Ferill 704. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1440 — 704. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Kristjáni Þórði Snæbjarnarsyni um rannsóknir á langvinnum afleiðingum COVID-19 og ME-sjúkdómnum.
1. Hafa verið gerðar rannsóknir á langvinnum afleiðingum COVID-19 og ME-sjúkdómnum (e. myalgic encephalomyelitis) á Íslandi?
Á undanförnum árum hafa verið gerðar rannsóknir á langvinnum afleiðingum COVID-19, m.a. á vegum Íslenskrar erfðagreiningar. Akureyrarklíníkin var stofnuð árið 2024 og er eitt af hlutverkum hennar að stuðla að rannsóknum á langvinnum afleiðingum COVID-19 og ME. Nýlega var stofnaður rannsóknarhópur undir vinnuheitinu Rannsóknarsetur um langvinnar afleiðingar sýkinga og annarra umhverfisþátta. Hópurinn er samstarfsverkefni ónæmisfræðideildar Landspítala, Háskóla Íslands og Akureyrarklíníkur.
2. Hversu margir hafa verið greindir með langvinnar afleiðingar COVID-19 og/eða ME-sjúkdóminn á Íslandi síðan í febrúar 2020?
Langvinnar afleiðingar COVID-19 og myalgic encephalomyelitis (ME) geta haft sameiginlegan ICD-10-kóða, G93.3, þreytuheilkenni eftir veirusýkingu. Á tímabilinu 2020–2025 fengu alls 763 einstaklingar fyrrnefnda sjúkdómsgreiningu skráða á heilsugæslu, á sjúkrahúsi eða heilbrigðisstofnun í fyrsta sinn. Mikill meirihluti greindra voru konur, eða um 73%. Eftirstöðvar COVID-19-sýkingar voru fyrst skráðar í sjúkraskrá opinberra heilbrigðisstofnana hér á landi árið 2020, undir nýjum ICD-10 sjúkdómsgreiningarkóða, U09.9. Á tímabilinu 2020– 2025 fengu alls 3.228 einstaklingar þessa sjúkdómsgreiningu skráða á heilsugæslu, á sjúkrahúsi eða á heilbrigðisstofnun, 1.116 karlar, 2.107 konur og 5 kynsegin einstaklingar.
Í töflu 1 sést fjöldi einstaklinga sem fengu sjúkdómsgreininguna skráða í fyrsta sinn á tímabilinu 2020–2025, flokkaður eftir ári og kyni.
Tafla 1. Fjöldi nýrra greininga á þreytuheilkenni eftir veirusýkingu (ICD-10-sjúkdómsgreiningarkóða G93.3) á ári, 2020–2025.
| Ár | Karlar | Konur | Kynsegin* | Alls |
| 2020 | 29 | 55 | 84 | |
| 2021 | 29 | 66 | 95 | |
| 2022 | 46 | 112 | 1 | 159 |
| 2023 | 25 | 78 | 1 | 104 |
| 2024 | 26 | 103 | 1 | 130 |
| 2025 | 49 | 140 | 2 | 191 |
Í töflu 2 er yfirlit yfir fjölda einstaklinga sem fengu sjúkdómsgreininguna skráða í fyrsta sinn, eftir árunum 2020–2025, flokkað eftir ári og kyni.
Tafla 2. Fjöldi nýrra greininga á eftirstöðvum COVID-19 (ICD-10 sjúkdómsgreiningarkóða U09.9) á ári, 2020–2025.
| Ár | Karlar | Konur | Kynsegin* | Alls |
| 2020 | 42 | 75 | 117 | |
| 2021 | 168 | 247 | 415 | |
| 2022 | 734 | 1420 | 3 | 2157 |
| 2023 | 100 | 192 | 1 | 293 |
| 2024 | 46 | 97 | 1 | 144 |
| 2025 | 26 | 76 | 0 | 102 |
3. Hversu margir voru greindir með ME-sjúkdóminn á Íslandi fyrir febrúar 2020?
Tölur yfir greiningar ME-sjúkdómsins ná aftur til ársins 2004. Á tímabilinu 2004–2019 var alls 241 einstaklingur skráður með þreytuheilkenni eftir veirusýkingu, ME (G93.3) í fyrsta sinn.