Ferill 692. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1476  —  692. mál.



                                  

Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Isaksen um tilvísanir og greiðslur vegna sálfræðiþjónustu samkvæmt rammasamningum Sjúkratrygginga Íslands.


     1.      Hve margar tilvísanir bárust samkvæmt rammasamningum Sjúkratrygginga Íslands um sálfræðiþjónustu á hverju ári á árunum 2021–2025, sundurliðað eftir eftirtöldum þjónustuflokkum:
                  a.      þjónustu við börn með tilvísun frá greiningar- eða tilvísunarteymi,
                  b.      þjónustu við börn með tilvísun frá heilsugæslu,
                  c.      þjónustu við fullorðna með tilvísun frá heilsugæslu?

    Í töflu hér fyrir neðan má sjá fjölda einstaklinga sem fékk þjónustu á grundvelli tilvísana:

Fjöldi einstaklinga 2021 2022 2023 2024 2025
Börn með tilvísun frá greiningar- eða tilvísunarteymi 388 397 298 42
Börn með tilvísun frá heilsugæslu 195 625 1.075
Fullorðnir með tilvísun frá heilsugæslu 9 247 713 1.662
Samtals (án tvítalningar) 388 406 740 1.338 2.712

     2.      Hverjar voru fjárheimildir Sjúkratrygginga Íslands til greiðslu fyrir sálfræðiþjónustu samkvæmt rammasamningum við sálfræðinga á hverju ári á árunum 2021–2025? Óskað er eftir sundurliðun eftir fyrrnefndum þjónustuflokkum og árum.
    Árið 2021 var kostnaður við samninginn 47 millj. kr. sem var tekið af læknislið til að greiða fyrir samninginn en engin tilgreind fjárheimild var til staðar vegna hans. Árið 2022 var bætt 250 millj. kr. við samninginn og með því að bæta við kostnaði ársins á undan má líta svo á að fjárheimild árið 2022 hafi numið alls um 300 millj. kr. Sú fjárhæð tekur síðan hækkunum í samræmi við launa- og verðlagsbætur liðarins fram til loka þess tíma sem spurt er um. Fjárheimildin er til samningsins í heild en tiltekur ekki skiptingu milli einstakra hópa.

     3.      Hve mikið greiddu Sjúkratryggingar Íslands út til sálfræðinga samkvæmt rammasamningum um sálfræðiþjónustu á hverju ári á árunum 2021–2025? Óskað er eftir sundurliðun eftir fyrrnefndum þjónustuflokkum og árum.
    Í töflu hér fyrir neðan má sjá útgjöld Sjúkratrygginga Íslands vegna rammasamnings um sálfræðiþjónustu samkvæmt umbeðinni sundurliðun:

Útgjöld Sjúkratrygginga (millj. kr.) 2021 2022 2023 2024 2025
Börn með tilvísun frá greiningar- eða tilvísunarteymi 46,6 50,6 38,9 1,8
Börn með tilvísun frá heilsugæslu 26,6 90,2 131,7
Fullorðnir með tilvísun frá heilsugæslu 0,9 33,5 111,6 224,6
Samtals: 46,6 51,5 99,3 203,6 356,3
     4.      Hve margar framhaldstilvísanir voru gefnar út á sömu kennitölu á hverju ári á árunum 2021–2025 vegna þjónustu samkvæmt rammasamningum um sálfræðiþjónustu? Óskað er eftir sundurliðun eftir fyrrnefndum þjónustuflokkum og árum.
    Fjöldi þeirra sem hafa fengið meira en 10 meðferðartíma (börn) eða 12 (fullorðnir), en ekki beinn fjöldi tilvísana, sjá töflu:

Fjöldi einstaklinga 2021 2022 2023 2024 2025
Börn 4 275
Fullorðnir 334

     5.      Hve margar framhaldstilvísanir voru gefnar út á sömu kennitölu á hverju ári á árunum 2021–2025 án þess að Sjúkratryggingar Íslands hefðu áður greitt fyrir greinargerð frá meðhöndlandi sálfræðingi, sbr. ákvæði rammasamninga um framhaldstilvísanir? Óskað er eftir sundurliðun eftir fyrrnefndum þjónustuflokkum og árum.
    Ekki er mögulegt að draga fram úr kerfum Sjúkratrygginga Íslands umbeðnar upplýsingar nema handvirkt og því ekki unnt að svara þessum lið fyrirspurnarinnar innan þess ramma sem 57. gr. laga nr. 55/1991, um þingsköp Alþingis, setur.