Ferill 73. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1413  —  73. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um tillögu til þingsályktunar um jarðakaup erlendra aðila.

Frá meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og bárust umsagnir frá Bændasamtökum Íslands og Lagastofnun Háskóla Íslands. Gögnin eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
    Með tillögunni er lagt til að atvinnuvegaráðherra verði falið að skipa sérfræðihóp sem útfæri frekari breytingar á lögum með það að markmiði að takmarka jarðakaup erlendra aðila hér á landi. Meiri hlutinn telur tillöguna mikilvæga og tímabæra og mælir með samþykkt hennar með þeirri breytingu sem lögð er til í áliti þessu.
    Meiri hlutinn áréttar að tillagan snýst ekki um andstöðu við erlendar fjárfestingar eða alþjóðaviðskipti. Þvert á móti undirstrikar meiri hlutinn að alþjóðaviðskipti og erlend fjárfesting eru mikilvægur hluti af íslensku atvinnulífi og velsæld þjóðarinnar. Mikilvægt er að í íslenskum lögum sé gerður skýr greinarmunur á almennri atvinnufjárfestingu annars vegar og yfirráðum yfir landi og auðlindatengdum réttindum hins vegar. Jarðir eru ekki hefðbundnar fasteignir heldur geta þeim fylgt vatnsréttindi, jarðefni, orkumöguleikar, ræktarland, samgöngu- og innviðatengdir hagsmunir og aðrir hagsmunir sem varða langtímastefnu og öryggi ríkisins. Þess vegna er mikilvægt að Alþingi marki skýra stefnu um hvaða skilyrði eigi að gilda um eignarhald og nýtingu erlendra aðila á jörðum hér á landi.
    Þróunin í Evrópu og meðal nágrannaríkja Íslands sýnir að ríki eru í auknum mæli að styrkja reglur sínar þegar kemur að erlendri fjárfestingu í landi og auðlindum, einkum þegar fjárfestingar varða mikilvæga innviði, orku, samgöngur, hráefni, tækni, fjármálainnviði eða aðra hagsmuni sem tengjast þjóðaröryggi og allsherjarreglu. Ísland, sem ríkt er af náttúruauðlindum, þarf að hafa skýrar, gagnsæjar og framkvæmanlegar reglur um þessi mál rétt eins og nágrannaríki. Því tengt liggur jafnframt fyrir Alþingi frumvarp til nýrra heildarlaga um rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu ( 300. mál á 157. löggjafarþingi).
    Meiri hlutinn telur rétt að atvinnuvegaráðherra, í samráði við viðeigandi ráðuneyti, skipi sérfræðihóp sem verði falið að greina eignarhald erlendra aðila á jörðum hérlendis og framtíðaráskoranir hvað það varðar. Í tengslum við það verði skoðað hvort þörf sé á að leggja til breytingar á lögum með það að markmiði að takmarka frekar eignarhald og nýtingu erlendra aðila á jörðum hér á landi. Starfshópnum verði falið að skila skýrslu til ráðherra. Leggur meiri hlutinn jafnframt til að ráðherra skuli leggja skýrsluna fram á Alþingi þegar hún liggur fyrir. Þá mun skýrslan nýtast sem innlegg í vinnu við fyrirhugað frumvarp til breytinga á jarðalögum, nr. 81/2004, sem atvinnuvegaráðherra áætlar að leggja fram á 158. löggjafarþingi.

    Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að tillagan verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


    Tillögugreinin orðist svo:
    Alþingi ályktar að fela atvinnuvegaráðherra í samráði við forsætisráðherra, dómsmálaráðherra, innviðaráðherra og umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að skipa sérfræðihóp sem falið verði að greina eignarhald erlendra aðila á jörðum hérlendis og greina framtíðaráskoranir því tengdar og hvort þörf sé á að leggja til breytingar á lögum sem hafa muni það að markmiði að takmarka frekar jarðakaup erlendra aðila hér á landi eða aðrar ráðstafanir. Starfshópurinn skili skýrslu sem verði nýtt sem innlegg í fyrirhugað frumvarp um breytingu á jarðalögum sem verður lagt fram af atvinnuvegaráðherra á 158. löggjafarþingi, líkt og kveðið er á um í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Ráðherra skuli leggja skýrsluna fram á Alþingi.

Alþingi, 18. júní 2026.

Víðir Reynisson,
form.
Sigurður Ingi Jóhannsson,
frsm.
Grímur Grímsson.
Guðmundur Ari Sigurjónsson. Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir. Jón Pétur Zimsen.
Sandra Sigurðardóttir.