Ferill 36. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1451  —  36. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á umferðarlögum, nr. 77/2019 (gildistími ökuskírteinis).

(Eftir 2. umræðu, 19. júní.)


1. gr.

    1. málsl. 3. mgr. 60. gr. laganna orðast svo: Gildistími fullnaðarskírteinis er 15 ár fyrir sömu flokka, sbr. þó a-lið 4. mgr. varðandi B-flokk, en þó fyrir umsækjanda sem orðinn er 70–75 ára tíu ár, 76 ára níu ár, 77 ára átta ár, 78 ára sjö ár, 79 ára 6 ár, 80–83 ára fimm ár, 84–85 ára fjögur ár, 86–87 ára þrjú ár, 88–89 ára tvö ár og 90 ára eða eldri eitt ár.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.