Ferill 679. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1441 — 679. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Sigmundi Erni Rúnarssyni um stæðiskort fyrir hreyfihamlaða.
1. Hvaða almennu læknisfræðilegu viðmið leggur landlæknisembættið til grundvallar við mat á umsóknum um stæðiskort fyrir hreyfihamlaða?
Embætti landlæknis gefur ekki út formleg viðmið sem eiga að liggja til grundvallar við mat á umsóknum um stæðiskort fyrir hreyfihamlaða. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu hefur gefið út verklagsreglur um útgáfu stæðiskorta í samráði við embættið á grundvelli reglugerðar nr. 1130/2016, um útgáfu og notkun stæðiskorts fyrir hreyfihamlaða, sem tóku gildi í janúar 2020. Í læknisvottorði fyrir umsóknir um stæðiskort eru læknisfræðileg viðmið og skilyrði sem voru uppfærð samhliða útgáfu verklagsreglna hjá sýslumanni.
2. Telur ráðherra þau nægjanlega skýr í ljósi mikillar fjölgunar útgefinna stæðiskorta?
Þar sem embættið hefur ekki gefið út formleg viðmið getur ráðherra ekki tekið afstöðu til þess hvort þau séu nægjanlega skýr. Almenn læknisfræðileg viðmið koma hins vegar fram í læknisvottorði vegna stæðiskorts. Læknisvottorðið er þó aðeins eitt af þeim atriðum sem litið er til við mat á því hvort gefa eigi út stæðiskort. Umsækjandinn þarf sjálfur í umsókn sinni að gera grein fyrir þeim ástæðum sem eru fyrir sérstakri þörf á ívilnun til að mega leggja ökutæki í bifreiðastæði fyrir fatlaða. Því eru hin læknisfræðilegu viðmið um útgáfu stæðiskorta tiltölulega víð.