Ferill 489. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1448 — 489. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Bergþóri Ólasyni um vörugjöld af fólksbifreiðum.
1. Hvað skiluðu vörugjöld af fólksbifreiðum miklum tekjum í ríkissjóð í janúar 2026?
Ráðuneytið áætlar ekki sundurliðaðar tekjur eftir mánuðum. Fjársýsla ríkisins sér um að gera uppgjör fyrir ríkissjóð og gefur reglulega út yfirlit um afkomu ríkisins. Skýrslur um greiðsluhreyfingar A1-hluta ríkissjóðs, sbr. 60. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015, skulu innihalda tekjuáætlun fjárlaga á greiðslugrunni. Skýrsla um 1. ársfjórðung ársins 2026 er væntanleg í júní 2026.
2. Hvað skiluðu vörugjöld af fólksbifreiðum miklum tekjum í ríkissjóð á árunum 2017– 2025? Svar óskast sundurliðað eftir mánuðum og árum.
Eins og fram kemur í svari við 1. tölul. fyrirspurnarinnar gefur ráðuneytið ekki út sundurliðaðar tekjur eftir mánuðum. Í eftirfarandi töflu má sjá þróun vörugjalda af ökutækjum frá árinu 2017 samkvæmt ríkisreikningi. Samkvæmt yfirliti Fjársýslunnar fyrir mánuðina janúar til september árið 2025 voru vörugjöld 8.002 m.kr. á fyrstu níu mánuðum ársins. Í ríkisreikningi sem væntanlega verður gefinn út á næstunni mun svo vera hægt að sjá heildarfjárhæð vörugjalda af ökutækjum á árinu 2025.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
3. Hefur þessum vörugjöldum verið breytt á framangreindu tímabili? Ef svo er, hvenær var það gert og í hverju fólust þær breytingar?
Á tímabilinu 2017–2026 voru gerðar tilteknar breytingar á vörugjaldi af fólksbifreiðum. Þær vörðuðu einkum aðlögun gjaldstofns að nýjum og nákvæmari mæliaðferðum á koltvísýringslosun og breytingar á gjaldhlutföllum. Breytingarnar voru eftirfarandi:
. Lög nr. 96/2017, um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2018.
Breytingin sem gerð var með lögunum laut að álagningu vörugjalds hjá ökutækjaleigum og útvíkkun á ívilnunum fyrir vistvæna orkugjafa. Ákveðið var að vörugjald á bifreiðar sem ætlaðar voru til útleigu hjá ökutækjaleigum færi samkvæmt undanþáguflokki (0–30%) árið 2018 en ekki samkvæmt aðalflokki (0–65%) eins og orðið hefði að óbreyttu. Þá var ákveðið að hámarksívilnun vörugjalds á slíkar bifreiðar yrði 250.000 kr. árið 2018 en ekki 500.000 kr. eins og var í gildandi lögum. Loks var metanóli jafnframt bætt við sem umhverfisvænum orkugjafa sem féll í sama ívilnunarflokk og metanbifreiðar.
. Lög nr. 117/2018, um breytingu á lögum um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., lögum um bifreiðagjald og lögum um virðisaukaskatt (losunarviðmið, sendi-, vöru- og golfbifreiðar).
Með lögunum átti sér stað umfangsmikil kerfisbreyting að því er varðar álagningu vörugjalds á fólksbifreiðar. Breytingarnar fólu í sér að vörugjald var tengt með beinni hætti við skráða losun koltvísýrings, mælda í skráðri losun koltvísýrings ( CO2 g/km). Í lögunum voru því sett mismunandi losunarviðmið og gjaldhlutföll eftir því hvort losun var skráð samkvæmt evrópsku aksturslotunni (NEDC), samræmdu prófunaraðferðinni (WLTP) eða báðum aðferðum á aðlögunartímanum. Markmið breytinganna var að tryggja samræmda og fyrirsjáanlega álagningu vörugjalds á fólksbifreiðar þrátt fyrir breyttan grundvöll mælinga.
. Lög nr. 33/2020, um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (staðgreiðsla, álagning o.fl.).
Breytingin sem gerð var með lögunum fól í sér að sett var sérstakt tímabundið ákvæði til bráðabirgða um húsbíla á árinu 2020. Samkvæmt ákvæðinu var skráð losun húsbíla lækkuð um 40%, þó að hámarki niður í 150 g/km áður en vörugjald var lagt á, ef losun hafði eingöngu verið skráð samkvæmt WLTP, að uppfylltum skilyrðum ákvæðisins. Markmið breytingarinnar var að bregðast við ófyrirséðum áhrifum nýrrar mæliaðferðar á skráða losun húsbíla.
