: sveitarfélög.
b. Í stað orðanna „heilbrigðisnefndum sveitarfélaga“ í 1. málsl. 3. mgr. kemur: sveitarfélögum.
c. Í stað orðanna „Þá er heimilt“ í 2. málsl. 3. mgr. kemur: Heimilt er.
XII. KAFLI
Breyting á lögum um umhverfisábyrgð, nr. 55/2012.
75. gr.
76. gr.
77. gr.
78. gr.
79. gr.
a. 3. málsl. 2. mgr. fellur brott.
b. Í stað orðanna „og viðkomandi heilbrigðisnefnd skulu“ í 4. mgr. kemur: skal.
80. gr.
XIII. KAFLI
Breyting á efnalögum, nr. 61/2013.
81. gr.
82. gr.
83. gr.
a. Orðin „heilbrigðisnefndum sveitarfélaga“ í 1. málsl. 2. mgr. falla brott.
b. Orðin „hlutaðeigandi heilbrigðisnefnd“ í 2. málsl. 2. mgr. falla brott.
c. 4. mgr. fellur brott.
XIV. KAFLI
Breyting á lögum um meðferð elds og varnir gegn gróðureldum, nr. 40/2015.
84. gr.
85. gr.
XV. KAFLI
Breyting á lögum um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, nr. 88/2021.
86. gr.
XVI. KAFLI
Breyting á lögum um Umhverfis- og orkustofnun, nr. 110/2024.
87. gr.
Umhverfis- og orkustofnun skal hafa starfsfólk á höfuðborgarsvæðinu, Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Austurlandi, Suðurlandi og Suðurnesjum.
88. gr.
Ákvæði til bráðabirgða.