Ferill 715. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1415 —  715. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um geðheilbrigði barna og ungmenna.

Frá Þorgrími Sigmundssyni.


     1.      Hyggst ráðherra leggja til aukið fjármagn með það að markmiði að stytta biðtíma barna eftir fullnaðargreiningu að lokinni frumgreiningu Geðheilsumiðstöðvar barna og Ráðgjafar- og greiningarstöðvar í ljósi þess að biðtími er 24–36 mánuðir?
     2.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir auknu aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu á Austurlandi fyrir börn og ungmenni? Ef svo er, með hvaða hætti?

                        
Skriflegt svar óskast.