Ferill 727. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1453  —  727. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um fósturvísagreiningu vegna BRCA2-erfðabreytu.

Frá Ingibjörgu Isaksen.


     1.      Hefur ráðuneytið tekið afstöðu til þess hvort niðurgreiða eigi fósturvísagreiningu (PGT-P) fyrir einstaklinga sem bera BRCA2-erfðabreytu er veldur krabbameini? Ef svo er, samkvæmt hvaða viðmiðum á að niðurgreiða greiningu?
     2.      Hvaða vinna hefur farið fram af hálfu ráðuneytisins, Sjúkratrygginga Íslands eða annarra stjórnvalda frá árinu 2023 varðandi mögulega niðurgreiðslu eða skipulag þjónustu vegna fósturvísagreiningar fyrir BRCA2-arfbera?
     3.      Hefur verið gerð greining á samfélagslegum og fjárhagslegum áhrifum þess að gera einstaklingum sem bera BRCA2-erfðabreytu kleift að nýta sér fósturvísagreiningu hér á landi svo að þeir þurfi ekki að sækja hana til útlanda?
     4.      Hver er áætlaður kostnaður ríkisins vegna:
                  a.      áhættueftirlits með einstaklingum sem bera BRCA2-erfðabreytu,
                  b.      áhættuminnkandi aðgerða sem tengjast BRCA2-erfðabreytu,
                  c.      meðferðar við krabbameini sem tengist BRCA2-erfðabreytu?
     5.      Hversu margir einstaklingar á Íslandi bera krabbameinsvaldandi erfðabreytu, þar á meðal BRCA2-erfðabreytu, og hvernig er eftirfylgd og áhættueftirliti með þeim háttað?
     6.      Hefur verið mótuð formleg stefna eða fjármögnun ákveðin vegna langtímaeftirlits og þjónustu við einstaklinga sem bera krabbameinsvaldandi erfðabreytu?


Skriflegt svar óskast.