Ferill 718. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Prentað upp.
Þingskjal 1418 — 718. mál.
Ráðherra.
Fyrirspurn
til menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra um afgreiðslu umsókna hjá Rannís.
Frá Katrínu Sif Árnadóttur.
1. Hver er meðalafgreiðslutími umsókna til Rannís um staðfestingu rannsóknar- og þróunarverkefna samkvæmt lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki síðustu þrjú ár?
2. Hversu margar umsóknir bíða nú afgreiðslu hjá Rannís og hversu margar þeirra hafa beðið lengur en:
a. þrjá mánuði,
b. sex mánuði,
c. tólf mánuði?
3. Hverjar eru helstu ástæður þess að afgreiðsla umsókna fyrir árið 2025 hefur tafist?
4. Hefur verklag eða kröfur Rannís vegna umsókna breyst á síðustu árum, m.a. varðandi kröfur um frekari gögn eða upplýsingar eftir að umsókn hefur verið lögð fram?
5. Hvernig hyggst ráðherra tryggja fyrirsjáanleika og eðlilegan afgreiðslutíma fyrir nýsköpunarfyrirtæki sem reiða sig á endurgreiðslur vegna rannsóknar- og þróunarkostnaðar í rekstri sínum?
6. Hvenær telur ráðherra raunhæft að umsækjendur geti vænst svara við umsóknum sem bárust á árinu 2025?
Skriflegt svar óskast.