Ferill 721. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1442  —  721. mál.




Fyrirspurn


til félags- og húsnæðismálaráðherra um eftirlit með lífeyrisgreiðslum.

Frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur.


     1.      Hefur Tryggingastofnun ríkisins heimild til að fylgjast með því hvort lífeyrisgreiðslur til fólks af erlendum uppruna séu með reglubundnum hætti fluttar úr landi, t.d. með aðgangi að banka- eða greiðslukortaupplýsingum? Hafa stjórnvöld annars staðar á Norðurlöndunum, t.d. í Noregi og Svíþjóð, heimild til slíks eftirlits og ef svo er, hyggja íslensk stjórnvöld á laga- eða reglugerðarbreytingar til að fá sambærilega heimild?
     2.      Hver er árlegur heildarfjöldi mála sem Tryggingastofnun ríkisins opnaði á árunum 2010–2025 vegna gruns um bótasvik, ofgreiðslu bóta eða annars konar frávika, sundurliðað eftir upprunalandi og kyni?


Skriflegt svar óskast.