Ferill 73. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Nr. 20/157.

Þingskjal 1449  —  73. mál.


Þingsályktun

um jarðakaup erlendra aðila.


    Alþingi ályktar að fela atvinnuvegaráðherra í samráði við forsætisráðherra, dómsmálaráðherra, innviðaráðherra og umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að skipa sérfræðihóp sem falið verði að greina eignarhald erlendra aðila á jörðum hérlendis og greina framtíðaráskoranir því tengdar og hvort þörf sé á að leggja til breytingar á lögum sem hafi það að markmiði að takmarka frekar jarðakaup erlendra aðila hér á landi eða aðrar ráðstafanir. Starfshópurinn skili skýrslu sem verði nýtt sem innlegg í fyrirhugað frumvarp um breytingu á jarðalögum sem verður lagt fram af atvinnuvegaráðherra á 158. löggjafarþingi, líkt og kveðið er á um í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Ráðherra leggi skýrsluna fram á Alþingi.

Samþykkt á Alþingi 19. júní 2026.