Ferill 568. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1421  —  568. mál.

3. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um Stofnun atvinnuveganna.

Frá meiri hluta atvinnuveganefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið að nýju. Við afgreiðslu málsins til 2. umræðu samþykkti nefndin að óska eftir upplýsingum frá fjármála- og efnahagsráðuneyti varðandi réttindi starfsfólks, sem kveðið er á um í ákvæði til bráðabirgða í frumvarpinu.
    Vilji meiri hlutans stendur til þess að jafna kjör þess starfsfólks sem ræður sig til Stofnunar atvinnuveganna. Lagt er til að kveðið verði á um að starfsaldur starfsfólks heilbrigðisnefnda sveitarfélaga, sem ræðst í störf hjá Stofnun atvinnuveganna, muni teljast til starfsaldurs líkt og viðkomandi hafi starfað hjá stofnuninni þegar kemur að rétti til námsleyfis og lengd uppsagnarfrests. Ekki er verið að færa áunnin réttindi starfsfólks á milli stjórnsýslustiga heldur er um að ræða sérstaka heimild til starfsaldursreiknings fyrir þennan afmarkaða hóp. Það athugast að breytingartillaga meiri hlutans heimilar ekki tvítöku réttinda, hafi starfsmaður þegar nýtt rétt til töku námsleyfis hjá þeirri heilbrigðisnefnd sveitarfélags sem hann starfar við nú, dragist þau réttindi frá þeim réttindum sem starfsmaður öðlast við upphaf starfs hjá Stofnun atvinnuveganna.

    Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


    Við 4. mgr. ákvæðis til bráðabirgða bætist tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Í tilviki starfsfólks heilbrigðisnefnda sveitarfélaga, sem ráðið verður til nýrrar stofnunar, skal starfsaldur þess í fráfarandi starfi fyrir heilbrigðisnefnd teljast til starfsaldurs hjá nýrri stofnun hvað varðar rétt til námsleyfis og lengd uppsagnarfrests samkvæmt kjarasamningum þar sem miðað er við samfellt starf hjá sömu stofnun. Að öðru leyti gilda ákvæði gildandi kjarasamninga um inntak réttindanna.

    Ester Halldórsdóttir og Jón Gunnarsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 18. júní 2026.

Lilja Rafney Magnúsdóttir,
form.
Ingvar Þóroddsson, frsm. Kristján Þórður Snæbjarnarson.
Eydís Ásbjörnsdóttir. Katrín Sif Árnadóttir.