Ferill 714. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1414 — 714. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um starfshlutfall lækna hjá Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Frá Sigurði Helga Pálmasyni.
1. Hversu margir læknar starfa hjá Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri, greint eftir sérgreinum? Hversu margir af þeim eru í fullu starfi og hversu margir í hlutastarfi, greint eftir sérgreinum og prósentuhlutfalli frá 10%, 20%, 30% o.s.frv.? Svar óskast annars vegar miðað við stöðuna nú og hins vegar eins og hún var fyrir ári til samanburðar.
2. Hversu margir læknar sem starfa hjá Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri:
a. reka einnig eigin stofu utan sjúkrahúss, skipt eftir sérgreinum?
b. starfa einnig hjá sjálfstæðum heilbrigðisstofnunum og fyrirtækjum utan sjúkrahúss, skipt eftir starfsgreinum?
Svar óskast annars vegar miðað við stöðuna nú og hins vegar eins og hún var fyrir ári.
Skriflegt svar óskast.