Ferill 726. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1447 — 726. mál.
Fyrirspurn
til félags- og húsnæðismálaráðherra um örorkulífeyris-, sjúkra- og endurhæfingargreiðslur eftir upprunalandi.
Frá Diljá Mist Einarsdóttur.
1. Hversu margir einstaklingar á vinnualdri, 18–66 ára, voru búsettir á Íslandi árin 2021– 2025, sundurliðað eftir ári, upprunalandi (eða fæðingarlandi eftir þeirri flokkun sem stjórnvöld nota), kyni og aldri?
2. Hversu margir einstaklingar á fyrrgreindum vinnualdri fengu örorkulífeyri frá Tryggingastofnun árin 2021–2025, sundurliðað eins og að framan?
3. Hversu margir einstaklingar á fyrrgreindum vinnualdri fengu sjúkra- eða endurhæfingargreiðslur (áður endurhæfingarlífeyri) frá Tryggingastofnun árin 2021–2025, sundurliðað eins og að framan?
Skriflegt svar óskast.