Ferill 32. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1423  —  32. mál.

2. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um stimpilgjald, nr. 138/2013 (kaup einstaklings á íbúðarhúsnæði eða lögbýli).

Frá minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá Bændasamtökum Íslands og Viðskiptaráði Íslands.
    Nefndinni bárust þrjár umsagnir frá Bændasamtökum Íslands, Hagsmunasamtökum heimilanna og Viðskiptaráði.
    Bændasamtökin fögnuðu framlagningu frumvarpsins og telja að afnám stimpilgjalds geti stuðlað að eflingu nýliðunar innan bændastéttarinnar. Leggja samtökin þó til að frumvarpið verði skýrt nánar þannig að markmið þess sé ekki einungis að styðja þá sem hyggjast hefja búskap heldur almennt að efla landbúnað. Að sama skapi telja samtökin rétt að frumvarpið taki einnig til lögaðila í búrekstri en algengt er að bændur hafi búrekstur í félagi.
    Hagsmunasamtök heimilanna styðja einnig framlagningu frumvarpsins en telja þó rétt að það einskorðist við kaup einstaklings á íbúðarhúsnæði til eigin nota eða lögbýli til eigin ábúðar.
    Þá fagnar Viðskiptaráð framlagningu málsins og telur það til mikilla bóta. Bendir Viðskiptaráð jafnframt á að í kosningaprófi ráðsins fyrir síðustu alþingiskosningar hafi enginn stjórnmálaflokkur verið andvígur afnámi stimpilgjaldsins. Var það enn fremur eina málefnið sem allir flokkar voru annaðhvort fylgjandi eða hlutlausir gagnvart af þeim sem lögð voru fyrir þá.
    Með frumvarpi þessu er lögð til breyting á lögum um stimpilgjald, nr. 138/2013, sem felur í sér að stimpilgjald vegna kaupa einstaklinga á íbúðarhúsnæði verði afnumið. Samkvæmt gildandi lögum ber einstaklingum að greiða 0,8% stimpilgjald vegna kaupa á íbúðarhúsnæði en veittur er helmingsafsláttur þegar um fyrstu kaup er að ræða. Verði frumvarpið að lögum fellur gjaldið alfarið niður, óháð því hvort um fyrstu kaup sé að ræða eður ei.
    Frumvarpið hefur það að markmiði að auðvelda fólki að eignast íbúðarhúsnæði eða hefja landbúnað. Ljóst er að stimpilgjald hækkar viðskiptakostnað á fasteignamarkaði, dregur úr framboði og rýrir hlut bæði kaupenda og seljenda. Afnám stimpilgjalds mun að líkindum auðvelda verðmyndun á húsnæðismarkaði með tilheyrandi aukningu á framboði sem hefur verið takmarkað síðustu ár. Þá er afnám stimpilgjalds vegna fasteignakaupa til þess fallið að draga úr kostnaði heimila við að skipta um húsnæði, hvort sem um er að ræða eldra fólk sem vill minnka við sig eða barnafjölskyldur sem þurfa stærra húsnæði.
    Að framangreindu virtu leggur minni hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Alþingi, 18. júní 2026.


Hildur Sverrisdóttir,
frsm.
Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir. Ingveldur Anna Sigurðardóttir.
Stefán Vagn Stefánsson.