Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1455, 157. löggjafarþing 317. mál: opinberir háskólar (gjaldtökuheimildir).
Lög nr. 63 28. júní 2026.
Þingskjal 1455, 157. löggjafarþing 317. mál: opinberir háskólar (gjaldtökuheimildir).
Lög nr. 63 28. júní 2026.
Lög um breytingu á lögum um opinbera háskóla, nr. 85/2008 (gjaldtökuheimildir).
1. gr.
Við 2. mgr. 24. gr. laganna bætist nýr stafliður, svohljóðandi: gjöldum af nemendum með erlent ríkisfang sem falla undir g-lið. Álögð gjöld samkvæmt þessum lið skulu mæta útgjöldum skv. 1. mgr. fyrir þá nemendur sem ekki fylgir fjárframlag samkvæmt reglum um fjárframlög sem settar eru á grundvelli laga um háskóla.2. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 2026.Samþykkt á Alþingi 19. júní 2026.