Ferill 399. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1439  —  399. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur um fjölskyldusameiningar.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hversu margir fluttust til landsins á grundvelli fjölskyldusameiningar á hverju ári á árunum 2021–2025? Svar óskast einnig sundurliðað eftir þeim gögnum sem til eru, t.d. þjóðerni, kyni og aldri.

    Ráðherra hefur lagt áherslu á að regluverk í útlendingamálum sé skýrt, skilvirkt og í samræmi við regluverk annars staðar á Norðurlöndum. Á haustþingi er fyrirhugað að leggja fram frumvarp um heildarendurskoðun dvalarleyfiskafla útlendingalaga. Frumvarpið byggist m.a. á niðurstöðum starfshóps sem ráðherra skipaði og skilaði skýrslunni Ísland í örum vexti.
    Í skýrslunni er rakið að fjöldi dvalarleyfishafa hafi aukist verulega á undanförnum árum, eða fimmfaldast frá árinu 2017, og að Ísland hafi eftir árið 2020 veitt hlutfallslega fleiri dvalarleyfi en aðrar Norðurlandaþjóðir. Þar kemur jafnframt fram að vísbendingar séu um að gerðar séu vægari kröfur í tengslum við veitingu dvalarleyfa á Íslandi. Þar er sérstaklega fjallað um fjölskyldusameiningar, m.a. framfærsluskilyrði, húsnæðisskilyrði, stöðu aðstandenda námsmanna og þörf á aukinni sannreyningu upplýsinga og tengsla.
    Þegar hafa verið tekin skref í þessa átt. Í frumvarpi til laga um breytingu á lögum um útlendinga og lögum um atvinnuréttindi útlendinga (útgáfa dvalar- og atvinnuleyfa), sem nýverið var samþykkt sem lög á Alþingi, voru gerðar breytingar sem fela í sér hert skilyrði fyrir fjölskyldusameiningu aðstandenda námsmanna, m.a. með það að markmiði að færa íslenskt regluverk nær því sem tíðkast annars staðar á Norðurlöndum.
    Samhliða vinnu við dvalarleyfiskaflann er einnig starfandi hópur um ríkisborgararétt þar sem til skoðunar eru skilyrði og framkvæmd við veitingu íslensks ríkisborgararéttar.
    Ráðuneytið óskaði eftir gögnum frá Útlendingastofnun við vinnslu svarsins.
    Eftirfarandi töflur sýna fjölda útlendinga sem:
     1.      fengu útgefið fyrsta dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar (70., 71. og 72. gr. útlendingalaga) og eru aðstandendur ríkisborgara þriðju ríkja,
     2.      fengu útgefið fyrsta dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar (70., 71. og 72. gr. útlendingalaga) og eru aðstandendur Íslendinga,
     3.      fengu útgefið fyrsta dvalarleyfi á grundvelli veitingar alþjóðlegrar verndar sem aðstandandi flóttamanns og mannúðarleyfishafa (73. gr. í tengslum við 2. og 3. mgr. 45. gr. útlendingalaga),
     4.      fengu skráningu á dvalarrétti sem aðstandandi EES/EFTA-borgara (85. gr. útlendingalaga).

Grundvöllur fjölskyldusameiningar 2021 2022 2023 2024 2025 Samtals
1 Aðstandendur ríkisborgara þriðju ríkja (70., 71. og 72. gr. útlendingalaga) 227 421 552 494 404 2065
2 Aðstandendur Íslendinga (70., 71. og 72. gr. útlendingalaga) 343 324 383 378 410 1786
3 Aðstandendur flóttamanna og mannúðarleyfishafa (73. gr. í tengslum við 2. og 3. mgr. 45. gr. útlendingalaga)
150
166
356 420 227 1317
4 Aðstandendur EES-borgara (85. gr. útlendingalaga) 115 115 162 166 174 731
Samtals 835 1026 1454 1458 1215 5894

Grundvöllur fjölskyldusameiningar – tengsl 2021 2022 2023 2024 2025 Samtals
Makar 511 591 754 774 678 3244
Börn 295 381 611 593 419 2278
Foreldrar 28 43 72 83 106 326
Ættingjar 1 11 16 8 12 48
Samtals 835 1026 1453 1458 1215 5894

10 stærstu hópar 2021 2022 2023 2024 2025 Samtals
VN – Víetnam 76 103 328 145 108 755
PH – Filippseyjar 51 88 101 148 161 536
US – Bandaríkin 131 77 79 86 95 452
PS – Palestína 17 29 81 160 59 346
IN – Indland 60 106 71 60 45 335
SY – Sýrland 22 74 88 73 52 309
VE – Venesúela 21 26 94 91 77 307
TH – Taíland 34 33 30 48 25 168
AF – Afganistan 45 19 34 22 25 144
AL – Albanía 22 28 33 41 17 140
Samtals 479 583 939 874 664 3492

Kyn og aldur 2021 2022 2023 2024 2025 Samtals
Karl 204 233 358 306 291 1360
Kona 366 439 540 597 522 2425
Drengur 129 174 308 274 199 1074
Stúlka 135 180 247 280 202 1039
Óþekkt 1 1 2
Kynsegin/annað fullorðinn 1 1
Samtals 835 1026 1453 1458 1215 5894