Ferill 582. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Prentað upp.

Þingskjal 1425  —  582. mál.
Leiðréttur texti.

3. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (einföldun eftirlits).

Frá meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið að nýju á milli 2. og 3. umræðu og telur meiri hlutinn rétt að leggja til nokkrar viðbótarbreytingartillögur.
    Með 10. gr. frumvarpsins eru lagðar til þær breytingar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, um að ekki þurfi að auglýsa starfsleyfi, eða breytingar á þeim, hvað varðar starfsemi sem tilgreind er í a- og b-lið viðauka II, ef starfsemin fellur ekki undir lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Þá er lagt til í 38. gr. frumvarpsins að viðauki IV falli brott þar sem sú starfsemi sem þar er tilgreind verði færð í viðauka II. Er með breytingunni létt á auglýsingaskyldu starfsleyfa en líkt og segir í greinargerð með frumvarpinu hafa almennt ekki verið gerðar athugasemdir við auglýsingu starfsleyfa vegna umfangsminni starfsemi. Meiri hlutinn leggur til að við lög um hollustuhætti og mengunarvarnir bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða svo þessi einföldun regluverks megi koma til framkvæmda frá birtingu laganna þrátt fyrir að lögin taki gildi 1. janúar 2027. Þó er talið rétt að heimilt sé að auglýsa tillögu að starfsleyfi eða tillögu að breytingu á starfsleyfi og veita frest til athugasemda ef ætla má að starfsemin geti haft veruleg grenndaráhrif.
    Samkvæmt ákvæði til bráðabirgða í frumvarpinu hefur starfsfólk sem er í starfi við heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga við gildistöku laganna og sinnir þeim verkefnum sem færast til Umhverfis- og orkustofnunar forgangsrétt til starfa við Umhverfis- og orkustofnun sem verða til vegna lagabreytinganna. Líkt og rakið er í áliti meiri hluta nefndarinnar á þskj. 1355 komu fram athugasemdir um réttindi starfsfólks við lagabreytinguna, þ.e. að ekki sé tryggt með lögunum að starfsfólk haldi áunnum kjörum og réttindum við yfirfærslu frá sveitarfélögum til Umhverfis- og orkustofnunar, þar á meðal vegna námsleyfis og lengds uppsagnarfrests. Samhliða frumvarpinu lagði atvinnuvegaráðherra fram frumvarp þar sem lagt er til að eftirlit með matvælum verði framvegis í höndum nýrrar stofnunar, Stofnunar atvinnuveganna, sbr. þskj. 964, 568. mál. Þar með mun hluti starfsfólks heilbrigðiseftirlita hefja störf hjá þeirri stofnun og hluti hjá Umhverfis- og orkustofnun. Þá mun starfsfólk Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs, annað en forstjóri Matvælastofnunar, fiskistofustjóri og forstöðumaður Verðlagsstofu skiptaverðs, sem er í starfi við gildistöku laganna, sinnir þeim verkefnum sem færast til nýrrar stofnunar og uppfyllir hæfisskilyrði og önnur lögbundin skilyrði til starfsins eiga forgangsrétt til starfa hjá Stofnun atvinnuveganna.
    Í 4. mgr. ákvæðis til bráðabirgða í frumvarpi til laga um Stofnun atvinnuveganna kemur fram að starfsfólk Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs sem ráðið verður til starfa hjá nýrri stofnun haldi réttindum sem það hefur áunnið sér til námsleyfis og um lengdan uppsagnarfrest samkvæmt kjarasamningum þar sem miðað er við samfellt starf hjá sömu stofnun. Það ákvæði á samkvæmt orðanna hljóðan ekki við starfsfólk heilbrigðisnefnda sem kemur til starfa hjá Stofnun atvinnuveganna.
    Meiri hlutinn telur rétt að tryggt verði að starfsfólk heilbrigðiseftirlita tapi ekki áunnum starfstengdum réttindum við þær lagabreytingar sem frumvarpið felur í sér. Lagt er til að kveðið verði á um að starfsaldur starfsfólks heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga, sem ræðst í störf hjá Umhverfis- og orkustofnun, muni teljast til starfsaldurs líkt og viðkomandi hafi starfað hjá stofnuninni þegar kemur að rétti til námsleyfis og lengd uppsagnarfrests. Meiri hlutinn áréttar að ekki er verið að færa áunnin réttindi starfsfólks á milli stjórnsýslustiga, heldur er um að ræða sérstaka heimild til starfsaldursreiknings fyrir þennan afmarkaða hóp. Það athugast að breytingartillaga meiri hlutans heimilar ekki tvítöku réttinda, hafi starfsmaður þegar nýtt rétt sinn til töku námsleyfis hjá því heilbrigðiseftirliti sveitarfélags sem hann starfar hjá nú dragast þau réttindi frá þeim réttindum sem starfsmaður öðlast við upphaf starfs hjá Umhverfis- og orkustofnun. Atvinnuveganefnd hefur lagt til sambærilega breytingu við frumvarp til laga um Stofnun atvinnuveganna sem verður til að jafna rétt þeirra sem áður störfuðu hjá heilbrigðisnefndum og munu hefja störf við heilbrigðiseftirlit hjá Umhverfis- og orkustofnun eða Stofnun atvinnuveganna.
    Þá eru lagðar til nokkrar lagatæknilegar breytingar sem ekki er ætlað að hafa efnisleg áhrif.

    Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


     1.      Við 9. gr.
                  a.      Í stað tilvísunarinnar „3. og 5. mgr. 7. gr.“ í a-lið komi: 3., 4. og 6. mgr. 7. gr.
                  b.      Í stað tilvísunarinnar „4., 5. og 6. mgr. 7. gr.“ í b-lið komi: og 5.–7. mgr. 7. gr.
     2.      Við 10. gr.
                  a.      Í stað tilvísunarinnar „4. mgr.“ í b-lið komi: 5. mgr.
                  b.      Við c-lið bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Heimilt er þó að auglýsa tillögu að starfsleyfi eða drög að breytingu á starfsleyfi og veita frest til athugasemda ef ætla má að starfsemin geti haft veruleg grenndaráhrif.
     3.      Í stað a-liðar 12. gr. komi tveir nýir stafliðir, svohljóðandi:
                  a.      Orðin „og IV“ í 1. mgr. falla brott.
                  b.      Í stað viðaukatalnanna „I–IV“ í 2. mgr. kemur: I og II.
     4.      Í stað a-liðar 13. gr. komi tveir nýir stafliðir, svohljóðandi:
                  a.      Í stað viðaukatölunnar „II“ í 1. mgr. 9. gr. og 1. mgr. 16. gr. laganna kemur: a-lið viðauka II.
                  b.      Í stað orðanna „viðaukum I og II“ í 2. málsl. 4. mgr. 54. gr. laganna kemur: viðauka I og a-lið viðauka II.
     5.      Á undan tilvísuninni „55. gr.“ í 14. gr. komi: og tvívegis í 2. mgr.
     6.      Á eftir 38. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
                  Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
                     Þrátt fyrir ákvæði 3. mgr. 6. gr. og 3. mgr. 7. gr. er heilbrigðisnefndum heimilt, frá birtingu laga þessara og fram til 1. janúar 2027, að gefa út eða breyta starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem fellur undir viðauka IV við lögin án þess að auglýsa tillögu að starfsleyfi eða drög að breytingu á starfsleyfi opinberlega og veita frest til athugasemda. Hlutaðeigandi heilbrigðisnefnd er þó heimilt að auglýsa tillögu að starfsleyfi eða drög að breytingu á starfsleyfi og veita frest til athugasemda skv. 3. mgr. 6. gr. og 3. mgr. 7. gr., eftir því sem við á, ef ætla má að starfsemin geti haft veruleg grenndaráhrif.
     7.      Á eftir 82. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
                  Í stað orðanna „um getur í 2. tölul. 6. gr.“ í 6. tölul. 7. gr. laganna kemur: heyrir undir starfsleyfi sem Umhverfis- og orkustofnun gefur út og/eða hefur eftirlit með á grundvelli laga um hollustuhætti og mengunarvarnir.
     8.      Við ákvæði til bráðabirgða bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
                  Í tilviki starfsfólks heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga, sem ráðið verður hjá nýrri stofnun, skal starfsaldur þess í fráfarandi starfi fyrir heilbrigðiseftirlit teljast til starfsaldurs hjá nýrri stofnun hvað varðar rétt til námsleyfis og lengd uppsagnarfrests samkvæmt kjarasamningum þar sem miðað er við samfellt starf hjá sömu stofnun. Að öðru leyti gilda ákvæði gildandi kjarasamninga um inntak réttindanna.

    Jens Garðar Helgason var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 18. júní 2026.

María Rut Kristinsdóttir,
form., frsm.
Ása Berglind Hjálmarsdóttir. Dagur B. Eggertsson.
Grétar Mar Jónsson. Sigurður Helgi Pálmason.