. Lög nr. 140/2020, um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (tryggingagjald o.fl.).
Með lögunum voru gerðar breytingar sem höfðu áhrif á álagningu vörugjalds af tilteknum fólksbifreiðum og skyldum ökutækjum. Annars vegar var framlengd til ársins 2021 tímabundin sérregla um húsbíla sem fól í sér lækkun skráðrar koltvísýringslosunar áður en til álagningar vörugjalds kom. Hins vegar var sett ný tímabundin ívilnun vegna ökutækja sem ætluð voru til útleigu hjá ökutækjaleigum gegn því að hlutfall rafmagns- vetnis- eða tengiltvinnbifreiða væri 15% árið 2021 og 25% árið 2022 af heildarinnkaupum ökutækja hvort ár.
. Lög nr. 133/2021, um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (gjalddagar, refsinæmi o.fl.).
Breytingin sem gerð var með lögunum fól í sér að þegar losun ökutækis hafði verið skráð bæði samkvæmt NEDC og WLTP skyldi miða við skráða losun samkvæmt WLTP við útreikning vörugjalds. Jafnframt voru viðmiðunarmörk aðlöguð að þeirri aðferð sem og hlutfallstölur. Sambærileg breyting var gerð vegna leigubifreiða, ökukennslubifreiða og sérútbúinna bifreiða til fólksflutninga. Þá var tímabundin sérregla um skráða losun húsbíla framlengd út árið 2022.
. Lög nr. 9/2022, um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (leiðrétting).
Með lögunum var gerð leiðrétting á tímabundinni sérreglu um álagningu vörugjalds á húsbíla. Breytingin fól í sér að á árinu 2022 skyldi lækka skráða losun húsbíla um 40%, þó ekki niður fyrir 150 g/km, áður en vörugjald væri lagt á. Einnig þegar losun hafði verið skráð bæði samkvæmt NEDC og WLTP.
. Lög nr. 128/2022, um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (nýsköpun, fjöldatakmörk vistvænna ökutækja o.fl.).
Í breytingunni sem gerð var með lögunum fólst að tímabundin sérregla um álagningu vörugjalds á húsbíla var framlengd út árið 2023. Breytingin fól í sér að áfram skyldi lækka skráða koltvísýringslosun um 40%, þó ekki niður fyrir 150 g/km, áður en vörugjald væri lagt á, að uppfylltum skilyrðum ákvæðisins.
. Lög nr. 129/2022, um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2023.
Þær breytingar voru gerðar með lögunum að skattprósenta á hvert gramm skráðrar koltvísýringslosunar fólksbifreiða var lækkuð en losunarmörk gjaldskyldu jafnframt lækkuð um 5 grömm. Þá var lagt sérstakt 5% vörugjald á fólksbifreiðar og önnur tilgreind ökutæki, óháð losun, og sambærilegt gjald lagt á rafmagns-, vetnis-, metan- og metanólbifreiðar.
. Lög nr. 102/2023, um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld o.fl. (gistináttaskattur, áfengisgjald o.fl.).
Að því er lýtur að fólksbifreiðum fólst í lögunum framlenging á sérreglu um húsbíla til 1. október 2024.
. Lög nr. 99/2025, um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2026.
Með lögunum voru gerðar umfangsmiklar breytingar á vörugjaldi af fólksbifreiðum og skyldum ökutækjum. Hámark vörugjalds hækkaði úr 65% í 70% og losunarviðmið voru lækkuð þannig að gjaldtaka hófst við lægri skráða koltvísýringslosun en áður. Hlutfall vegna WLTP-losunar hækkaði úr 0,28% í 0,34% á hvert gramm umfram 30 g/km og sérstakt vörugjald hækkaði úr 5% í 10%. Þá var undanþága hreinorkuökutækja samræmd auk þess sem sérregla sem gilt hafði fyrir leigubifreiðar til fólksflutninga, bifreiðar til ökukennslu og sérútbúnar bifreiðar til fólksflutninga í ferðaþjónustu var felld brott. Jafnframt voru sérreglur um eldri fólksbifreiðar afnumdar. Nánari upplýsingar má finna í nefndaráliti með breytingartillögu meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar við vinnslu frumvarps þess er varð að lögum nr. 99/2025 á 157. löggjafarþingi ( þskj. 477, 2. mál).